Frjáls verslun - 01.11.2013, Blaðsíða 105
FRJÁLS VERSLUN 11. 2013 105
Á leið á hlutabréfamarkað
aðstoðar. Við rýndum sjálf gögn
og kannanir auk þess sem við
ræddum við mikinn fjölda við
skiptavina. Í þeim samtölum
kom margt áhugavert fram þar
sem viðskiptamenn mátu okkur
jafnvel betur á mörgum sviðum
en við gerðum sjálf. Að sama
skapi fengum við dýrmætar
ábendingar um það sem við
gæt um gert betur. Þar bar hæst
ákall þeirra um frumkvæði og
einfaldleika.“
Hermann segir að hjá Sjóvá
starfi samstilltur og öfl ugur
hópur starfsfólks þar sem
kynja hlutföll, aldur, mennt
un og starfsaldur er í góðu
jafn vægi. „Niðurstöður starfs
ánægju könnunar og könnunar
á frammistöðu stjórnenda voru
einnig sérlega ánægjulegar. Á
hvorum tveggja vígstöðvum
skorum við mjög hátt og langt
yfir meðaltölum. Í mínum huga
er þetta ekki síður dýrmætt en
góð niðurstaða í fjárhagslegum
þáttum. Það má meira að segja
halda því fram að starfsánægja
skapi grunn að betri fjárhags
leg um niðurstöðum þar sem
allt snýst þetta um gæði og
upp lifun viðskiptavina af þjón
ustu okkar.“
Hefur náð fyrri stöðu
Hermann segir að starfsfólk
Sjóvár sé á kafi í undirbúningi
fyrir skráningu fyrirtækisins á
hluta bréfamarkað.
„Það verður eðlilega í for
gangi hjá okkur fram á vor. Allt
frá því nýir eigendur komu að
félaginu 2011 hefur vilji þeirra
staðið til þess að skrá félagið á
hlutabréfamarkað. Þessi skýra
stefna hefur hjálpað okkur í
framkvæmdastjórn við allar
ákvarðanatökur og mark miða
setningu. Það ríkir mikill metn
aður hjá bæði stjórn og stjórn
endum að gera vel og standast
þannig væntingar eigenda og
starfsmanna og væntanlegra
fjárfesta við skráningu. Á undan
förnum árum hefur gríðarlega
margt áunnist og nú er svo
komið að Sjóvá hefur náð fyrri
stöðu. Allir helstu mæli kvarðar
eru á góðum stað.
Ég hef enga ástæðu til að ætla
annað en viðtökurnar verði
góðar bæði ef litið er til þeirra
félaga sem þegar hafa skráð
sig á markaði undangengið
ár og svo líka þegar litið er til
afkomu, rekstrar og innviða hjá
Sjóvá.“
Hagkvæmt að huga að
umhverfinu
Sjóvá hefur sett sér stefnu um
samfélagslega ábyrgð og lítur
svo á að félagið skuli starfa í
sátt við samfélag og umhverfi
því það stuðli að vexti og
viðgangi félagsins til framtíðar.
„Við leggjum áherslu á for
varnir í samvinnu við við
skipta vini okkar og viljum
með faglegu og mark vissu
forvarnastarfi lágmarka áhættu
og tjón. Við erum aðal styrktar
aðili Slysavarna félagsins
Lands bjargar og styðjum við
fjöl breytt verkefni þess, enda
er það á sömu línu og við; að
lágmarka tjón og fyrirbyggja
slys. Við styðjum einnig við
íþróttastarf, bæði sem aðili að
ólympíufjölskyldunni og við
barna og unglingastarf um allt
land. Við höfum einnig verið
aðalstyrktaraðili Kvennahlaups
ÍSÍ frá upphafi hlaupsins.
