Þjóðlíf - 01.04.1990, Qupperneq 25

Þjóðlíf - 01.04.1990, Qupperneq 25
NYJA UTSVARIÐ: HVÍLÍKT KLÚÐUR GUÐMUNDUR JÓNSSON SKRIFAR FRÁ LUNDÚNUM Lara Phelps, 8 ára, í mótmælaaðgerðum í Dorchester. um,“ sagði lögregluþjónn í Dorchester í Suður-Englandi. „Lögreglustjórinn sem er eldri en ég segist heldur ekki muna eftir öðru eins.“ Ekkert mál um þessar mundir veldur stjórninni jafn miklum óvinsældum meðal fólks og nýja útsvarið. í Vestur- Oxfordsýslu sögðu 18 sýslunefndarmenn sig úr Ihaldsflokknum sem missti þar með meirihlutastjórn sína þar. Stjórnarliðar eru að vonum óstyrkir og reyna að telja fólki trú um að það séu víða einkum öfga- sinnaðir vinstrimenn sem standi fyrir mótmælunum. Annað atriði sem stjórnin óttast er að margt fólk neiti að borga skatt- inn, en háværar raddir hafa verið um slíkt. í Skotlandi var skatturinn innleiddur á síðasta ári og hafa margir enn ekki borgað. Spurning er hvort hinir löghlýðnu Eng- lendingar munu sýna skattinum jafn mikla andspyrnu og þeir fyrir norðan. 0 „Við borgum ekki, við borgum ekki“. Nýja útsvarinu mótmælt fyrir utan hús borgarhverfísstjórnar í Hackney, London. meira en þegar gamli skatturinn var í gildi. Margt fátækt fólk mun eiga í erfið- leikum með að borga skattinn. Ríkasti maður Bretlands, að konungsfjölskyld- unni undanskilinni, er hertoginn af Westminster, sem nú borgar jafn hátt útsvar og hver annar. Honum finnst ægi- legt hvernig komið er fyrir sumum leigj- endum sínum og ætlar að hjálpa upp á greiðsluna á næsta ári. I febrúar og mars ákváðu sveitarstjórnir um allt land álagningu nýja útsvarsins fyrir næsta fjárhagstímabil og urðu svo mikil mótmæli og uppþot víða um land að annað eins hefur ekki sést síðan í efna- hagskreppunni í byrjun síðasta áratugar. Til ryskinga kom milli lögreglu og mót- mælenda í mörgum borgum, ruðst var inn á borgarstjórnarfundi og sums staðar leystust þeir upp. Mótmælin nú eru þó frábrugðin þeim fyrir áratug því að þau eru ekki bundin við aðþrengt fólk í stór- borgum heldur ná einnig til friðsælla bak- landa íhaldsflokksins. „Það hefur ekki verið mótmælaganga hér í manna minn- Eitt af kosningaloforðum íhaldsflokks- ins í Bretlandi fyrir þingkosningarnar 1987 var að afnema gamla útsvarið og innleiða nýjan og „sanngjarnari“ skatt sem gerði sveitarstjórnir fjárhagslega ábyrgari. Þennan skatt, sem fljótlega var farið að kalla „poll tax“, átti að innleiða hægt og rólega svo að sem minnst röskun fylgdi honum. Stjórnin hefur brugðist í öllum þessum atriðum. Skatturinn á að standa undir stórum hluta útgjalda hjá sveitarfélögum, en útgjaldaáætlanir stjórnarinnar hafa ekki staðist og hafa sveitarstjórnir hver af annarri samþykkt að leggja á miklu hærri skatt en ríkisstjórnin gerði ráð fyrir. Hún reiknaði upphaflega með að skatturinn yrði að meðaltali 256 sterlingspund en hann virðist ætla að verða 345 pund eða 35% hærri. Það er langt í frá að sveitar- stjórnir sem lúta stjórn Verkamanna- flokksins séu þær sem fara yfir áætlun stjórnarinnar eins og haldið var fram af stjórnarliðum framan af, því að í ljós hefur komið að sveitarstjórnir þar sem íhalds- menn ráða hafa líka farið langt yfir mark stjórnar- innar. Skoðanakannanir sýna að flestum finnst skatturinn mjög ósann- gjarn. Þetta er nefskattur sem leggst á alla 18 ára og eldri, snauða sem ríka, en undanþágur eru nokkrar fyrir öreiga og tekjulítið fólk. Upphæð- in er misjöfn eftir sveit- arfélögum og fer eftir fjárhag á hverjum stað og hversu miklum styrk þau eiga rétt á frá stjórn- inni. Samkvæmt einni könnun mun meðal- heimili borga þriðjungi ÞJÓÐLÍF 25
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.