Frjáls verslun - 01.11.2013, Side 113
FRJÁLS VERSLUN 11. 2013 113
tekur til nýrra og eldri íslenskra
leikrita og leikgerða sem og
ann arra sviðsverka og það hef
ur gengið eftir öll árin.
Jafn framt er boðið upp á
nokk urt úrval nýrra og eldri
erlendra verka sem þykja eiga
erindi. Söngleikir eru færðir
upp nokkuð reglulega í Þjóð
leik húsinu, nú síðast voru það
Vesa lingarnir og naut sú sýning
mikilla vinsælda.
mjög öflugt barnastarf
Áskilið er í leiklistarlögum
að Þjóðleikhúsið færi upp að
minnsta kosti eina sýningu sem
sér staklega er ætluð börnum á
hverju ári, en barnastarf í hús
inu var mun öflugra en svo,
enda sérstakt áhersluatriði að
sinna þessum aldurshópi sér
staklega. Þjóðleikhúsið hélt
upp á aldarafmæli leikhús
lista manns ins Thorbjörns
Egn ers með því að sýna tvö
verka hans, Dýrin í Hálsaskógi
og Karíus og Baktus. Leikrit
Thor björns Egners hafa verið
eftir læti ungra leikhúsgesta á
Íslandi í yfir hálfa öld og fyrsta
leikhús minning margra okkar
tengist einmitt töfraveröld
hans. Kúlan, sérstakt barnasvið
ætlað fyrir minni sýningar og
nýja leikhús reynslu, var opn
uð árið 2006. Þangað hefur
öllum börnum í eldri deild um
leikskóla á höfuð borgar svæð
inu verið boðið á Sögu stund
á hverju hausti, auk þess sem
þar hafa verið frum sýnd fjöl
mörg smærri barna leikrit, mörg
hver skrifuð sér staklega fyrir
Kúluna. Starfið í Kúlunni fékk
á árinu viður kenningu IBBY
á Íslandi ein mitt fyrir þetta
öfluga starf og markvisst leik
húsuppeldi. Á síðasta ári var að
auki opnað sérstakt brúðusvið
í Þjóð leik húsinu, Brúðuloftið,
þar sem brúðu gerðar meistarinn
Bernd Ogrodnik sýnir brúðu
sýningar sínar. Leitin að jól
unum, aðventu sýning Þjóð
leik hússins, sem jafnframt er
eins konar ferða lag um leik
hús bygg ing una, hefur að auki
verið árviss viðburður undan
farin ár, auk sýninga á stærri
verkum á stóra sviðinu.
Samstarfsverkefni við
landsbyggðina
Á þessu leikári eru samtals tíu
mismunandi barnasýningar
sýndar í Þjóðleikhúsinu, eða
þriðjungur þess sem boðið
er upp á í verkefnaskrá leik
hússins. Þjóðleikhúsið stendur
einnig að öflugu starfi í þágu
ungmenna, ekki síst á lands
byggðinni, með sam starfs
verkefninu Þjóðleik, sem ýtt
var úr vör fyrir sex árum að
frum kvæði Þjóðleikhússins og
í samstarfi við menningarráð
og sveitarfélög á Austurlandi.
Þjóðleikur er tvíæringur og
annað hvert ár er hald in
uppskeruhátíð með stór um
leik listarhátíðum á lands byggð
inni. Verkefnið hefur stöðugt
verið að stækka og á síðasta
ári náði Þjóðleikur til fjögurra
landshluta með þátttöku
mörg hundruð ungmenna og
stórar lokahátíðir voru haldnar
á Egilsstöðum, Akureyri og
Stokks eyri. Þjóðleikur hefur
mætt miklum velvilja á lands
byggðinni og fékk m.a. menn
ingar verðlaun Sambands sveitar
félaga á Austurlandi á árinu.
Þriðjungur þjóðarinnar
sækir sýningar
Þjóðleikhúsinu hefur verið
boðið að sýna sýningar sínar
á mörgum virtum leiklistar há
tíðum og leikhúsum undafarin
ár, svo sem á alþjóðlegu lista
hátíðinni í Bergen, Konunglega
leikhúsinu í Kaupmannahöfn
og Barbican Center í London.
Á síðasta ári barst leikhúsinu
svo boð um að sýna í stærstu
sviðslistamiðstöð Banda ríkj
anna; Kennedy Center í Was
hington, og hefur boðið verið
þegið, en Harmsaga eftir Mikael
Torfason verður sýnd þar í
marsmánuði. Reglulega koma
leikhússtjórar og óperu stjórar
til landsins til að sjá sýningar
Þjóðleikhússins og frammi
stöðu einstakra leik stjóra og
listamanna, svo það má því ætla
að starf semi Þjóð leikhússins
þyki eftirtektarverð og á pari
við það sem best gerist erlendis.
Sýningarferðir eru einnig
farnar innanlands, eink um til
Akur eyrar og þá í sam vinnu
við Leikfélag Akur eyrar eða
menningarhúsið Hof og núna í
janúar verður verð launaleikritið
Englar alheimsins sýnt í Hofi.
Frá því að Þjóðleikhúsið hóf
starfsemi fyrir tæpum 64 árum
hefur það verið rekið af miklum
metnaði og það má til sanns
vegar færa að Þjóðleikhúsið
eigi erindi við sitt fólk, það sést
best á því að um þriðjungur
þjóðarinnar sækir sýningar i
Þjóðleikhúsinu á ársgrundvelli.
Árið 2014 er síðasta starfsár
Tinnu Gunnlaugsdóttur sem
þjóð leikhússtjóri, en hún
ákveður þó verkefnaskrá leik
árs ins 2014 til 2015 fram á vor.
Að spurð segist hún vera að
skipuleggja mjög spennandi
leikár, auk þess sem hún leggi
metnað sinn í að skila góðu búi,
en gott jafnvægi hefur verið í
reksti leikhússins undanfarin
ár og reksturinn hallalaus, þrátt
fyrir skerta fjárveitingu.
ÞjÓðLeiKHÚSið
velta 2013: um 1.000.000
Fastir starfsmenn: tæplega 100
verkefnaráðnir starfsmenn: 100 á ársgrundvelli
Forstjóri/þjóðleikhússtjóri: tinna Gunnlaugsdóttir
Framkvæmdastjóri: ari matthíasson
Stjórnarformaður/formaður þjóðleikhúsráðs: ingimundur
sigfússon
Stefnan í einni setningu: að standa fyrir öflugu listrænu
starfi með því að bjóða upp á fjölbreytt úrval áhugaverðra
leiksýninga fyrir leikhúsunnendur á öllum aldri.
Reglulega koma leik hús
stjórar og óperu stjórar
til landsins til að sjá
sýningar Þjóð leikhússins
og frammi stöðu ein
stakra leik stjóra og
lista manna, svo það má
því ætla að starfsemi
Þjóð leikhússins þyki
eftir tektar verð og á pari
við það sem best gerist
erlendis.
Séð úr sal í lok sýningar á Englum alheimsins í desember 2013.
Starfsfólk Þjóðleikhússins í upphafi leikárs.
Mynd: Gunnar Ásgeirsson
Mynd: Eddi.