Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.01.2012, Page 14

Víkurfréttir - 05.01.2012, Page 14
14 FIMMTUdagUrInn 5. janúar 2012 • VÍKURFRÉTTIR Árið 2011 verður ekki lengi haft í manna minnum á Suðurnesjum þegar kemur að glæstum sigrum og framúrskarandi árangri. Auðvitað komu titlar á strendur Suðurnesja en oftar en ekki hafa stærstu lið svæðisins, körfuboltaliðin í úrvalsdeild, og knattspyrnuliðin sem einnig leika í efstu deild náð betri árangri. Hæst verður hafður í minnum árangur körfuboltans í Keflavík en hann verður sennilega ekki hægt að toppa. Afrekið sem Keflavíkurstúlkur unnu á síðasta tímabili var ótrúlegt og sennilega er um að ræða einhvers konar heimsmet. Keflavíkurstúlkur unnu alla Íslandsmeistaratitla sem voru í boði í vetur í 8 flokkum, frá 6. flokki upp í meistaraflokk. Liðin unnu líka alla bikarmeistaratitla nema einn og því er óhætt að segja að þetta hafi verið einstakt ár hjá stelpunum í Keflavík. Keflvíkingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í meistaraflokki eftir að hafa háð skemmtilegt einvígi við granna sína úr Njarðvík. Einvígið endaði 3-0 en leikirnir voru fjörugir og spennandi. Sannarlega glæsilegt að sjá lið frá sama bæjarfélaginu leika til úrslita í einni af stærstu íþróttum þjóðarinnar. Hjá körlunum komu engir titlar í hús en Keflvíkingar duttu út í undanúrslitum eftir ægilegt einvígi gegn KR-ingum, en þar varð lokastaðan 3-2. Njarðvíkingar töpuðu 2-0 gegn KR í 8-liða úrslitum og Grindvíkingar fóru sömuleiðis í frí eftir 8-liða úrslitin, en þeir máttu sætta sig við tap gegn Stjörnunni 2-1. Fjöldi einstaklinga sem urðu Íslandsmeistarar innan aðildarfélag ÍRB voru 214 á árinu 2011. Íslandsmeistaratitlar unnust í 9 íþróttagreinum hjá 5 íþróttafélögum. Hjá Njarðvík áttu fjórar deildir Íslandsmeistara og hjá Keflavík áttu fjórar deildir Íslandsmeistara. Þá áttu AIFS, Máni og Nes einnig Íslandsmeistara. Flestir urðu Íslandsmeistarar í körfuknattleik eða 93, og í sundi urðu 48 einstaklingar Íslandsmeistarar. Sú deild eða félag sem átti flesta Íslandsmeistara var körfuknattleiksdeild Keflavíkur, en þar urðu 65 einstaklingar Íslandsmeistarar og það ótrúlega gerðist á árinu 2011 að Keflavík vann alla Íslandsmeistaratitla í körfuknattleik sem í boði voru eins og áður segir. Grindvíkingar unnu titla á árinu. Reynir Berg Jónsson varð Íslandsmeistari í U17 í júdó í sínum þyngdarflokki, Björn Lúkas Haraldsson varð Íslandsmeistari U17 og Norðurlandameistari U17 í sínum þyngdarflokki og Ylfa Rán Erlendsdóttir varð Íslandsmeistari í unglingaflokki í taekwondó í sínum þyngdarflokki. Einnig varð 8. flokkur karla Íslandsmeistari í körfubolta karla. Körfuboltalið ÍG vann svo 2. deildina síðasta vor og leikur nú í 1. deild. Botnbarátta í Pepsi-deildum Fótboltaliðin riðu ekki feitum hesti þetta sumarið og eftirminnilegast er líklega hve ævintýralega Grindvíkingar björguðu sér frá falli úr úrvalsdeild karla með sigri í Eyjum í síðustu umferð. Keflvíkingar náðu 8. sæti