Þjóðlíf - 01.04.1990, Page 10
Hæstiréttur. Dómar réttarins, sem byggðir eru á hinum fræga úrskurði Mannréttindadómstóls-
ins, hafa orðið til þess að embætti Sakadóms í ávana- og fikniefnamálum verður lagður niður.
lýsingum til fjölmiðlakonunnar um rann-
sóknina þá um vorið. Fíkniefnalögreglan
heyrir undir lögreglustjórann í Reykjavík
en Rannsóknarlögregla ríkisins er sérstök
stofnun.
Desemberrannsóknin leiddi í ljós hvaða
lögreglumaður veitti upplýsingarnar en
ekkert frekar var aðhafst í þeim þætti
málsins.
— Enda ekki ástæða til að ætla að trún-
aður hafi verið brotinn af hálfu fíkniefna-
lögreglunnar, segir Egill Stephensen.
í síðari rannsókninni drógu stúlkan og
maðurinn úr hlutdeild fjölmiðlakonunnar
í meinsærinu og sögðu nú að hún hefði
lítið sem ekkert skipt sér af málinu.
Þegar upp var staðið ónýttist meinsær-
iskæran. í lögum segir að ákærður ein-
staklingur þurfi ekki að bera vitni gegn
sjálfum sér og það varðar ekki við lög þótt
sá ákærði segi rangt frá sinni aðild. Fyrir
dómi hefðu orð stúlkunnar staðið gegn
orðum yfirmannsins og eindregin neitun
fjölmiðlakonunnar tryggði að meinsæris-
þátturinn var úr sögunni.
Ríkissaksóknari ákærði yfirmanninn í
mars síðastliðnum fyrir kaup og neyslu
kókaíns. Líklegt er að manninum verði
boðin dómssátt eins og tíðkast þegar um er
að ræða kaup á fíkniefnum til eigin neyslu.
Sektin sem honum verður gert að greiða
verður á bilinu 14 til 18 þúsund krónur.
Mennirnir þrír sem ákærðir verða fyrir
innflutning á einu kílói af kókaíni í nóv-
ember 1988 eiga yfir höfði sér nokkurra
ára fangelsisvist, verði þeir sekir fundnir.
Tveir játuðu aðild að smyglinu og lögregl-
an telur þann þriðja vera höfuðpaur.
Hann er háskólanemi á þrítugsaldri og
neitar staðfastlega hlutdeild að smyglinu.
Þriðji maðurinn er ráðgáta. Hann var
handtekinn 11. maí 1989 og sat í gæslu-
varðhaldi fram í desember, lengst af í ein-
angrun í Síðumúlafangelsinu en síðustu
INNLENT
Lögreglan kallaði stúlkuna aftur til yfir-
heyrslu og gengið var úr skugga um að
hún stæði við fyrri framburð. Það gerði
hún og bætti um betur og lýsti því hvernig
yfirmaðurinn hefði reynt að fá hana til að
taka alla sökina á sig. Um kvöldið var
fjölmiðlamaðurinn yfirheyrður í annað
sinn. Hann tók þann kostinn að játa fíkni-
efnakaupin og útskýrði hvernig viðskiptin
fóru fram. Þá var maðurinn spurður hvort
hann hefði gert tilraun til að fá undir-
manninn til að taka alla sökina á sig. Hann
játti því einnig og losnaði úr prísundinni
um miðnætti.
Maðurinn réttlætti athafnir sínar með
þeim orðum að hann hafi fyllst skelfingu
er hann frétti af framburði stúlkunnar og
óttast mjög um sína framu'ð og þess fyrir-
tækis sem hann var einn aðalstofnandinn
að. Hann leitaði ráða hjá vinkonu sinni
sem er þekkt fjölmiðlakona. Fjölmiðla-
konan hefur sambönd í fíkniefnalögregl-
unni og hún notaði þau til að fá vitneskju
um yfirheyrsluna á undirmanninum.
Þegar það var staðfest fóru þau á stúfana
og eltu stúlkuna uppi þar sem hún var í
samkvæmi hjá vinafólki. Þau tvö ræddu
um stöðu mála við stúlkuna, bæði í sam-
kvæminu og í bíltúr daginn eftir.
í yfirheyrslum bar stúlkunni og mann-
inum saman um að fjölmiðlakonan hefði
komið með ýmsar tillögur um hvernig
heppilegast væri að fría manninn af mál-
inu, meðal annars að stúlkan drægi fyrri
framburð til baka og gengist sjálf við af-
brotinu. Hér þóttist lögreglan hafa afger-
andi vitnisburð um meinsæri, en það er
talið alvarlegt brot að ljúga sök á saklausa
og varðar allt að 10 ára fangelsi.
Aftur á móti neitaði fjölmiðlakonan frá
fyrstu stundu að hafa átt nokkra aðild að
meinsæri. Hún kannast við að hafa spurst
fyrir um málið hjá fíkniefnalögreglunni og
verið með manninum í samkvæminu og í
bílnum daginn eftir en um önnur afskipti
hafi ekki verið að ræða.
Eftir yfirheyrslurnar í maílok var málið
sent embætti ríkissaksóknara. Lögreglan
kærði stúlkuna fyrir sölu og dreifíngu á
fíkniefnum, yfirmanninn fyrir kaup og
neyslu á fíkniefnum og þátt í meinsæri,
fjölmiðlakonuna fyrir þátt í að hvetja til
rangs framburðar.
Saksóknari sem fékk málið til meðferð-
ar, Egill Stephensen, var ekki ánægð-
ur með rannsókn fíkniefnalögreglunnar. í
desember fyrirskipaði hann framhalds-
rannsókn. Rannsóknarlögregla ríkisins
fékk málið í hendur þar sem grunur lék á
að einhver í fíkniefnalögreglunni hefði
framið trúnaðarbrot með því að leka upp-
10 ÞJÓÐLÍF