Þjóðlíf - 01.04.1990, Blaðsíða 15

Þjóðlíf - 01.04.1990, Blaðsíða 15
VILDIEKKIVERÐA SKÓSVEINN KARPOVS — Boris Gulko tekinn tali — Eg var stimplaður andófsmaður. Atti erfitt uppdráttar sem gyðingur í Sovétríkjunum. — Sakar Karpov um að hafa gengið erinda stjórnvalda gegn sér ÁSKELL ÖRN KÁRASON: Börðust betur en fíestir landar þeirra; Sovét- mennirnir Mikhaíl Gúrevits (með gleraugun) og VasilíIvantjúk voru stigahæstu þátttakend- urí Stórveldaslagnum. ágætum, tefldu enda jafnan við mun stiga- hærri andstæðinga. Frammistaða Agde- steins var vitaskuld frábær, en hann fékk flesta vinninga fyrstaborðsmanna og barð- ist ávallt til síðasta manns eins og hann á vanda til. Bestum árangri í sveitinni náði Jóhann Hjartarson, vann þrjár skákir og gerði þrjú jafntefli. Hann virðist nú óðum vera að komast í sitt gamla form. Margeir stóð sig með prýði á 3. borði, vann Nunn hinn enska m.a. sannfærandi og gerði tvö jafntefli við Sovétmeistarann Vaganjan. Þá var árangur Karls ágætur, hann var langstigalægstur þátttakenda, slapp tap- laus frá viðureignum sínum. Helgi átti við ramman reip að draga á 2. borði og var ekki sérlega farsæll. Hann tefldi af öryggi í nokkrum skákum, en fór illa í báðum skákum sínum gegn Englendingnum Speelman. Á sama hátt gerði sá gamli tímahraksrefur Walter Browne Jóni L. skráveifur á 6. borði, kom sér tvisvar í geigvænlegt tímahrak með verri stöðu, en náði í bæði skiptin að snúa á Jón. Slagurinn þótti takast í alla staði vel; taflmennskan var óvenju frískleg og spennan í algleymingi eins og áður er sagt. Nú er bara að vona að stórveldin haldi áfram að slást á þessum vettvangi með fulltingi okkar Islendinga. Aftur eftir tvö ár? Lokaniðurstaða: Sovétríkin .............. 31.5 u England....................... 31 Bandaríkin ................... 30 Norðurlönd.................. 27.5 Við fyrstu sýn virðist þetta vera gam- all maður; hefur misst nánast allt hárið, hvítt það litla sem eftir er. Hann brosir gjarnan en hæglátt fas hans sting- ur í stúf við þá blaðskellandi hávaðasemi sem gjarnan fylgir amerískum skák- mönnum. Það leynir sér þó ekki að und- ir hógværu yfírborðinu býr festa og ein- urð. Þessa eiginleika hefur hann stælt í áralangri baráttu við kerfið í Sovét. Nú er hafið nýtt líf í nýju landi; þrátt fyrir hvíta hárið er hann ekki nema rúmlega fertugur. Við tökum tal saman á stund milli stríða í Stórveldaslagnum þar sem hann teflir á fyrsta borði í sveit Banda- ríkjanna. Nú varst þú meðal fremstu skák- manna Sovétríkjanna á síðasta áratug, Sovétmeistari 1977 og í ólympíuliðinu 1978. Naust þú ekki forréttinda? — í raun varð aðstaða mín erfiðari eftir því sem ég náði lengra í skákinni. Ég var þegar á þessum árum stimplaður andófsmaður, enda fór ég ekki leynt með andúð mína á vissum þáttum stjórnarfarsins. Sérstaklega var það litið alvarlegum augum að ég neitaði að skrifa undir yfirlýsingu gegn Viktori Kortsnoj eftir að hann flúði land 1976. Það var skákyfirvöldum greinilega mikill þyrnir í augum að stórmeistari í fremstu röð skyldi neita að beygja sig undir vald þeirra í einu og öllu og þau reyndu af öllum mætti að leggja stein í götu mína. Embættismenn skáksambandsins réðu því alfarið hverjir fóru á mót erlendis; ráðskuðust með skákmenn eins og bú- fénað. Mér var gert ljóst að ég væri alger- lega upp á náð þessara manna kominn, fékk lítið að tefla og var aldrei sendur á mót utan Sovétríkjanna. Það var ekki til að bæta aðstöðu mína að ég er af gyð- ingaættum. Sættir þú ofsóknum vegna þjóðernis þíns? — í Sovétríkjunum er þjóðerni alltaf skráð í persónuskilríki og þess þarf að geta í öllum umsóknum um starf og nám. Á þessum tíma áttu gyðingar mjög erfitt uppdráttar, m.a. fengu skákmenn af gyðingaættum að jafnaði færri tæki- færi en aðrir. Gyðingum var haldið frá bestu skólunum og eftir að ég lauk námi (Gulko er sálfræðingur að mennt), átti ég mjög erfitt með að fá starf. Hvenær tókst þú ákvörðun um að yfirgefa Sovétríkin? — Það var árið 1979, þá sótti ég um brottfararleyfi. Aðstaða mín batnaði svo sannarlega ekki við það. Ég fékk nánast ekkert að tefla opinberlega og enga möguleika til að sjá fjölskyldu minni far- borða. Vitaskuld tók ég áhættu með því að sækja um leyfið en ég taldi að þar sem aðstaða mín var þegar orðin mjög erfið myndu tvö eða þrjú ár til viðbótar ekki skipta svo miklu máli. Þau urðu reyndar sjö, hin glötuðu ár æfi minnar. Skák- sambandið kom þarna auðvitað við sögu og mér er kunnugt um að Karpov, þá- verandi heimsmeistari, hafði áhrif á ákvarðanir í mínu máli. Á hvern hátt? — Hann gekk erinda stjórnvalda eins og endranær. Einn manna hans hafði samband við mig og bauð mér að ég fengi að tefla í fleiri mótum ef ég drægi umsókn mína til baka. Ég var mjög að- þrengdur á þessum tíma og var í hungur- verkfalli til að leggja áherslu á kröfur mínar. Ég vissi að ef ég tæki boði Kar- povs yrði ég háður honum og skósvein- um hans eftirleiðis, ófrelsi mitt yrði því engu minna en áður. Hafði þér ekki komið í hug að flýja land? — Við Sovétborgarar fengum aldrei að ferðast með fjölskyldur okkar og ég hefði því orðið að skiljast við konu mína og son. Eins og ástandið var á þessum árum gat ég ekki vænst þess að sjá þau aftur ef ég gerðist „liðhlaupi“, auk þess ÞJÓÐLÍF 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.