Frjáls verslun - 01.11.2013, Side 109
FRJÁLS VERSLUN 11. 2013 109
umhverfi, uppbygging og
skipulag
Ferðamálastofa hefur með
hönd um rekstur Fram kvæmda
sjóðs ferðamannastaða, en
sér skipuð stjórn ber ábyrgð
á til lagnagerð til ráðherra
um úthlutanir. Árið 2014 eru
sjóðn um ætlaðar um 260 m.kr.
og ljóst að mikil vinna bíður
sjóðs stjórnar að fara yfir þær
fjöl mörgu umsóknir sem berast
munu vegna framkvæmda á
ferða mannastöðum.
Mýmörg önnur spennandi
verk efna bíða okkar á þessu
sviði. Árið 2013 lauk for verk
efni um kortlagningu auðlinda
ferðaþjónustunnar í fimm
sveitar félögum sem umlykja
Mýr dalsjökul og stefnt er að því
að þessari kortlagningu ljúki á
lands vísu árið 2014. Um er að
ræða metnaðarfullt verkefni
sem mun verða mikilvægt tæki
fyrir hagsmunaaðila í skipu
lagsvinnu, stefnumótun og
vöru þróun innan ferða þjón ust
unnar.
Vel heppnað ferða mála -
þing og spennandi verkefni
Ferðamálastofa hélt Ferðamála
þing í október 2013 í samvinnu
við Skipulagsstofnun. Þingið
tókst afar vel og eins og ævin
lega þegar nýr kunn ings skap ur
þróast hafa þessar tvær stofnanir
fundið að þær eru oft að vinna á
svipuðum slóð um. Við horfum
spennt til frekara samstarfs, s.s.
innan vinnu Skipulagsstofnunar
að land skipu lagi.
Fjármögnun uppbyggingar
Ekki má heldur gleyma þeirri
mikilvægu umræðu sem nú
á sér stað um fjár mögn un á
uppbyggingu og við haldi
ferðamannastaða. Ferða mála
stofa fékk á síðasta ári ráð
gjafar stofuna Alta til að vinna
skýrslu um þessi mál, þar sem
mismunandi kostir voru metnir
m.t.t. íslenskra aðstæðna.
Ríkis stjórnin hefur síðan sam
þykkt að koma skuli á ein hvers
konar aðgangspassa að ferða
mannastöðum, sem seldur
verði og ágóðinn látinn renna
til þessarar fjármögnunar.
Þróun slíks passa er talsvert
flókið verkefni sem krefst
að komu fjölmargra aðila og
mikils samstarfsvilja.
Ferðamálastofa á fulltrúa í
samráðshópi um verkefnið og
mun árið 2014 ekki láta sitt eftir
liggja til að finna megi leið til
að tryggja farsæla þróun þess
ara mála.
Öflun grunngagna um
fjölda ferðamanna og
ferðahegðun
Ferðamálastofa sinnir taln ing
um ferðamanna á Kefla víkur
flugvelli og hefur jafn framt
staðið fyrir könn unum meðal
erlendra ferðamanna, þar
sem kannaðar eru væntingar
þeirra, sem og upplifun þegar
til lands ins er komið. Á árinu
2013 var mörkuð sú stefna að
þessar kannanir yrðu fram
kvæmdar með reglu bundnu
hætti á ársgrund velli, þannig
að hægt væri að bera saman
ferðahegðun gesta á mis
mun andi tímum árs. Árið
2013 stóð Ferðamála stofa
einn ig fyrir þarfagrein ingu
um rannsóknir í þágu ferða
þjón ustunnar. Í kjöl farið hafa
umræður um eftir fylgni við
skýrsluna hafist á vegum at
vinnuvega og nýsköpunar
ráðu neytis og við munum m.a.
leggja áherslu á stuðning við
þolmarkarannsóknir árið 2014.
unnið að langtímasjálf-
bærni
Fyrir öllu er nú að ná jafnvægi
í vexti og viðgangi, þ.e. að
fjölgun ferðamanna og upp
bygg ing haldist í hendur; að
við stjórnum vextinum frek ar
en að láta stjórnast af hon
um. Að verkefninu kem ur
atvinnu greinin sjálf auð vitað
með fullum krafti enda ferða
þjón ustuaðilar vel meðvitaðir
um nauðsyn þess að hugsa til
langs tíma með sjálfbærni að
leiðarljósi.
Mikilvægt er að á næsta ári
verði aðkoma hins opin bera
vandlega greind og endur mót
uð með hliðsjón af auknu mikil
vægi atvinnugreinarinnar, ekki
síst m.t.t. stuðnings við einstaka
landshluta. Að ferðamálum
koma fjölmargar stofnanir,
sem hafa borið gæfu til að
vinna saman að verkefnum. Ég
nefni sérstaklega Íslandsstofu
með sína eftirtektarverðu og
marg verðlaunuðu nálgun að
markaðsmálum og Nýsköp
unar miðstöð með sín fjölmörgu
þróunarverkefni. Við þurfum
að hámarka samlegð hjá hinu
opinbera og tryggja faglegan
stuðning við greinina.
Ferðamálastofa hefur í öllu
kynn ingarstarfi sínu lagt
áherslu á gæði, sjálfbærni og
fag mennsku í starfsemi ferða
þjónustufyrirtækja, en einnig
á mikil vægi þess að gengið
verði um auðlindir ferða þjón
ustunnar, náttúru, menn ingu
og samfélag, með langtíma
hags muni og sjálf bærni að
leiðarljósi.“
„Ferðaþjónustan er ein
okkar allra mikilvægustu
atvinnugreina; minna
má á að ferðaþjónusta
var á árinu 2012 önnur
stærsta gjaldeyris
skap andi atvinnugrein
Íslendinga og margt sem
bendir til þess að hún
verði árið 2013 sú sem
mests gjaldeyris aflar.“
Vatnajökulsþjóðgarður er meðal þátttakenda í VAKANUM, gæða
og umhverfiskerfi ferðaþjónustunnar. Á myndinni er starfsfólk
þjóðgarðsins ásamt ólöfu Ýrr Atladóttur ferðamálastjóra, þegar
staðfesting þess efnis var afhent.
Starfsfólk Ferðamálastofu í kynnisferð á Suðurlandi.
ólöf Ýrr Atladóttir
ferðamálastjóri heldur erindi á
Ferðamálaþingi 2013.