Frjáls verslun - 01.11.2013, Blaðsíða 103
FRJÁLS VERSLUN 11. 2013 103
urra mánaða verkefni að ræða.
„Við erum í mikilli vinnu
við að móta stefnu okkar til
fram tíðar og skoðum í því
sambandi allt sem viðkemur
sam tökunum hvort sem það er
innra starf, ásýnd, áherslur eða
stjórnskipulag.“
Kolbeinn segir að starfsfólkið
reyni að upplýsa almenning
um sjávarútveginn og að
mikið sé unnið við að koma
upp lýsingum um fyrirtæki og
aðildarfélög LÍU á fram færi.
Kolbeinn segir að stefnu mót
unarvinnan sé knúin áfram
af sjónar miðum tengdum
samfélagslegri ábyrgð. „Við
telj um okkur vera í mjög sterkri
stöðu hvað það varðar. Það er
verið að vinna að kerfi fiskveiða
sem er ákaflega umhverfisvænt
í tengslum við fyrirtæki sem
hafa marga í vinnu og styðja
vel við nærsamfélag sitt og
samfélagið allt. Það hlýtur
að vera grundvallarmál í
stefnu samtaka eins og LÍÚ
að leggja áherslu á þessi mál.“
Kol beinn segir allt starf sam
takanna byggjast á vernd un og
sjálfbærri nýt ingu auðlinda.
„Stefnan er klárlega mjög
eindregin um hverfis verndar
stefna sem kristallast annars
vegar í fisk veiði stjórnunar
kerfinu og hins vegar verndun
hafsins, hvort sem það tengist
meng unarvörnum, góðri um
gengni í landi eða öðru. Ég leyfi
mér að fullyrða að aðildarfélög
LÍÚ séu einu félögin á landinu
sem ekki þurfa að standa
straum af úrvinnslugjaldi þar
sem sett hafa verið á laggirnar
kerfi þar sem félögin sjálf taka
ábyrgð á umhverfismálum í
sam vinnu við yfirvöld með eyð
ingu, förgun og losun á þeim
efnum sem frá þeim koma.“
Á réttri leið
Kolbeinn segist telja að það
sé bjart framundan í sjávar út
veginum. „Fiskstofnar eru í
góðri stöðu mikið til og fyrir
tækin eru mörg hver í sterkri
stöðu þótt það sé alls ekki
algilt. Það er mikil nýsköpun í
grein inni sem eykur verðmæta
sköpun þannig að ég held að
maður horfi björtum augum á
framtíðina.“
Hvað varðar næstu tvö ár
segist Kolbeinn halda að at
vinnu greinin muni halda
áfram að styrkjast og eflast og
skapa gjaldeyri og tekjur inn í
sam félagið til að halda áfram
að byggja það upp. „Maður
hefði viljað sjá uppbygginguna
al mennt ganga hraðar frá
skellinum 2008, en ég held að
þetta sé á réttri leið og á næstu
tveimur árum náum við von
andi að hífa okkur upp úr
þessu og getum horft björtum
aug um fram á veginn.“
„Íslenskur sjávarútvegur
á núna mikla möguleika
á því að færast yfir á
nýtt stig sem felur í
sér fleiri tækifæri en í
veið um og þróun á mat
vælum,“ segir Kolbeinn.
LÍÚ
velta 2013: fjöldi starfsmanna: níu
Framkvæmdastjóri: Kolbeinn árnason
Stjórnarformaður: adolf Guðmundsson
Stefnan: að vera heildarsamtök útvegsmanna og málsvari
þeirra í almennum hagsmunamálum. að stuðla að framförum í
sjáv arútvegi. að stuðla að sjálfbærri og hagkvæmri nýt ingu
fiskstofna og vinna að umhverfismálum. að gæta hags muna
útvegsmanna við gerð kjarasamninga. að taka þátt í alþjóða
samstarfi og gæta hagsmuna útvegsmanna við samningsgerð
íslenska ríkisins við önnur ríki. að annast samninga við vátrygg
ingafélögin um iðgjöld og fjárhæðir fiskiskipa og semja um
kostn að við veitta aðstoð og björgunarlaun. að vera í forsvari
við rekstur mála fyrir dómi og gagnvart stjórnvöldum er snerta
sérstaklega hagsmuni og réttindi félagsmanna.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna: „Við viljum haga vinnu við veiðigjöld þannig að sátt megi
skapast um greinina þannig að fólk hætti að rífast um sjávar útveginn og verði stolt af honum og ánægt með hvað hann skaffar mikið til
sam félagsins.“