Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.2013, Side 160

Frjáls verslun - 01.11.2013, Side 160
160 FRJÁLS VERSLUN 11. 2013 2014 Stóri niðurskurðurinn kemur ekki niður á kvikmyndum sem ráðgert er að frumsýna á næsta ári en líta verður á að áætlanir standast ekki alltaf og algengt er að fresta sýningum af ýmsum orsökum en svona lítur listinn út eins og staðan er í dag. Vonarstræti. Leikstjóri: Baldvin Z. Vonarstræti gerist árið 2006 og fjallar um þrjá einstaklinga sem allir standa frammi fyrir stórum ákvörðunum í lífi sínu: Móri er fyllibytta og rithöfundur sem hefur nýlokið við að skrifa sjálfsævisögu sína. Hann berst við fortíðardrauga. Eik er ung móðir og leikskólakennari sem er flækt inn í vændi til að geta séð fyrir sér og dóttur sinni og Sölvi er frægur fyrrverandi knattspyrnumaður sem virðist vera á réttri leið í viðskipta­ heim inum áður en allt hrynur. Í aðal hlutverkum eru Þorsteinn Bach mann, Hera Hilmarsdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson. Borgríki II er framhald spennu ­ myndarinnar Borgríkis sem gerð var 2010, Ólafur De Fleur Jóhannesson leikstýrir. Gunnar er sem fyrr ein aðalpersónan. Nú hefur hann misst veldi sitt til Sergejs og er í hefndarhug. Hannes, ungur og upprennandi lögreglumaður, fær nýja stöðu í innra eftirliti lögreglunnar og ætlar að taka til hendinni. Hann fær ábendingu um spilltan yfir mann og ákveður að fylgjast með honum til að koma einnig höndum yfir Sergej og gengi hans. Í helstu hlutverkum eru Ingvar Eggert Sigurðsson, Darri Ingólfsson, Ágústa Eva Erlends­ dóttir, Sigurður Sigurjónsson, Zlatko Krickic og Hilmir Snær Guðnason. Fúsi. Leikstjóri Dagur Kári Pét­ ursson. Titilpersónan er liðlega fertugur og býr einn með móður sinni. Líf hans er í afar föstum skorðum og lítið sem kemur á óvart. Hann minnir á unga sem hefur komið sér þægilega fyrir í hreiðrinu og hefur enn ekki haft kjark til að hefja sig til flugs. Þegar ung stúlka og kona á hans reki koma óvænt inn í líf hans fer allt úr skorðum og hann þarf að takast á við ýmislegt í fyrsta sinn. Gunnar Jónsson leikur Fúsa og hefur Dag ur Kári látið hafa eftir sér að hlutverkið sé skrifað fyrir hann. Harry og Heimir: Morð eru til alls fyrst. Leikstjóri: Bragi Þór Hinriksson. Einkaspæjararnir Harrý og Heimir fá þokkadísina Díönu Klein í heimsókn. Hún vill fá þá til að hafa uppi á föður sínum, sem virðist hafa horfið sporlaust á hálendi Íslands. Harrý og Heimir leggja í leiðang­ ur upp á hálendið og tekst að stöðva svívirðilegt samsæri danskra skíðaáhugamanna um að stela íslenska hálendinu og flytja það úr landi. Í aðalhlut ­ verk um eru Örn Árnason, Karl Ágúst Úlfsson og Sigurður Sigur jónsson. París norðursins. Leikstjóri: Hafsteinn Gunnar Sigurðsson. Myndin fjallar um Huga sem hefur fundið skjól frá flækjum lífsins í litlu kyrrlátu þorpi úti á landi, sækir AA­fundi, lærir portúgölsku og kann ágæt­ lega við sig í fámenninu. Þegar hann fær símhringingu frá föður sínum, sem boðar komu sína, er hið einfalda líf skyndilega í uppnámi. Í hlutverki Huga er Björn Thors. Sumarbörn. Leikstjóri: Guðrún Ragnarsdóttir. Sumarbörn fjallar um tvíburasystkinin Eydísi og Kára sem eru send á Silunga­ poll vegna heimiliserfiðleika og fátæktar. Börnin trúa því statt og stöðugt að dvölin verði stutt, en biðin veldur þeim síendurtekn­ um vonbrigðum. Dagarnir líða, en Eydís, með sinn sterka lífsvilja og lífsgleði, yfirstígur hverja hindrunina eftir aðra með ráðsnilld og dugnaði meðfram því að líta eftir Kára bróður sínum. Aðalleikkonan, Kristjana Thors, er sex ára og Stefán Örn Eggertsson, sem leikur Kára, var fimm ára meðan á tökum stóð. Grafir og bein. Leikstjóri: Anton Sigurðsson. Myndin fjallar um hjónin Gunnar og Sonju sem erfa hús úti á landi. Þegar þau koma á staðinn fer óhugnanleg atburðarás af stað sem lætur þau takast á við drauga fortíðarinnar. Með helstu hlutverk fara Björn Hlynur Haralds son, Nína Dögg Filippus dóttir, Gísli Örn Garðarsson, Ólafía Hrönn Jóns­ dóttir og Magnús Jónsson. „Sumarbörn fjallar um tvíburasystkinin Eydísi og Kára sem eru send á Silungapoll vegna heimiliserfi ð­ leika og fátæktar.“ Sumarbörn í leikstjórn Guðrúnar Ragnarsdóttur er ein þeirra kvikmynda sem áætlað er að frumsýna 2014. kVikMyndaárið 2013
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.