Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2013, Side 121

Frjáls verslun - 01.11.2013, Side 121
FRJÁLS VERSLUN 11. 2013 121 1. Ert þú með þig á hreinu? Bæði í þínu einkalífi og starfi. Þekkir þú styrkleika þína og veikleika? Hvernig vinnurðu með þá? 2. Hvernig er samskiptahæfni þín og geta til að hafa áhrif á aðra? Nærðu að virkja annað fólk með þér til góðra verka? 3. Hvernig er þín frammi - staða, í þínu hlutverki? Heldur þú vel utan um eigin verkefni og ábyrgð og axlar þá ábyrgð þegar á reynir? 4. Sýnir þú þá æskilegu hegðun sem þú ferð fram á hjá öðrum? Starfar þú í anda gilda vinnustaðarins og þinna gilda? 5. Skilarðu raunverulegum árangri eða ertu bara mjög „busy“? 6. Ertu fær um að viðu rkenna það ef/þegar þú gerir mistök, hefur rangt fyrir þér eða veist ekki hvernig á að leysa tiltekið verkefni? Ert þú viljugur til að endur- skoða aðferðir þínar, breyta þér og læra nýja hluti? 7. Hvaða mælanlegu markmið setur þú sjálfum þér? 8. Ert þú fyrirmynd? Það er nauðsynlegt að þú sért fær um að stjórna sjálfum þér, að vera leiðtogi eigin árang ­ urs, áður en þú ætlar að fara að stjórna eða vera leiðtogi annarra. Það að vera góður leiðtogi byrjar með innri vinnu hjá þér. Áður en þú getur farið að stjórna öðru fólki, teymum og árangri verðurðu að byrja á að vinna með sjálfan þig. Að stjórna með góðu hjartalagi (e. heart based leadership) Eins og allir vita er mikil krafa á stjórnendur, og auðvitað starfs ­ fólk allt, að ná árangri. Nýlega hafa þó komið fram rannsóknir sem sýna fram á 20% minni framleiðni íslensks vinnuafls en í samanburðarlönd­ um og að um það bil 25% ís­ lensks vinnuafls séu óvirk í vinn­ unni. Þetta eru stórar tölur sem reikna má yfir í mikinn kostnað og þar með minni árangur. Velta má vöngum yfir hvort, þegar farið var fyrir einhverj­ um árum að hugsa meira og með skipulagðari hætti um árangur og að beita meir og betur kerfisbundinni frammi ­ stöðustjórnun, við höfum farið of langt í ferlana á kostnað tengsla við starfsfólk. Fyrr ­ greindar rannsóknir, sem eru frá árinu 2012 og 2013, benda einnig á að samband starfsfólks við sinn næsta yfirmann eru lykilatriði þegar kemur að virkni og tryggð. Það að stjórna með góðu hjarta lagi (hér er ekki verið að segja að einhvern tíma hafi verið stjórnað með slæmu hjarta lagi en að hugsanlega hafi verið slagsíða á jafnvæginu milli ferlanna og hjartalagsins) og styrkja samband við starfs­ fólkið þýðir ekki að við eigum að gefa einhvern afslátt af kröfum um árangur, hvorki hjá okkur sjálfum né öðrum. Við þurf­ um að ná góðri framleiðni og virkni hjá starfsfólki svo rekstr ­ arniðurstöður verði í samræmi við sett markmið. Er hugsanlegt að við náum frekar þeim árangri sem stefnt er að ef við blöndum hjartanu og kerfisbundnu nálg­ uninni betur saman? Erum við enn og aftur að koma að mikil­ vægi góðrar og uppbyggilegrar endurgjafar og stuðnings? Er hugsanlega meiri skilningur á erfiðum ákvörðunum sem þarf að taka og fréttir að flytja ef maður hefur fyrst sýnt fram á að vera leiðtogi eigin árangurs og að kröfur um árangur byggist á stjórnun sem taki mið af góðu hjartalagi? Stjórnum með góðu hjartalagi, veitum reglulega og góða endurgjöf, hvatningu og stuðning og gefum þannig starfsfólki tækifæri til að verða betra í sínu starfi, eiga betra samband við næsta yfirmann og ná þannig meiri árangri. Er kannski líka hugsanlegt að hægt sé að verða betri stjórnandi eða leiðtogi, sem nær jafngóðum eða betri rekstr ar niðurstöðum, með því að hugsa hlutina upp á nýtt, þ.e. hvernig við stjórnum og tökum ákvarðanir? Getur verið að með því að stjórna meira út frá því sem er innra með okkur en því sem er í ytra umhverf­ inu sé líklegra að við njótum meira trausts, upplifum sterkari tengingu og tilgang, meira jafnvægi og minni streitu? Að minnsta kosti birtast nú æ fleiri greinar í Harvard Business Review (einu mest lesna tíma ­ riti heims á sviði viðskipta og stjórn unar) um hvernig stjórn­ endur þurfa að líta meira inn á við, vera betur með á hreinu hverjir þeir eru og fyrir hvað þeir vilja standa áður en þeir fara að stjórna og hafa áhrif á aðra. Æ fleiri rannsóknir birtast sem segja að til að ná meiri áhrifum og eiga auðveldara með að hrífa aðra með sér þurfi að byrja á að mynda tengsl við fólk. Fólk er reiðubúnara að fylgja leið­ toga eða stjórnanda þar sem góð tengsl eru fyrir hendi. Tengsl, hlýja og áhugi á fólki eru svo lykilatriði við að byggja upp traust. Ein nýleg erlend rannsókn (HBR, nóv. 2012) sýnir fram á að fleiri starfsmenn treysti bet ur ókunnugum einstaklingi sem þeir mæta á götu en eigin yfir ­ manni. Indra Nooyi, forstjóri PepsiCo, sem nýlega var stödd hér á landi, sagði í ávarpi sem hún flutti þegar hún var hér að til þess að ná árangri þyrfti hug, hjarta og hönd. Jafnframt að hjarta okkar yrði að vera með í því sem við gerðum, annars væri það ekki satt. Ef þessar hugmyndir virka fyrir PepsiCo er þá ekki líklegt að þær eigi við í fleiri fyrirtækjum? • Notar þú hug, hjarta og hönd í þinni stjórnun og þegar þú tekur ákvarðanir? • Leyfir þú þér að tengjast fólki? (Auðvitað verða alltaf að vera einhver mörk en þau þýða ekki að engin tengsl megi myndast.) • Gefur þú þér tíma fyrir fólkið þitt, til að hlusta á það og kynnast því? Við erum búin að fara í gegn ­ um iðnbyltinguna, upplýsinga ­ byltinguna og nú er komið að byltingu tilgangsins. Sjáum við tilganginn í því sem við erum að gera og hvernig við stjórnum? Þeir sem fara með bein manna forráð gegna veigamiklu hlutverki við að bæta frammi ­ stöðu og árangur vinnustaða. Stór hluti af því er að vera með sjálfan sig og sitt á hreinu, að ná að vera leiðtogi yfir sjálfum sér og eigin árangri. Einnig að tengjast og vera til staðar fyrir sitt fólk, sýna því áhuga, tala við það og hlusta á skoðanir þess. Í eðlilegu framhaldi af því kemur svo að vera með skýr skilaboð, meta og mæla árang ­ ur, gefa gagnlega og uppbyggj ­ andi endur gjöf, hrósa og veita viðurkenningu. Notar þú hug, hjarta og hönd í þinni stjórnun og þegar þú tekur ákvarðanir?
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.