Frjáls verslun - 01.11.2013, Síða 133
FRJÁLS VERSLUN 11. 2013 133
Hvaða er brýnast að gera
í efnahagsmálum þjóðarinnar
árið 2014?
HVAð
SeGJA
ÞAu?
1. Hvað ertu ánægðastur
með í íslensku atvinnulífi
um þessi áramót?
Að vinnumarkaður og hagkerfi ð
allt hafa fengið að þokast í átt
að jafnvægi án stórkostlegra
inngripa af hálfu hins opinbera.
2. Hvaða fjögur skref er
brýnast að taka á árinu
2014 til að efla atvinnu
lífið?
Fyrir lítið land eins og Ísland
skipta greið viðskipti við útlönd
meginmáli. Ég tel mikilvæg
ast a) að höft á viðskiptum með
gjaldeyri verði afnumin og b) að
hugað verði að fyrirkomulagi
gjaldeyrismála, sem tryggi
meiri stöðugleika í gengi en
verið hefur hingað til. Þá þurfa
Íslendingar að sýna að þeim
sé treystandi í viðskiptum. Því
þarf c) að leggja af skatta sem
virðast beinast sérstaklega að
útlendum fjárfestum (banka
skatt, orkuskatt) og d) tryggja
að „erlendir kröfuhafar“ njóti
sömu réttinda og aðrir við þau
uppgjör sem framundan eru.
3. Hvaða mistök voru
gerð á árinu 2013?
Stóra skuldaleiðréttingin er sú
aðgerð sem líklegust er til að
leiða til vandræða þegar frá
líð ur, þó að hún virðist bæði
minni og betur útfærð en margir
óttuðust.
4. núna eru fimm ár liðin
frá hruninu, hvaða vænt
ingar hefur þú til næstu
tveggja ára?
Að efnahagslífið haldi áfram að
réttast við, hægt og örugglega.
5. framleiðni vinnuafls er
minni hér á landi en víða
í öðrum löndum. Hvað
þarf að gera til að auka
hana?
Ég held að fyrst og fremst þurfi
stöðugleika, svo að hægt sé að
gera áætlanir sem standast, og
þolinmæði (sem óvíst er að við
eigum).
Skuldaleiðrétting minni
en óttast var
sigurður jóhannesson,
hagfræðistofnun háskóla íslands:
Sigurður Jóhannesson.
„Ég tel mikilvæg ast
að höft á við skiptum
með gjald eyri verði
afnumin.“
Þorsteinn Víglundsson.
1. Hvað ertu ánægðastur
með í íslensku atvinnulífi
um þessi áramót?
Góður vöxtur í ferðaþjónustu
og eftirtektarverður árangur
ís lenskra sprotafyrirtækja er
meðal þess sem stendur upp
úr. Þá hillir vonandi undir lausn í
áralöngum deilum um sjávar
útveginn. Hagvöxtur hefur verið
betri en vonir stóðu til og gengi
krónunnar hefur verið stöðugt,
þökk sé breyttum vinnubrögð
um hjá Seðlabanka.
2. Hvaða fjögur skref er
brýnast að taka á árinu
2014 til að efla atvinnu
lífið?
Að ná verðbólgu og vaxtastigi
hér á landi niður. Að markverður
árangur náist í afnámi gjald
eyrishafta. Að okkur takist að
gera kjarasamninga sem styðja
við lægri verðbólgu og að það
takist að móta efnahagsstefnu
sem tryggir stöðugleika og
traustan hagvöxt.
3. Hvaða mistök voru
gerð á árinu 2013?
Ekki var gengið nægilega langt
í auknu aðhaldi í ríkisfjármálum.
Fyrstu skref fela ekki í sér
mikla breyt ingu frá ofurskatt
lagningu fyrri stjórnar, þvert á
móti er byggt á sama grunni
áfram og enn hækkaðir skattar
á atvinnu lífið, t.d. hvað varðar
trygg inga gjaldið og álögur á
fjár málafyrirtæki.
Aukið aðhald í ríkisfjármálum
skapar mikilvægt mótvægi við
verð bólguáhrifum skuldaleiðrét
tinga. Þar hafa stjórnvöld ekki
gengið nægilega langt og fyrir
vikið hafa verðbólguvæntingar
aukist á nýjan leik og skulda
tryggingaálag farið hækkandi.
4. núna eru fimm ár liðin
frá hruninu, hvaða vænt
ingar hefur þú til næstu
tveggja ára?
Það eru bjartari tímar fram
undan. Það er unnt að ná
verulegum bata í efnahagslífinu
ef það tekst að vinna bug á
verðbólgunni og koma á aukn
um stöðugleika. Heilbrigður
hagvöxtur á grundvelli aukins
útflutnings, samhliða stöðugu
gengi og lágri verðbólgu, er
grunnurinn að betri lífskjörum
hér á landi.
5. framleiðni vinnuafls er
minni hér á landi en víða
í öðrum löndum. Hvað
þarf að gera til að auka
hana?
Við þurfum að auka fjárfestingu
hér á landi umtalsvert. Aukinn
stöðugleiki mun skipta þar
miklu. Aukin fjárfesting skapar
tækifæri til hagræðingar og
aukinnar framleiðni á grunni
stöðugra efnahagsumhverfis.
Ná verðbólgu
og vöxtum niður
Þorsteinn víglundsson,
samtökum atvinnulífsins:
„Hagvöxtur hef
ur verið betri en
vonir stóðu til og
gengi krónunnar
hef ur verið stöðugt,
þökk sé breyttum
vinnubrögð um hjá
Seðlabanka.“