Frjáls verslun - 01.11.2013, Qupperneq 102
102 FRJÁLS VERSLUN 11. 2013
LÍÚ
Bjartsýni og þor að aukast
„Ég tel að það sé ástæða til að horfa björtum augum á framtíðina. Sjávarútvegsfyrirtæki eru mörg hver
í sterkri stöðu og ástand fiskstofna gott. Nýsköpun í greininni er mikil og eykur þar með nýtingu, þróun
og verðmætasköpun sem skilar samfélaginu tekjum og góðum störfum,“ segir Kolbeinn Árnason sem
tók við sem framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, LÍÚ, í haust.
áramót
eru tímamót
Við erum ánægð með að sjávarútvegurinn gengur vel, af koman
hef ur ver ið nokkuð góð, fjár
fest ing í grein inni er að komast
aftur af stað með vaxandi til
trú manna á stjórnkerfinu og
þar með eykst bjartsýni og
þor,“ segir Kolbeinn Árna
son, framkvæmdastjóri Lands
sambands íslenskra útvegs
manna, LÍÚ. Kolbeinn segir
að ekki sé hægt að líta framhjá
því að það sem hafi borið einna
hæst á árinu sé umræður um
veiði gjöld. Landssamband
ís lenskra útvegsmanna hafi
verið í varnarbaráttu í því máli.
Því telji hann mjög mikilvægt
að ná sáttum svo hægt sé að
ein beita sér að framtíðinni og
nýjum sóknarfærum, greininni,
samfélaginu til hagsbóta.
Kolbeinn segir það því for
gangs verkefni næstu mán aða
að vinna með stjórn völdum í
því að koma á kerfi til að inn
heimta veiðigjöld sem skaði
ekki atvinnugreinina. Sjávar
útvegurinn sé ein af mikil væg
ustu stoðum þjóðarbúsins, en
alls skapar greinin 11 pró sent
landsframleiðslunnar með
beinum hætti, en út frá hefð
bundnum sjávarútvegi hefur
myndast svokallaður sjávar
klasi. Þegar klasinn allur er
tekinn með skilar sjávar út
vegurinn um 28 prósentum af
landsframleiðslu.
„Sjávarútvegurinn hefur lengi
skilað þjóðarbúinu miklum
tekj um. Ég held því að það
séu allir sammála um að hann
verði að fá tækifæri til að
dafna sem best og eigi skilið
að mjög sé vandað til lagasetn
ingar sem viðkemur grein inni
og að rekstrar um hverfi hans
sé stöðugt svo menn leggi í
fjár festingar og frekari upp
byggingu,“ segir hann.
Þá segir Kolbeinn mjög mikil
vægt að stefna að því að auka
veg sjávarútvegsins með já
kvæðri og uppbyggi legri um
fjöll un um greinina. „Við viljum
haga vinnu við veiðigjöld
þannig að sátt megi skapast um
greinina þannig að fólk hætti
að rífast um sjávar útveginn og
verði stolt af honum og ánægt
með hvað hann skaffar mikið til
sam félagsins.“
Svo miklu meira en
fiskveiðar
Kolbeinn hefur starfað nokkuð
lengi við sjávarútveginn. Hann
var skrifstofustjóri í sjávar
út vegsráðuneytinu og síðar
varð hann framkvæmdastjóri
lög fræðisviðs skilanefndar
Kaup þings. Hann hefur einnig
verið formaður samningahóps
um sjávarútvegsmál í við
ræð um Íslands um aðild að
Evrópu sambandinu. Hann segir
áhuga sinn á greininni eink um
skýrast af þeim miklu vaxtar
möguleikum sem greinin býr
yfir. Sjávarútvegurinn leggi
mikið fé í tæknifyrirtæki og í
hvers kyns nýsköpun innan
grein arinnar.
„Íslenskur sjávarútvegur
á núna mikla möguleika á
því að færast yfir á nýtt stig
sem felur í sér fleiri tækifæri
en í veiðum og þróun á
matvælum,“ segir Kolbeinn og
nefnir sem dæmi að nú þegar
hafi íslensk fyrirtæki náð góð
um árangri í framleiðslu á
lækn inga og snyrtivörum úr
sjávarafurðum. Stundum sé
sagt að sjárvarútvegur snúist
eingöngu um fiskveiðar en
heildarmyndin sé þó svo miklu
stærri. „Til að skapa verðmæti
úr auðlindinni þarf hæft fólk,
góð skip, þróaðar vinnslur,
mikla þekkingu, færni og rann
sóknir, öflugar samgöngur og
mikið markaðsstarf. Allir þessir
þættir eru mikilvægir við verð
mætasköpun og því er mikil
vægt að horfa á greinina í heild.“
umhverfisvernd og góð
umgengni um auðlindina
Starfsfólk LÍU er að vinna að
stefnu mótun og er um nokk
TexTi: Svava JÓnSdÓTTir Mynd: líÚ
Stjórn LÍÚ.