Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.02.2012, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 23.02.2012, Blaðsíða 2
2 FIMMTUdagUrInn 23. FEBrúar 2012 • VÍKURFRÉTTIR LAUST STARF Á HEIMILI FATLAÐS FÓLKS Framtíðarstarf Hæfniskröfur Í boði er: Umsóknum skal skilað til starfsmannaþjónustu, Tjarnargötu 12, eða á mittreykjanes.is fyrir 8. mars nk. Laun samkvæmt gildandi samningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög. Karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um. HÁTÍÐARTÓNLEIKAR Á DEGI TÓNLISTARSKÓLANNA Skólastjóri TÓNLEIKAR Skólastjóri ÞAKKIR TIL SJÁLFBOÐALIÐA Bæjarstjóri ›› FRÉTTIR ‹‹ Níu slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Suðurnesja og Slökkviliðinu á Keflavíkur- flugvelli settust í byrjun vikunnar á skólabekk. Framundan er 530 stunda nám sem nemendurnir inna af hendi næstu sex vikurnar og svo aftur í sex vikur að ári þegar seinni hluti námsins verður kláraður. Námið er bæði bóklegt og verk- legt en í náminu er mikil verkleg þjálfun að sögn Jóns Guðlaugs- sonar, slökkviliðsstjóra Brunavarna Suðurnesja. Námið er samstarfs- verkefni slökkviliðanna tveggja og samþykkt af yfirvöldum bruna- mála. Allir kennarar og leiðbein- endur koma einnig frá slökkvilið- unum sem standa að náminu. Þetta er í fyrsta skipti sem þessi tvö slökkvilið sameinast um þetta nám en áður hefur verið farið yfir sama námsefni í samstarfi við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Slökkvi- liðið á Akureyri. Jón Guðlaugsson sagði það vera mikla viðurkenningu fyrir Bruna- varnir Suðurnesja og Slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli að fá að bera ábyrgð á þessu umfangsmikla námi fyrir slökkviliðsmenn. Bæði mun námið nýtast slökkviliðsmönn- unum vel og þá er það góð endur- menntun og upprifjun fyrir þá sem koma að kennslunni. Sú nýbreytni á sér stað núna að námið verður allt tekið upp á myndband og mun það nýtast slökkviliðsmönnum hjá minni slökkviliðum úti á landi sem eiga þess ekki kost að senda nemendur í slökkviliðsmannanámið. Námið er dýrt, enda um daglegt nám að ræða frá kl. 08 á morgnana til kl. 17 síðdegis alla virka daga í sex vikur nú og aðrar sex vikur að ári. Steinþór Pálsson, bankastjóri L andsbankans, tók fyrir sl. helgi við áskorun frá Guð- mundi Péturssyni, stjórnarfor- manni Samtaka atvinnurekenda á Reykjanesi, þess efnis að Lands- bankinn leggi nýstofnuðu at- vinnuþróunarfélagi, Heklunni, til 50 milljónir króna á ári næstu 5 árin til öflugrar uppbyggingar atvinnulífs á Reykjanesi. Áskor- unin var afhent á opnum fundi sem Landsbankinn stóð fyrir í Stapa. Áskorunin er eftirfarandi: „Áskorun til Landsbankans – borin upp á opnum fundi í Stapa 16. febrúar 2012. Samtök Atvinnurekenda á Reykja- nesi (SAR), sem unnið hafa að eflingu atvinnulífs á Reykjanesi frá stofnun 2010, skora á Lands- bankann í forystuhlutverk um að leggja nýstofnuðu atvinnuþróunar- félagi, Heklunni, til fjármuni svo hefja megi atvinnuuppbyggingu á Reykjanesi af miklu afli. SAR leggur til að 50 milljónir verði tryggðar árlega næstu fimm ár til öflugrar uppbyggingar atvinnulífs á Reykjanesi“. Það er Guðmundur Pétursson, stjórnarformaður SAR sem skrifar undir áskorunina f.h. stjórnar Sam- taka Atvinnurekenda á Reykjanesi. Níu slökkviliðsmenn á skólabekk Meðfylgjandi mynd var tekin við skólasetningu á slökkvistöð Brunavarna Suðurnesja á mánudagsmorgun. Skorað á Landsbankann að leggja fé til uppbyggingar atvinnulífs á Reykjanesi Óviðeigandi en ekki áreitni Hátterni yfirmanns hjá Isavia, Stefáns Thordersen, að fara í heitan pott án sundfata í vinnuferð var með öllu óviðeigandi, að mati Hæstaréttar Íslands. Hins vegar geti það ekki talist sem kynferðisleg áreitni. Isavia var því sýknað af bótakröfu starfsmanns sem sagði á sér brotið. Hæstiréttur segir í dómi sínum að Isavia hafi tekið kvörtun starfs- mannsins alvarlega. Leitað hafi verið til tveggja lögmanna sem gáfu álit sitt á því hvort um væri að ræða kynferðislega áreitni og hvort atvikið varðaði fyrirvaralausri upp- sögn yfirmannsins. Var hvorugu til að dreifa að mati þeirra. Þrátt fyrir það áminnti Isavia yfir- manninn og var sérstaklega tekið fram í áminningunni að ætlast væri til að maðurinn tæki hana alvarlega og tryggði að slíkt endurtæki sig ekki. Rétturinn segir að ekki hafi verið færð fyrir því haldbær rök að Isavia hafi brotið á starfsmanni sínum í kjölfar kvörtunar vegna yfirmanns- ins, heldur bendi gögn málsins til þess að félagið hafi lagt sig fram um að gera það sem í valdi þess stóð til að starfsmaðurinn gæti sinnt starfi sínu eins og best varð á kosið. Týndir þú lyklakippu? Skilað var inn til lögreglu lyklakippu í liðinni viku. Á kippunni eru 5 húslyklar, Atl- antsolíulykill og auðkennislykill ásamt merki með liði úr ensku úrvalsdeildinni. Eigandi getur sótt lyklakippuna á lögreglustöð Hringbraut 130 Reykjanesbæ og fær þá afhenta ef hann greinir frá hvaða lið í ensku úrvalsdeildinni er átt við. Guðmundur Pétursson, stjórnarformaður SAR, afhendir Steinþóri Pálssyni, bankastjóra Landsbankans, áskorunina. VF-mynd: Hilmar Bragi HS Orka skilaði tæplega millj-arðs króna tapi á síðasta ári. Árið á undan varð hins vegar 865 milljóna króna hagnaður af rekstrinum. Þetta kemur fram í tilkynningu um ársreikning félagsins. Þar segir að tapið á síðasta ári megi einkum rekja til sveiflna á gengi krónunnar enda nam gengistap félagsins tæp- lega 850 milljónum króna á árinu. Hins vegar jukust tekjur HS Orku nokkuð á árinu eða um 6,3% og námu 7,3 milljörðum króna. Tæplega milljarðs tap á rekstri HS Orku í fyrra

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.