Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.02.2012, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 23.02.2012, Blaðsíða 8
8 FIMMTUdagUrInn 23. FEBrúar 2012 • VÍKURFRÉTTIR ›› Reykjanesbær: Mikið um dýrðir í Myllubakkaskóla Mikið var um dýrðir á opnu húsi í Myllubakka-skóla á föstudaginn síðastliðinn, en þá var þess minnst að 60 ár eru liðin frá því að skólinn var fyrst tekinn í notkun. Fjöldi sýninga var í skólanum í tilefni afmælisins sem nemendur stóðu fyrir. Bæði núverandi nemendur skólans og svo lögðu fyrrum nemendur fram hjálparhönd og lánuðu gamla muni til sýnis. Boðið var upp á kaffi og kökur og nem- endur sýndu skemmtiatriði á sal skólans. Skólinn var fagurlega skreyttur ýmiskonar listaverkum sem nemendur höfðu unnið á þemadögum sem staðið höfðu yfir vikuna fyrir afmælið. Gestir fengu af- hentan kynningarbækling við innganginn og fengu þeir sem vildu leiðsögn um skólann. Sýndar voru ljósmyndir frá skólalífinu í gegnum árin en aragrúi af ljósmyndum er til, þá sérstaklega frá tímabilinu 1970-1990. Stórt mósaíkverk var í vinnslu á föstu- deginum þar sem unnið var við gerð myllu sem er merki skólans. Gestir fengu þar að taka þátt og er þegar búið að finna verkinu stað á vegg í skólanum. Steinar Jóhannsson skólastjóri Myllubakkaskóla var afar ánægður með útkomuna og segir að viðbrögðin hafi farið fram úr björtustu vonum. „Við renndum nokkuð blint í sjóinn með þetta en þetta tókst afar vel í alla staði,“ sagði Steinar í samtali við Víkurfréttir. Fólk á öllum aldri kíkti í heimsókn á föstudeginum en sýn- ingin stóð yfir aðeins þann eina dag. „Við fengum ein- hverjar fyrirspurnir um hvort ekki væri hægt að lengja tímann á sýningunni en við vissum ekki hve margir myndu mæta. Það var þó fólk sem fékk að kíkja við um helgina og við tókum í raun ekki niður sýninguna fyrr en á mánudag,“ sagði Steinar en fjölmargir sjálfboða- liðar lögðu hönd á plóg til þess að þessi skemmtilega sýning yrði að veruleika. „Ég held að þetta hafi ekki verið gert áður. Á 50 ára afmæli skólans þá fórum við í skrúðgöngu og haldin var veisla en þetta var eitthvað sem við höfðum litla reynslu af.“ Leitað var ráða hjá hinum ýmsu einstaklingum í samfélaginu og hug- myndirnar komu úr ýmsum áttum. Fólk á öllum aldri sótti sýninguna en Steinar taldi að á bilinu 1000-1200 manns hafi heimsótt skólann og notið sýningarinnar. Skólinn leitaði til fyrrum nem- enda til að hafa upp á gömlum munum frá skólastarf- inu og Steinar segir viðbrögðin hafa verið frábær. „Það var gaman að fá mikið af 3-40 ára gömlum munum sem gerðir voru í handavinnu hérna í skólanum og eins vöktu gamlar vinnubækur mikla lukku,“ en ein- hverjir af núverandi nemendum skólans spurðu hvort það hefði verið meiri heimavinna í gamla daga. Það má líklega rekja til þess að margar af þessum gömlu bókum voru skreyttar með fallegum og vönduðum myndum eftir börnin en jafnan þurfti að teikna upp kort og fána tiltekinna landa í landafræðitímum. Skólanum hafa borist margar þakkarkveðjur en Steinar segir síðustu 2-3 vikur hafa verið undirlagðar af undir- búningi og vildi hann þakka þeim aðilum sem komu að þessari uppákomu vel fyrir. Í tilefni af því að hinir sívinsælu Honda CR-V jepplingar hafa verið í sölu hjá Bernhard ehf., í 15 ár, bauð fyrirtækið í samstarfi við þjónustuaðila Honda upp á nýja gerð af þjónustuskoðun fyrir Honda CR-V af árgerðum 2002- 2006. Þessi nýja þjónustuskoðun var boðin á landsvísu og lentu nöfn þeirra eigenda Honda CR-V bif- reiða, sem tóku þátt, í lukkupotti þar sem dregið var um tíu 50.000 króna eldsneytisúttektir hjá Olís bensínstöðvum um land allt. Þátttaka var það góð að Bernhard ehf., hyggst halda áfram að bjóða upp á nýjungar í þjónustuskoð- unum í framtíðinni. Þegar hafa 10 heppnir eigendur Honda CR-V verið dregnir úr lukkupotti og er það von okkar hjá Bernhard að eldsneytisúttektirnar komi sér vel fyrir þá heppnu. Á Suðurnesjum hlaut Jóhannes Krist- björnsson vinninginn og mætti hann í umboðið í Reykjanesbæ ásamt konu sinni, Guðrúnu Sigríði Jóhannesdóttur, og tók við vinn- ingnum. Eins og áður hefur komið fram hefur Honda CR-V verið í sölu á Íslandi í 15 ár og hefur á þeim tíma notið fádæma vinsælda enda traustur fjórhjóladrifinn, vel útbú- inn, rúmgóður jepplingur, sem nýt- ist frábærlega ört stækkandi hópi ánægðra viðskiptavina Bernhard ehf., hvort sem er við akstur innan- eða utanbæjar, segir í tilkynningu. Bernhard ehf., heldur upp á 50 ára afmæli sitt nú 2012 og verður bryddað upp á ýmsu til hátíða- brigða. Þar á meðal eru frumsýn- ingar á þremur nýjum bílum og má nefna nýjan Honda Civic í mars og Peugeot 208 á haustmánuðum. Bernhard ehf., hefur verið í eigu sömu aðila frá 1962 og setur það fyrirtækið í sérstöðu á sínu sviði. Boðið var upp á lukkuleikinn í samstarfi við Olís og hefur Olís bætt um betur og gefið frímiða frá matsölustaðnum Quiznos með hverjum vinningi. Finna má nöfn hinna heppnu á heimasíðu Bernhard ehf. Vann bensín fyrir 50.000 kr. í lukkupotti Bernhard Vinningurinn afhentur. F.v.: Erlingur Hannesson, Sverrir Gunnarsson, Guð- rún Sigríður Jóhannesdóttir og Jóhannes Kristbjörnsson. VF-mynd: Hilmar Bragi ›› 60 ára afmæli Myllubakkaskóla fagnað í Reykjanesbæ:

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.