Pepsi- deildarinnar en voru þó aðeins stigi fyrir ofan granna sína úr Grindavík. Breytingar urðu svo á þjálfaramálum beggja liða en Keflvíkingar ákváðu að semja ekki aftur við Willum Þór Þórsson og sömdu þessi í stað við heimamennina Zoran Ljubicic og Gunnar Oddsson. Grindvíkingar sömdu við hinn litríka, og oft á tíðum umdeilda, Guðjón Þórðarson en Ólafur Örn Bjarnason lét af þjálfun liðsins. Hann mun samt sem áður leika áfram með liðinu. Njarðvíkingar og Sandgerðingar voru lengi vel nálægt toppbaráttunni í 2. deild karla í knattspyrnu og svo fór að lokum að Njarðvíkingar rétt misstu af lestinni eftir spennandi lokaumferð þar sem þeir höfðu 6-4 sigur á grönnunum í Reyni. Víðsmenn og Þróttur Vogum léku í 3. deild þetta sumarið en áttu engu sérstöku gengi að fagna. Svo má ekki gleyma því að Óskar Örn Hauksson, Njarðvíkingurinn knái, var lykilmaður í Íslandsmeistaraliði KR í Pepsi-deild karla í sumar. Suðurnesjamenn eiga líka atvinnumenn í fremstu röð á Norðurlöndum eins og Loga Gunnarsson í körfuboltanum og Jónas Guðna Sævarsson í fótboltanum. Í kvennaboltanum féllu Grindavíkurstúlkur úr Pepsi- deildinni á markatölu eftir hetjulega baráttu. Þær byrjuðu tímabilið afar illa og flestir löngu búnir að afskrifa liðið. Seinni hluta móts léku þær þó skemmtilegan fótbolta og voru eins og áður segir grátlega nálægt því að halda sér uppi. Keflvíkingar höfnuðu í 2. sæti 1. deildar kvenna en liðið tapaði einvígi sínu gegn Selfyssingum um sæti í úrvalsdeild. Golfunnendur á Suðurnesjum fengu að njóta þess besta sem íslenskt golf býður upp á en Íslandsmótið í höggleik var haldið á Hólsvelli í Leiru seinni hluta júlímánaðar. Suðurnesjamenn gerðu hins vegar engar rósir á vellinum að þessu sinni þó að umgjörðin hafi verið frábær að öllu leyti. Hestamenn frá Mána áttu gott ár og þá sérstaklega Jóhanna útspark Ómar JÓhannsson Ómar Jóhannsson, markvörður og starfsmaður í Fríhöfninni sparkar pennanum fram á ritvöllinn. Þá er komið nýtt og betra ár og daglegt líf fer að komast í samt lag aftur eftir hátíðirnar. Allir búnir að éta yfir sig af kjöti, kalkún, ís og konfekti. Nú er tíminn sem flestir ætla að efna áramótaheitin sín um að fara í ræktina, taka mataræðið í gegn og ná af sér nokkrum kílóum. Maður er heppinn ef maður nær að hita upp á biluðu hjóli með einn pedala í ræktinni því að hlaupabrettin eru full af fólki sem ætlar að koma sér í toppform árið 2012. Ég er samt ekki að kvarta, ég veit að ég verð kominn með öruggt hlaupabretti í síðasta lagi í byrjun febrúar. Flestir leggja af stað í átakið með góðum ásetningi en fæstir fylgja því eftir lengur en í nokkrar vikur. Það verða bara þeir sömu eftir og voru þar fyrir jól og fyrir páska og jólin þar á undan. Reyndar með einhverjum undantekningum því það eru alltaf nokkrir sem fara alla leið og taka sig virkilega á, en þeir eru yfirleitt færri en þeir sem leggja af stað í upphafi árs. Svona átak er eins og fjallganga. Það er mjög ólíklegt að þú komist á toppinn ef þú byrjar á því að hlaupa