Í stefnu okkar um samfélags
lega ábyrgð leggjum við
áherslu á að starfa í sátt við
umhverfið. Við höfum verið
í fararbroddi í endurnýtingu
vara hluta við tjónaviðgerðir á
ökutækjum án þess þó að það
komi á nokkurn hátt niður á
gæðum viðgerða. Hvað varðar
okkar innra starf höfum við
jafnhliða betri nýtingu á hús
næði tekið stærri skref í að
fyrirbyggja sóun og auka
endur vinnslu. Við fækkuðum
til að mynda prenturum í
notkun í höfuðstöðvunum úr
50 í níu og minnkuðum prent
un um 52% á 13 mánuðum. Við
höfum því minnkað pappírs
notkun um þrjú tonn á þessu
rúma ári. Við flokkum nú allt
sorp og starfs fólk hefur tekið
mjög vel við sér enda flestir
vanir því að flokka heima.“
Langtímahugsun og
auðlindir
Hermann segist alltaf vera bjart
sýnn um áramót og um leið
þakk látur fyrir árið sem er að
líða.
„Þótt vissulega séu óvissu
þættir uppi eins og lausir kjara
samningar og óvissa í efnahags
og gjaldeyrismálum má samt
segja að ef við berum gæfu
til að vinna saman að leiðum
til bættra lífskjara þá eru fá
lönd sem hafa í raun og sann
jafnmikið til að bera, með tilliti
til auðlinda og innviða, og við
höfum hér. Ef vel er á haldið
geta þau bætt lífskjör okkar til
langrar framtíðar. Helsti veik
leiki okkar er hversu mikið
okkur greinir á um grunnstoðir
í sam félaginu. Leiðirnar eru
örugglega nokkrar sem hægt
er að velja en við getum ekki
umturnað þeim á nokkurra
ára fresti. Við þurfum að koma
okkur saman um leiðir í grund
vallarþáttum og halda okkur
við þær til a.m.k. 20 ára og við
munum uppskera mun betur
en annars.“
Hermann segist hafa þær vænt
ingar til næstu tveggja ára að það
náist stöðugleiki á vinnu markaði
ásamt stöðugu verð lagi og lækk
andi vöxtum.
„Ég vona að gjaldeyrishöftum
verði aflétt í skrefum á næstu
tveimur árum og sala ríkiseigna
lækki skuldir ríkisins. Vonandi
tekst okkur að nýta auðlindir
okkar þannig að þær skapi
okkur tekjur til langs tíma og
með sjálfbærum hætti. Þarna á
ég helst við orkuauðlindir og
sjávarútveg sem hafa og munu
skapa okkur mikil gæði. Sama
má segja um ferðaiðnað en þar
stöndum við á krossgötum í
þeim skilningi að mikilvægt er
að höfða til ferðamanna sem
eru tilbúnir að borga fyrir gæði.
Það er gríðarlega mikilvægt
að nú verði skapað svigrúm
til aukinnar framleiðslu og út
flutnings. Það mun bæta hag
okkar allra.“
„Það má halda því
fram að starfsánægja
skapi grunn að betri
fjár hagslegum niður
stöðum þar sem allt
snýst þetta um gæði og
upplifun viðskiptavina
af þjónustu okkar“.
SjÓvÁ
velta 2013: heildariðgjöld 2012 voru 12,7 milljarðar
Fjöldi starfsmanna: 179 stöðugildi
Framkvæmdastjóri: hermann Björnsson
Stjórnarformaður: erna Gísladóttir
Stefnan: hlutverk: við tryggjum verðmætin í þínu lífi
Framtíðarsýn: sjóvá er tryggingafélag sem þér líður vel hjá.
StJóRN SJóVÁR: Frá vinstri: Kristín Haraldsdóttir, Erna Gísladóttir
stjórnarformaður, Heimir V. Haraldsson, Ingi Jóhann Guðmunds
son og tómas Kristjánsson varaformaður.
Ágústa Björg Bjarnadóttir
mannauðsstjóri Sjóvár.
Mynd frá Sjóvár – deginum
okkar.