Þjóðlíf - 01.04.1990, Qupperneq 27

Þjóðlíf - 01.04.1990, Qupperneq 27
Hamingju- drykkur úr brjósti Hvers vegna eru kornabörn svo friðsæl eftir að hafa feng- ið brjóstamjólk? Svarið við þessari spurningu felst m.a. í rannsóknum sænskra lækna við Lillehagen spítala. í mjólk tíu kvenna fundu þeir efni sem líkist benzodiazepani en það er í róandi lyfjum eins og Valíum. Þannig tekur korna- barn, sem drekkur 60 millilítra af móðurmjólk á dag, um 0.002 milligrömm af diazep- ani. Læknarnir telja að efnið sé framleitt í brjóstunum sjálf- um — í blóðprufum mæðr- anna kom þetta efni aldrei fram. Þar með var jafnframt útilokað að konurnar hefðu tekið róandi lyf sjálfar og það kæmi þannig fram í brjósta- mjólkinni. Þetta róandi efni hefur einnig fundist í litlum mæli í kúa- mjólk... (Spiegel—óg) Kommarnir í kláminu Leiðtogi kommúnista í Aust- ur-Þýskalandi, hinn 77 ára gamli Erich Honnecker, var augljóslega dyggur áhang- andi vestrænnar klámbylgju. Við könnun á sumarhöll hans við Libbesicke See fundu lög- reglumenn yfir eitt hundrað myndbönd með titlum eins og „Lady Diamond" og „Black Manuela". „Svarta þokkadís- in“ og þess háttar efni virtust hafa glatt gamla manninn í ellinni. Af sumum myndunum höfðu valdhafar pantað fleiri eintök en eitt. Þannig átti Honnecker þrjú eintök af myndinni: „Bíddu, þartil orðið er dimmt“... (Spiegel—óg) Mandela fær Benz Frelsishetjan í Suður-Afríku, hinn rúmlega sjötugi Nelson Mandela, fær vandaðan Mercedes Benz að gjöf. Þetta höfðu hörundsdökkir verka- menn í Benz verksmiðjunum í Suður-Afríku þegar ákveðið í febrúarmánuði þegar Mand- ela var látinn laus. Yfirstjórn Benz í Þýskalandi hefur nú samþykkt þessa gjöf, sem verður greidd með yfirvinnu verkamannanna, en forstjór- arnir gefa allt efni. Þeir eru mjög ánægðir með þessa ákvörðun, ekki síst vegna þess að á fyrstu vikunum eftir frelsisgjöfina sást Mandela nær eingöngu notast við bíla frá aðalkeppinautum Benz, - BMW... (Spiegel—óg) litlu, um tveimur hundraðs- hlutum, en engu að síður kom þessi niðurstaða á óvart. Vin- sældir þekktra borgara í Sov- étríkjunum voru kannaðar með lista margra nafna, þar á meðal Stalíns og ellefu stjórn- málamanna samtímans. Þátttakendur í könnuninni áttu að gefa þessum mönn- um einkunnir, hæst 5 og lægst 1. í þriðja sæti lenti Gor- batsjof (3.87) og fast á hæla honum í fjórða sæti var lýð- ræðisróttæklingurinn Sobtsj- ak þingmaðurfyrir Leníngrad. Jósef Stalín var næst óvin- sælastur með 2.13 í einkunn, en neðsta sætið vermdi aftur- haldsseggurinn Ligatsjoff, 2.03. Þessi skoðanakönnun var framkvæmd í gegnum síma og túlkar aðeins viðhorf í Moskvu. Höfuðborgin er eini staðurinn, þar sem símar eru nógu margir og dreifðir til að borgin sé tekin gild í skoðana- könnunum. Annars staðar eru ekki nógu margir símar til að slíkar kannanir séu viður- kenndar... (Spiegel—óg) Michelle Pfeiffer, hin 31 árs gamla kvikmyndastjama, hefur Ijóstrað upp um sérkennilega fortíð sína. Hún varfangin af trúarofstækishópi og bjó við „stöðugan hei!aþvott“ og þurfti að láta ógrynni fjár af hendi í söfnuðinn. En að eigin sögn hafði þátttaka í ofstækissöfnuðinum góð áhrif á hana. „Egþurfti einhvern eða eitthvað til að stjórna mér, þetta var þó skárra heldur en eiturlyf eða æsandi karlmenn“, sem höfðu heillað leikkonuna áður en hún gekk til liðs við söfnuðinn. Nú er Pfeiffer einungis háð keðjureykingum og hóflausri kaffidrykkju og seg- ir: „Fallegt fólk er alltaf íhættu“. Jerry Hall, 33 ára fyrirsæta, er sambýliskona Mick Jaggers í Rolling Stones. Nýverið réðst hún gegn fordómum um mann sinn og kvað Jagger t.d. vera trúaðan, en hann hefur verið talinn guðleysingi vegna söngtexta eins og „Sympathy for the Devil“. JerryHallkvað Jaggerfara með henni íkirkju. Hann væri heldur enginn vinstrisinni eins og haldið væri fram, og því til sannindamerkis kvað hún Jagger myndi kjósa Thatcher efhann ætti kost á því. Þau Jagger og Hall hafa búið saman í 13 ár og eiga tvö börn. Meira dáður en Lenín Eðlisfræðingurinn og andófs- maðurinn Andrei Sakarov er meira í metum meðal al- mennings í Sovétríkjunum heldur en Lenín ef marka má niðurstöður kannana frá Lem'n er enn vinsæll. rannsóknarmiðstöð í Moskvu. Það munar að vísu ÞJÓÐLÍF 27
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.