Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2013, Side 47

Frjáls verslun - 01.11.2013, Side 47
FRJÁLS VERSLUN 11. 2013 47 Valdimar Sigurðsson segir að lykilatriðið sé að stuðla að persónuleg­ um samskiptum á samfélags­ miðlum. „Það hafa kannski ekki margir heyrt af því en lögreglan er skemmtilegt og gott dæmi. Margir hefðu kannski í fyrstu efast um að það væri góð hug­ mynd fyrir lögregluna að nýta sér samskiptamiðla í miklum mæli þar sem hún er oft að vinna í erfiðum málum og jafnvel óvin sælum, en annað hefur kom ið á daginn. Lögreglan hef ur leyst þetta vel af hendi og notast við margar af þeim gullnu reglum sem hafa myndast hvað þetta varðar. Markmið eru skýr og röddin einnig þar sem sam­ takamáttur almennings er nýttur kerfisbundið með hagnýt um hætti. Lögreglan setur sínar regl ur og er óhrædd við að stoppa dónaskap og nettröll sem fara yfir strikið. Hún á í góðum – og á köflum skemmti­ legum – samskiptum við borg­ arana og tekst að komast nær almenningi með samfélags ­ miðl um. Skilaboðin eru ekki einhliða eða stofnanaleg heldur eru þau oft kankvís og samin með þarfir notandans í huga út frá mikilvægum upplýsingum (t.d. um staðsetningu hraða­ myndavéla) eða öðrum virðis­ aukandi þáttum. Lögreglan sér sjálf um að halda úti miðlunum í stað þess að láta aðra um það en er jafnframt dugleg að leita sér ráðgjafar eða fyrirmyndar hjá öðrum. Þetta gerir það að verkum að samskiptin eru bæði trúanleg og tímaleg, sem er mikil vægt þar sem líftími skila­ boða getur verið stuttur.“ dR. vaLdiMaR SiGuRðSSoN – dósent við við skiptadeild HR MARKAÐS- HERFERÐIN Markaðssetning á samfélagsmiðlum verður að vera persónuleg Tæknilega þótti mér merki­legast við árið sem er að líða að fara frá því að nota stærstu myndavélina á markaðn­ um; Fuji GX680 III (filmu), í minnstu FF­myndavélina (Full Frame); Sony RX1r. Það sem kom mér þó mest á óvart var hve stafrænu flögurnar eru loksins orðnar ekki aðeins góðar heldur frábærar. Það er ótrúlegt, sérstaklega í lítilli birtu, hvað vélar eins og Sonyinn eða ég tali nú ekki um Canon D1X geta. Nótt verður að degi, norðurljósin fryst, á 4000 ISO. Fyrir þrjátíu árum, þegar ég byrjaði sem atvinnuljósmyndari, var filman sem ég notaði 25 ISO, í dag er ekki einu sinni hægt að stilla atvinnumannavél eins og Canon D1X svo lágt, eins og Kodachrome 25P­filmuna sem ég notaði tíu fyrstu árin sem ljósmyndari. Og ekki nóg með að ljósnæmið væri lítið; það leið að minnsta kosti hálfur mánuður frá því ég tók mynd þangað til ég fékk hana til baka úr framköllun frá Stokkhólmi. Í dag er myndin kom in strax á skjáinn aftan á mynda vél ­ inni eða framan á sím anum. Tal andi um síma, þá er það lík­ lega mesta byltingin fyrir hinn venju lega mann en bestu mynda vélasímarnir, eins og Nokia Lumina 1020 PureView, eru með frábæra myndavél. Allir þessir góðu snjall símar gera það að verkum að það voru fleiri mynd ir teknar á þessu ári en öll 150 árin sem ljós myndun hefur verið til. Sex hundruð milljónir mynda eru settar á netið á dag, bara hjá tveimur veitum, Snap­ chat og Insta gram. Þá er allt hitt eftir, eins og miðill sem heitir Facebook. PÁLL STeFÁNSSoN – ljósmyndari GRÆJUR Myndarleg myndavél
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.