upp hlíðina. Margir fara allt of geyst af stað í ræktinni og hreinlega sprengja sig. Það gæti verið gott að fara aðeins rólegar upp fyrsta hjallann og finna rétta taktinn. Það getur hjálpað mikið að fá leiðsögn frá einhverjum sem þekkir góða leið upp fjallið. Það hafa ekki allir efni á flottum einkaþjálfara sem væri best en internetið er sniðugur hlutur og ekki erfitt að finna allskyns upplýsingar þar sem gætu hjálpað. Það eru ekki margir sem klífa fjöll einir, fyrir utan að það er miklu skemmtilegra í góðum félagsskap. Þeir sem klífa fjöll hafa yfirleitt markmið, að komast á toppinn. Þeir sem setja sér markmið í ræktinni og stefna að einhverju aðeins meira áþreifanlegu en að komast í form (hringlótt er líka form segir góður vinur minn) eru mun líklegri til að ná árangri en hinir sem gera það ekki. Þeir ráfa bara um fjallshlíðina og borða nestið sitt á góðum stað. Vonandi verð ég ennþá hitandi upp á bilaða hjólinu um páskana. Það þýðir að ég ásamt nokkrum öðrum höfum enst í átakinu okkar. Öllum líður betur í hraustum líkama. Kannski verður svo hjólið lagað einhvern tímann og þá verða allir ánægðir. Annars er hægt að reyna aftur í janúar 2013 ef það gengur ekki. Gleðilegt ár ÁramÓtahEIt SUND - ÍRB Sundráð ÍRB auglýsir nokkur laus pláss á sundæfingar. Prufuæfingar eru í Vatnaveröld á miðvikudögum kl. 14:30-15:30 og er skráð í hópa þegar sundmenn hafa farið á eina prufuæfingu. Skráning fer fram hjá gjaldkerum deildanna frá miðvikudeginum 11. janúar 2012. UMFN: Herdís: sunddeild.umfn@gmail.com gsm: 6602481 og KEFLAVÍK: Hjördís hjordiskrist@gmail.com gsm: 8460621 Allar nánari upplýsingar á heimasíðum félaganna www.keflavik.is/sund og www.umfn.is/sund Margir hópar eru um það bil að fyllast, fyrstir koma fyrstir fá. Akurskólalaug Nokkur pláss laus Gullfiskar, Silungar og Laxar (2-9 ára) Sprettfiskar, Flugfiskar og Sverðfiskar (5-12 ára) Heiðarskólalaug Nokkur pláss laus Gullfiskar, Silungar og Laxar (2-9 ára) Sprettfiskar og Flugfiskar (5-11 ára) Njarðvíkurlaug Nokkur pláss laus Silungar/Laxar (3-9 ára) Sprettfiskar og Flugfiskar (5-11 ára) Vatnaveröld Sverðfiskar og Háhyrningar (7-13 ára) Eldri hópur (13 ára og eldri) Í Vatnaveröld æfa einnig afrekshóparnir okkar en sundmenn þurfa að ná ákveðnum árangri til að æfa með þeim. Árangur Keflvíkinga einstakur Íþróttaannáll SuðurneSja 2011 Guðmundur Steinarsson leikmaður Keflavíkur jafnaði og sló markamet föður síns í sumar þegar hann skoraði sitt 73. mark fyrir Keflavík. Á myndinni er hann með bol frá því hann jafnaði metið... Iceland Express-deildirnar af stað eftir jólafrí Í kvöld fer fram heil umferð í Iceland Express-deild karla þar sem ber hæst að nefna grannaslag Grindavíkur og Njarðvíkur sem fram fer í Grindavík í kvöld. Keflvíkingar fara í Breiðholtið og kljást við ÍR-inga. Í gær fór kvennakarfan af stað en þar lágu úrslit ekki fyrir þegar blaðið fór í prentun. Nánari upplýsingar um úrslit má nálgast á vf.is.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.