Víkurfréttir - 23.02.2012, Page 1
vf.is
Metan er innlendur
og umhverfisvænn
orkugjafi sem er
helmingi ódýrari
en bensín.
Nýttu þér kosti
metans með
Volkswagen.
K. Steinarsson – Njarðarbraut 13
420 5000 - heklakef@heklakef.is
Das Auto. TM
Opið allan
sólarhringinn
Fitjum
NÝTT
Morgunverðar-matseðill
Aðeins í boði áSubway Fitjum
14. tölublað • 32. árgangur • Fimmtudagurinn 7. apríl 2011
Mjódd - Salavegur - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær Skráðu þig á póstlistann á www.netto.is
989kr/stk.
Tilboðsverð!
339kr/stk.
Tilboðsverð!
Easy
ÞvoTTaEfni
aloE vEra
2.7 kg
Easy
MýkingarEfni
2 l
| www.flytjandi.is | sími 525 7700 |
VIÐ ERUM DAGLEGA Á FERÐINNI
MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND
Víkurfréttir ehf.
Grundarvegur 23 - 260 Reykjanesbær
Sími 421 0000 - Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17
Það er háspenna í körfuboltanum í Reykjanesbæ þessa dagana. Keflavík og KR eigast við í undan-
úrslitum Iceland Express-deildar karla í körfuknattleik og staðan í viðureign liðanna er 2:2.
Oddaleikur verður í viðureign liðanna í KR-heimilinu í Reykjavík í kvöld. Spennan er ekki minni
í úrslitaviðureign Keflavíkur og Njarðvíkur í kvennaboltanum. Þar er staðan reyndar orðin 2:0
fyrir Keflavík eftir tvo æsispennandi háspennuleiki. Keflavíkurstúlkur geta orðið Íslandsmeistarar
kvenna með sigri á Njarðvíkurstúlkum í Keflavík annað kvöld, föstudagskvöld. VF-mynd: HBB
Æsispennandi
körfuknattleikir
- sjá nánar á bls. 23
Víkurfréttir
Grundarvegur 23,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
F i m m t u d A G u R i n n 2 3 . F E B R Ú A R 2 0 1 2 • 8 . t ö l u B l A ð • 3 3 . á R G A n G u R
Holtsgötu 52 - 260 Reykjanesbæ
s. 420 5000 - Fax: 421 5946
Njarðarbraut 1 | Reykjanesbæ | 421 8808 |
www.bilahusid.is | bilahusid@bilahusid.is
Bílasala og þjónustuverkstæði
›› Óskar og Torfi með 677 kg á bala í risaróðri Adda afa GK:
Það voru heldur betur uppgrip hjá smábátasjómönnum sem gera út frá
Sandgerði nú í byrjun vikunnar. Bátar
sem gerðir eru út á línu fóru margir út
seint á sunnudagskvöldið og aðfaranótt
mánudags og voru þá að komast á sjó í
fyrsta skiptið eftir langvarandi brælu-
tíð. Þegar fyrstu balarnir voru dregnir
á mánudagsmorgun varð mönnum ljóst
að ævintýri var í uppsiglingu enda fór
svo að flotinn kom í land kjaftfullur af
fiski og þurftu nokkrir að fara fleiri en
eina ferð til að draga sína bala, svo mikið
var fiskiríið.
Óskar Halldórsson skipstjóri og Torfi
Torfason háseti á Adda afa GK sem er 9,6
brúttótonna bátur fóru grunlausir á sjóinn
og lögðu 36 bala. Frá ævintýri þeirra er
sagt á vefnum Aflafrettir.com. Þegar þeir
byrjuðu að draga þá var ljóst að eitthvað
stórt var í vændum því þeir gátu einungis
dregið 15 bala og þá var Addi afi GK orð-
inn kjaftfullur. Til Sandgerðis fóru þeir
og lönduðu 9,8 tonnum sem gerir 653
kíló á bala. Eftir löndun fóru þeir aftur á
sjóinn og náðu einungis að draga 14 bala
þá var báturinn aftur orðinn kjaftfullur.
Nú komu þeir til hafnar með um 9,4 tonn
sem gerir um 671 kíló á bala.
Þrátt fyrir tvær landanir hjá Adda afa GK
þennan daginn voru eftir 7 balar í sjó.
Skipverjar á Muggi KE tóku að sér að draga
balana og náðu reyndar einungis 6 bölum
en úr þeim fengust 4,5 tonn. Allt var þetta
stór og mikill þorskur allt yfir 10 kíló að
þyngd. Þessi risaróður gerði því 23.695
kíló og það gerir 677 kíló á bala. Aflaverð-
mætið var tæpar 8 milljónir.
Þessi risaróður er met á marga vegu. Fyrir
það fyrsta er þetta mesti afli sem smábátur
undir 10 brúttótonnum hefur fengið á
einum degi. Þetta má segja að sé líka mesti
afli sem smábátur hefur fengið í einum
róðri þótt hafi þurft að fara 3 ferðir til þess
að ná aflanum og slær þar með Íslands-
metið sem Dögg SU setti í fyrra. Auk þess
þurfti að fara þrjár ferðir til þess að ná
aflanum og það hefur ekki gerst áður að
bátur hafi þurft að fara þrjár ferðir til að ná
aflanum sínum.
Í Sjónvarpi Víkurfrétta á vf.is má sjá
myndir frá löndun smábáta í Sandgerði á
mánudagskvöld. Þar er einnig viðtal við
Halldór Ármannsson á Stellu GK en hann
var einn þeirra sem kom með fullan bát af
fiski að landi á mánudagskvöld.
Ævintýraleg þorskveiði
og Íslandsmetið slegið
Landað úr Adda afa GK í Sandgerði á mánudagskvöldið.
Ljósmynd: Aflafrettir.com / Gísli Reynisson
Í aflaskotinu á mánudag-inn voru nokkrir sem
þurftu að fara fleiri en eina
ferð til að klára að draga
línuna. Einn þeirra báta
sem fengu hvað mestan afla
á mánudaginn var Muggur
KE. Hann þurfti að fara tvær
sjóferðir á mánudaginn til
að draga sína 52 bala. Fyrri
ferðin hljóðaði upp á full-
fermi með 16,4 tonnum og
seinni ferðin gaf 14,4 tonn.
Aflaverðmæti Muggs KE var
um 10 milljónir króna. Sam-
tals komu 210 tonn á land í
Sandgerði hjá smábátunum
á mánudaginn.
30,8 tonn í
tveimur veiði-
ferðum sama
daginn