Frjáls verslun - 01.11.2013, Page 79
FRJÁLS VERSLUN 11. 2013 79
vara stjórn bankans eru þau dr.
Ragnhildur Helgadóttir, Vil
mundur Jósefsson, Þórdís Sif
Sig urðar dóttir og Guðmundur
Pálmason.
Samfélagsleg ábyrgð og
fagmennska
Við lítum svo á að samfélagsleg
ábyrgð sé mikilvægur hluti af
fagmennsku okkar og að hún
birtist í ábyrgum og vönduðum
viðskiptaháttum. Samfélagsleg
ábyrgð er því samofin öllum
okkar daglegu störfum og þeim
heilindum og trúnaði sem við
sýnum viðskiptavinum okkar
og starfsmönnum. MP banki
leggur metnað sinn í að vera
eftirsóknarverður vinnustaður.
Við erum þekk ingarfyrirtæki
og til að ná markmiðum okkar
þurfum við að laða til okkar
hæfasta fólkið á hverjum tíma
og það gerum við með því að
skapa krefjandi og áhugaverðan
starfsvettvang. Við erum mjög
stolt af starfsmönnum okkar
og reynum að hlúa sem best
að því hæfileikafólki sem starf
ar hjá okkur og tryggja að það
geti virkjað fagmennsku sína,
metnað og drifkraft við upp
byggingu bankans.
Ábyrg umhverfisstefna
Stefna MP banka er að stuðla að
góðri umgengni við umhverfið
með því að draga úr mengun
og óþarfa orkunotkun. Meðal
þess sem við höfum gert til
að innleiða umhverfisstefnu
okkar er að takmarka óþarfa
prentun með aðgangsstýrðu
prentarakerfi, spara orku með
því að lágmarka kerfisbundna
lýsingu í starfsstöðvum bankans
og nýta okkur fjarfundabúnað
í stað ferðalaga eins mikið og
kostur er.
með öflugustu
sérfræðingum landsins
Starfsmenn okkar eru með öfl
ugustu sérfræðingum landsins
á sínu sviði; hvort sem kemur
að viðskiptum og fjármögnun
á verðbréfamarkaði, sérhæfðri
bankaþjónustu og ráðgjöf fyrir
fyrirtæki eða eignastýringu. Við
höfum ávallt fagmennsku og
trúnað að leiðarljósi og leggjum
áherslu á að tryggja hagsmuni
viðskiptavina okkar. Bankinn er
jafnframt í einstakri stöðu sem
frjáls og óháður einkabanki.“
MP BaNKi
velta 2013: rekstrartekjur áætlaðar fjórir milljarðar
Fjöldi starfsmanna: 120 hjá mP banka og dótturfélögum
Forstjóri: sigurður atli jónsson
Stjórnarformaður: Þorsteinn Pálsson
Stefnan: mP banki sérhæfir sig í að veita íslensku atvinnu
lífi, athafnafólki, fjárfestum og sparifjáreigendum sér hæfða
bankaþjónustu, auk alhliða þjónustu á sviði fjárfestinga banka
starfsemi og eignastýringar.
„Starfsmenn okkar eru með öflugustu sérfræðingum landsins á sínu sviði; hvort sem kemur að viðskiptum og fjármögnun á
verðbréfamarkaði, sérhæfðri bankaþjónustu og ráðgjöf fyrir fyrirtæki eða eignastýringu.“
„Við erum eini bank
inn sem sér hæfir sig
í þjónustu við lítil
og meðalstór fyrir
tæki. Við get um ekki
verið valkostur fyrir
alla en viljum vera
fyrsti valkostur fyrir
tækja og fólks í fyrir
tækjarekstri. Þeim
árangri náum við með
sérhæfðri og faglegri
fjármálaþjónustu.“