Frjáls verslun - 01.11.2013, Blaðsíða 69
FRJÁLS VERSLUN 11. 2013 69
hAgnAður
1,3 millJArðAr Kr. árið 2013
Velta Bláa Lónsins á þessu ári, 2013, verður 31 milljón evra, reksturinn mun skila 12,5 milljóna evra EBITDA og um átta mill-
jónum evra í hagnað eftir skatta. Umreiknað í
krónur miðað við meðalgengið 162 krónur í evru
er þetta um fimm milljarða króna velta, um tveir
milljarðar í EBITDA og 1,3 milljarðar króna í
hagn að eftir skatta. Gímur segir stefnt að því
að tvöfalda veltuna frá 2014 til 2020 eða úr um
fimm milljörðum króna árið 2013 í 10 milljarða
króna árið 2020 með þeirri uppbyggingu sem
fyrir dyr um stendur og segir frá annars staðar.
Árið 2012 hagnaðist Bláa Lónið um 900 milljónir
króna og greiddi hluthöfum sínum 700 milljónir
króna í arð. EBITDA rekstrarársins var 10,4
milljónir evra eða tæpir 1,7 milljarðar króna –
um 41% af veltu. Samkvæmt efnahagsreikningi
nam eigið fé félagsins um 10,7 milljónum evra
eða tæpum 1,6 milljörðum króna. Rekstrartekjur
námu liðlega 25,5 milljónum evra eða liðlega 4,1
milljarði króna og rekstrargjöld námu röskum 15
milljónum evra eða tæpum 2,5 milljörðum króna.
Stöðugildi hjá Bláa Lóninu eru nú 240 en voru
12 þegar fyrirtækið hóf eiginlegan rekstur árið
1994 og ársveltan var þá 50 milljónir króna.
Stærstu hluthafar félagsins eru: Hvatning slhf.
með 43,%. Hvatning er að 70% í eigu Kólfs ehf.,
sem Grímur stýrir, en 30% eru í eigu Horns II,
sem stýrt er af Landsbréfum hf. HS Orka er með
33,% og félög sem stýrt er af Helga Magnússyni
fara með 12% hlut í Bláa Lóninu hf.
Í stjórn Bláa Lónsins sitja Helgi magnússon,
sem er formaður stjórnar, edvard Júlíusson, sem
var stjórnarformaður frá stofnun allt til ársins
2010, Anna Skúladóttir, Ásgeir margeirsson,
Guðrún Hafsteinsdóttir og Úlfar Steindórsson.
Nýr og glæsilegur baðstaður var tekinn í
notkun árið 1999. Hann var endurhannaður
og tvöfaldaður að stærð árið 2007.
Sigurvegarinn
Stundum er talað með þeim hætti
um einstaklinga að þeir séu
fæddir sigurvegarar.
Ætli Grímur Sæmundsen fylli ekki
þann flokk því að hann hefur verið
einstaklega sigursæll bæði í leik
og starfi. Bláa Lónið er auðvitað
nægilegt lífsstarf eitt og sér en
í leik hefur Grímur ekki síður átt
velgegni að fagna.
Grímur lék um árabil knatt -
spyrnu með meistaraflokki
Knatt spyrnufélagsins Vals. Hann
var bakvörður og þótti harður í
horn að taka í þeirri stöðu enda
keppn ismaður mikill og fyrirliði
liðsins. Hann varð fjórum sinnum
Ís landsmeistari og þrisvar bikar -
meistari með liði sínu.
Hann var síðan formaður Vals
árin 2002 til 2009 eftir að hafa
verið formaður knattspyrnudeildar
fé lagins þrjú ár þar á undan,
Grímur er nú formaður Valsmanna
hf. Honum hefur hlotnast fjöldi
viður kenninga fyrir störf sín
innan íþróttahreyfingarinnar;
er handhafi heiðursorðu Knatt -
spyrnufélagsins Vals, gull -
merkis Knattspyrnusambands
Íslands, gullmerkis Hand knatt -
leikssambands Íslands og gull -
merkis Íþrótta- og ólympíu sam -
bands Íslands.
Til marks um það hversu sigur -
sæll Grímur Sæmundsen getur
verið skal tínt til að á íþróttasíðu
Morgunblaðsins frá föstudeginum
1. febrúar 1985 má lesa klausu
um að þrátt fyrir að Grímur sé í
ströngu námi í London hafi hann
ekki alveg sagt skilið við knatt -
spyrnuna heldur leiki með London
Hospital í svokallaðri AFC Premier-
deild. Síðan segir í þessari klausu:
„Grímur, sem heldur upp á þrí -
tugsafmæli sitt á mánudaginn,
hélt upp á daginn fyrirfram síð -
astliðinn laugardag. Liðið mætti þá
Kings College í deildarkeppninni og
sigruðu Grímur og félagar með yfir -
burðum, 5:2,“ segir Morgun blaðið.
„Grímur gerði sér lítið fyrir og skor -
aði tvö mörk í leikn um, annað með
glæsilegum þrumu fleyg upp í mark -
hornið. Þar að auki lagði Grímur upp
tvö mörk fyrir félaga sína.“
Blóð, sviti og bros!
Fyrir liðinn kampakátur eftir
lokaleik Íslandsmótsins í knatt
spyrnu haustið 1985. Valur
Ís lands meistari eftir 10 sigur á
KR á Hlíðarenda!