Frjáls verslun - 01.11.2013, Qupperneq 99
FRJÁLS VERSLUN 11. 2013 99
meðal annars að horfa til þess
að halda hagvexti til lengri tíma
á bilinu 35%.“
umhverfisvæn eldsneytis-
framleiðsla
Árið hefur verið gjöfult hjá
Thule Investments og verkefnin
umfangsmikil og krefjandi. Má
þar nefna árangursríkt ár fyrir
íslenska nýsköpunarfyrirtækið
Carbon Recycling International
(CRI) sem kanadíska fyrirtækið
Methanex Corporation fjárfesti
í fyrir fimm milljónir dala
síðasta sumar. „Það miðar
að því að framleiða hluta af
elds neyti Íslendinga á um
hverfis vænan máta með því
að nota til þess rafmagn og
úrgang,“ segir Gísli. Fyrirtækið
býr til metanól, sem selt er
á mörkuðum hérlendis og í
Evrópu, undir vörumerkinu
Vulcanol. Sóknar færin í um
hverfis vænni eldsneytis fram
leiðslu eru mörg og hyggur CRI
á að reisa nýja og stærri elds
neytis verksmiðju á Íslandi.
Ljósleiðari frá Íslandi til
tveggja heimsálfa
Thule Investments hefur í tvö
ár unnið að lagningu ljós leiðar
ans Emerald á milli Evrópu og
Bandaríkjanna í gegnum Ísland.
„Þetta er alþjóðlegt verkefni
sem miðar vel. Á árinu gerðum
við nokkra sölusamninga,
með al annars við Vodafone og
alþjóðlegu fjarskiptafyrirtækin
AT&T og Century Link í
Banda ríkjunum. Þetta veitir
okkur einstakt tækifæri til að
efla fjar skiptainnviði á Íslandi
á hagkvæman máta.“ Gísli
segir lagningu strengsins hafa
mikla þýðingu fyrir upp bygg
ingu til framtíðar. Öruggar
nettengingar á milli svæða í
heiminum eru lykilfor senda
gagnaversiðnaðar sem stjórn
endur Thule Invest ments telja
fýsilegan og umhverfis vænan
fjárfestingar kost. Gísli bendir
á að Ísland sé aftarlega á báti
hvað varðar nettengingar.
Strengur Emerald komi til með
að hífa landið ofar.
Forskot í uppbyggingu
gagnavera
„Gagnaver hafa mikil áhrif
á nærumhverfið og eru for
senda fyrir rekstri sæstrengja.
Í því sam hengi nægir að
nefna jákvæð áhrif sem íbúar
Suðurnesja finna nú þegar
fyrir frá gagnaveri Verne
Global. Við lítum svo á að
strengur Emerald stuðli til
langs tíma að hagvexti og
at vinnu uppbyggingu sem
skilar sér í auknum lífs gæð
um í landinu.“ Gísli bendir á
þau jákvæðu áhrif sem upp
bygg ing gagnavera hefur
haft í nágranna lönd um.
„Uppbygging gagnavera á
Íslandi er eitt af fjárfest ingar
tækifærum sem liggja rétt
handan við hornið, svipað og
við höfum séð gerast annars
staðar á Norðurlöndunum og
á Írlandi á síðustu misserum.
Fyrirtæki eins og Google,
Microsoft og Facebook hafa
sem dæmi reist gagnaver í
þess um löndum. Um miklar
fjárfestingar er að ræða. Um
miðjan desember síðastliðinn
tilkynnti Microsoft til að mynda
stækkun á gagnaveri sínu á
Írlandi upp á 230 milljónir
dollara eða tæpa 30 milljarða
króna. Heildarfjárfesting fyrir
tækisins í gagnaverinu er
þannig komin upp í um 100
milljarða króna. Því er ljóst að
mikið er í húfi og sóknarfærin
mörg.“
Lágmarksfjárfesting gæti
haft mikið að segja
Gísli segir að Ísland hafi
án vafa samkeppnisforskot
þegar kemur að uppbyggingu
gagna vera í heiminum.
„Landið er vel staðsett og með
tryggt aðgengi að grænni og
áreiðanlegri orku. Hið íslenska
rok og kuldi gagnast einnig
þegar kemur að uppbyggingu
gagnaveranna sem ákjósanlegra
er að reisa á stöðum þar sem
slík veðrátta ríkir. Gagnaver
kalla einnig á sérhæft starfslið
þegar kemur að menntun og
sérfræðiþekkingu. Bæði í bein
um störfum og ýmiss konar
afleiddri starfsemi og þjón ustu
störfum í kring.“
Hann bendir á að þrátt fyrir
aug ljósa kosti hafi ekki enn
tekist að draga stóra aðila í
gagna versgeiranum til lands
ins. „Tækifærin eru fjölmörg
og raunar vantar lítið upp á
til að hér sé allt til staðar. Til
þess af raunverulegum Með
lágmarksfjárfestingu í grunn
innviðum og nokkrum breyt
ingum á rekstrarumhverfi má
ná enn meiri árangri.“
Jafnrétti og samfélags -
ábyrgð
Þegar kemur að fjárfest ingar
kostum segir Gísli að mann
auður skipti miklu máli. „Við,
eins og allir aðrir, viljum ráða
besta starfslið sem völ er á,
gæta að jafnréttissjónarmiðum
og lögum, bæði þegar seta í
stjórn er annars vegar en einn
ig þegar kemur að ábyrgð,
stjórnun og launagreiðslum.“
Samfélagsábyrgð er í heiðri
höfð í allri starfse mi fyrir
tæk isins og reynt að tryggja á
öllum stigum að rekstur hafi
sem jákvæðust áhrif á hags
muni lands og þjóðar.
„Á Íslandi verðum við
að geta boðið tækifæri
og lífskjör eins og
best verður á kosið í
heiminum. Það gerum
við til dæmis með því
að horfa sérstaklega til
fyrirtækja í nýsköpun
og hlúa þannig að
grasrótinni.“
THuLe iNveSTMeNTS
velta: 122 millj. kr.
Fjöldi starfsmanna: 7 (5 fte)
Framkvæmdastjóri: Gísli hjálmtýsson
Stjórnarformaður: Gísli hjálmtýsson
Stefna: meginmarkmið thule investments er að fjárfesta í
ungum fyrirtækjum sem starfa á sviði nýrra atvinnugreina.
Björn Brynjúlfsson, Linda Metúsalemsdóttir og Björn Þór Karlsson.