Þjóðlíf - 01.04.1990, Blaðsíða 8

Þjóðlíf - 01.04.1990, Blaðsíða 8
STORA SKRYTNA KÓKAÍNMÁLIÐ Fíkniefnadómari út í kuldann. Embœttið lagt niður. Asgeir Friðjónsson dómari: „Lögfrœðilegir loftfimleikar“. Þriðji maðurinn neitar sakargiftum. Sat í hálft ár í fangelsi. Er þriðji maðurinn höfuðpaurinn í málinu eða er hann negldur saklaus? — Yfirmaður fjölmiðlafyrirtœkis ákœrður fyrir kókaínneyslu. Meinsœrisákœra felld niður af tœknilegum ástœðum og þekkt dagskrárgerðarkona sleppur fyrir horn. RLR rannsakar leka hjá fíkniefnalögreglunni. etta hefur verið óvenjulegur vetur hjá Ásgeiri Friðjónssyni sakadómara í ávana- og fíkniefnamálum. Hann hefur á skrifstofu sinni í lögreglustöðinni við Hverfisgötu mátt horfa upp á að mál, sem hingað til hafa verið á hans könnu, eru tekin frá honum og færð annað. Til að kóróna allt saman ætlar dómsmálaráð- herra að leggja niður fíkniefnadómstólinn núna í vor. PÁLL VILHJÁLMSSON Tvívegis í vetur hefur Hæstiréttur dæmt að Ásgeir, sem fær lofsamlega um- sögn lögfræðinga er við hann skipta, skuli víkja úr dómarasæti þegar réttað er í mál- um sem hann hafði afskipti af á meðan lögreglurannsókn stóð yfir. í fyrra tilfell- inu hafði Ásgeir þegar fellt 4 ára fangelsis- dóm yfir manni fyrir sölu og dreifingu á kókaíni. Dómurinn var ógiltur af Hæsta- rétti og réttað að nýju í málinu og var maðurinn þá dæmdur í tvö og hálft ár í fangelsi. I seinna tilfellinu er ekki búið að dæma í máli karls og konu, sem ákærð eru fyrir smygl á hassi, og nýr dómari mun taka sæti Ásgeirs. Samvinna lögreglu og dómara við málsrannsókn gerir dómarann vanhæfan til að fella óhlutdrægan dóm, er álit Hæstaréttar. Ásgeir er ósáttur við niðurstöðu Hæsta- réttar í seinna tilfellinu og kallar hana „lögfræðilega loftfimleika“. Þar á hann við að í dómi Hæstaréttar segir að ákærðu höfðu „ástæðu til að ætla“ að fíkniefna- lögreglan starfaði undir stjórn Ásgeirs vegna lagaákvæðis sem fellt var úr gildi nokkrum vikum eftir að rannsókn hófst. Stóra kókaínmálið er upphafið að vand- ræðum Ásgeirs. í desember á liðnu ári ógilti Hæstiréttur gæsluvarðhaldsúrskurð Ásgeirs yfir manni sem er ákærður fyrir það að vera aðalmaðurinn í stóra kókaín- málinu. Ásgeir hafði fallist á kröfu lög- reglu og saksóknara um það að maðurinn skyldi geymdur á bakvið lás og slá þangað til dómur yrði kveðinn upp. Urskurð um gæsluvarðhald byggði Ás- geir á 4. lið 67. greinar laga um meðferð opinberra mála sem heimilar varðhald yfir grunuðum manni ef ætla má að brot hans varði að minnsta kosti tveggja ára fangelsi. Lagagreininni er sjaldnast beitt nema þegar um er að ræða manndrápsmál eða alvarleg kynferðisafbrot. Það stóð til að Ásgeir dæmdi í stóra kókaínmálinu og sökum umfangs þess hafði hann fengið til liðs við sig tvo aðra dómara, sem er einsdæmi í 17 ára sögu fíkniefnadómstólsins. Neyslan feryfirleitt þannigfram að sogið erígegnum rör, t. d. peningaseðil upp ínösina. „Fínni“ neytendur hafa alls konar gyllt tól, t.d. rakvélablað, við þegar þeir stússa í neyslunni. 8 ÞJÓÐLÍF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.