Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2013, Side 97

Frjáls verslun - 01.11.2013, Side 97
FRJÁLS VERSLUN 11. 2013 97 verkefni hjá umhverfissviði Mann vits, sem hefur nýverið hafið mat á umhverfisáhrifum vindmyllulunda sem Lands ­ virkjun hyggst reisa meðfram Þjórsá norðan við Búrfell. Annað athyglisvert verkefni sem Mannvit kom að er raf ­ væðing fiskmjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar í Neskaup ­ stað og Eskju á Eskifirði. Fram ­ kvæmdirnar fólu m.a. í sér rafvæðingu katla sem áður voru keyrðir á olíu. Mannvit veitir orkufrekum iðnaði mikla ráðgjafarþjónustu, bæði álfyrir tækjunum þremur og járnblendiverksmiðjunni á Grundar tanga. Stærsta verk ­ efnið á þessum vettvangi árið 2013 var við endurnýjun álverk smiðju ÍSAL í Straums ­ vík. Við vonumst jafnframt til að ný verkefni á sviði orkufreks iðnaðar komist á skrið fljótlega samhliða frekari nýtingu á orkuauðlind þjóðarinnar. Á orku sviðinu var stærsta verk ­ efnið fyrir Landsvirkjun á Norðausturlandi þar sem virkjun jarðvarma er undirbúin á Þeistareykj un og við Bjarnar ­ flag ásamt undirbúningi vatns ­ aflsvirkjana í Neðri­Þjórsá. Á Kefla víkurflugvelli höf um við þjónustað Verne Hold ings við að koma upp gagna veri og stækkun þess er í burðar liðnum. erlend uppbygging er langhlaup Uppbygging erlendrar starf ­ semi Mannvits er langhlaup sem hófst fyrir alvöru 2008 með opnun skrifstofu í Ungverja landi. Síðan þá hafa starfsstöðvar í Noregi, Bret ­ landi, Þýskalandi og Síle bæst við. Í Noregi fórum við af stað eins og í Ungverja landi; stofnuðum fyrirtæki og byrj ­ uðum frá grunni. Í Noregi eru verk efnin að stærstum hluta tengd vega gerð og upp ­ bygg ingu innviða í sveitar ­ félögum, skólabyggingar, smærri vatnsaflsvirkjanir og endurbætur á raforkuflutn ­ ings kerfinu. Í kjölfar efnahags ­ lægðarinnar hafa framkvæmdir dregist saman í Evrópu en vegna stöðugrar hvatningar til fjár festinga sjáum við núna fram á aukin verkefni sem eru að fara af stað. Þar má nefna byggingu hitaveitu í Ung verjalandi í bæ sem heitir Mosonmagyarovar og fleiri slík verkefni eru í far ­ vatninu. Einnig erum við ráð gjafar fyrir Orka Energy við stórt jarðhitaverkefni á Biliran­eyju á Filippseyjum. Þar er stefnt að byggingu 49 MW virkjunar og boranir eru þegar hafnar. Í Þýskalandi er í gangi hönnunarvinna við jarðhitavirkjun í Taufkirchen fyrir Exorku. Þar er þegar búið að bora og tryggja orkuna fyrir tvívökvavirkjun sem Mannvit vinnur nú hörðum höndum að því að hanna. Af erlendum jarðhitamörk ­ uðum er Austur­Afríka vaxandi markaður. Þar eru alþjóðlegar lánastofnanir að styðja við uppbyggingu jarðhita í bland við erlenda fjárfesta. Mannvit lauk við hönnun 15.000 t kælds ammóní aks ­ geymis fyrir áburðar fram ­ leiðanda í Pulawy í Póllandi. Í samvinnu við Per Aaslef í Danmörku og Teknís unn um við að endurnýjun endsneyti s­ kerfisins í Danne brog­herstöð­ inni á Grænlandi fyrir danska herinn. Fyrir sján leg aukning er á verkefnum á Grænlandi en sígandi lukka er best þar eins og annars staðar. Brugðist við samdrætti veturinn 2008-2009 með verkefnaþróun Til þess að ná meiri árangri og bregðast við takmarkaðri fjárfestingu í landinu höfum við í auknum mæli tekið þátt í verkefnaþróun. Við höfum fjölbreyttan hóp fólks með ferskar hugmyndir sem hefur unnið að þróun verk efna sem farið hafa af stað, ýmist í samstarfi með fjárfestum, verktökum eða fyrir tækj um á öðrum sviðum. Eitt slíkt verk ­ efni á Íslandi er lúxushó tel ið og íbúðirnar sem ráðgert er að rísi við hlið Hörpu. Það er stórt verkefni fyrir byggingarsvið Mannvits næstu þrjú árin. Bygg ingamagn á lóðinni er um 30.000 m², þar af verður hótel ið um 17.000 m² en 13.000 m² fara í íbúðir, versl anir og bílakjallara. Drekasvæðið Önnur verkefni þar sem Mann ­ vit hefur nýtt sérþekkingu sína og er í aðstöðu til þess að læra enn frekar á nýtt svið er að ­ koma að olíu­ og gasverkefni á Drekasvæðinu. Við eigum hlutdeild í Eykon AS þar sem við sjáum mikil tækifæri í framtíðinni. Eykon hefur tvö olíuleitar­ og ­vinnsluleyfi á Drekasvæðinu í samstarfi við Ithaca Energy, CNOOC og Petoro í Noregi. Það er von okkar að þessi starfsemi, með tengingu við Noreg, muni styrkja starfsemina á Íslandi og uppbyggingu þekkingar, bæði í olíuleit og ­vinnslu, sem og þjónustu af ýmsu tagi. Íslenskur markaður sýnir batamerki Almennt hefur okkur fundist að markaðurinn á Íslandi hafi sýnt batamerki nú í haust. Það á við um almennar framkvæmdir og við eigum von á að frekari hreyfing komist á orkuverkefni og verkefni fyrir orkufrekan iðnað. Þá er einnig til þess að líta að við reiknum með að fisk iðjufyrirtækin fari að hugsa sér til hreyfings, en þar hefur safnast upp þörf á fjár ­ festingum í endurbótum og ný framkvæmdum.“ „Til þess að ná meiri árangri og bregðast við takmarkaðri fjárfestingu í landinu höfum við í auknum mæli tekið þátt í verkefnaþróun.“ Hjá Mannviti starfar fjölbreyttur hópur verkfræði­, tækni­ og vísindamanna. MaNNviT velta: 7,6 milljarðar (2012) Fjöldi starfsmanna: 395 Forstjóri: eyjólfur árni rafnsson Stjórnarformaður: jón már halldórsson stefnan í einni setningu: mannvit selur lausnir og þjónustu á sviði verkfræði og tækni, með áherslu á græna orku og iðnað á íslandi, í evrópu, Bandaríkjunum og víðar. 50 ára afmælishátíð Mannvits í Eldborgarsal Hörpu. Nýjar höfuðstöðvar toyota, Kauptúni. Elkem á Grundartanga.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.