Víkurfréttir - 23.02.2012, Side 7
7VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 23. FEBrúar 2012
›› Gamlar bæjarlífsmyndir gera lukku á Facebook:
•
Háskól-
HÆFNISKRÖFUR
» Háskólapróf sem nýtist í starfi
» Lipurð í mannlegum samskiptum
» Framúrskarandi skipulagshæfni
» Frumkvæði og sveigjanleiki í starfi
» Reynsla af verkefnastjórnun
Verkefnisstjóri
Reykjanes
Geopark Iceland
Heklan, Atvinnuþróunarfélag Suðurnesja, leitar að kraft-
miklum starfsmanni í krefjandi starf verkefnisstjóra um
stofnun og þróun jarðvangs á Reykjanesi. Um er að ræða
tímabundna ráðningu til 31.12.2013.
Verkefnið felst í því að leiða vinnu við stofnun jarðvangs á
Reykjanesi. Verkefnisstjóri tekur þátt í að skapa og ýta úr vör
áhugaverðu þróunarverkefni í ferðaþjónustu og vísindastarfi
á Reykjanesi.
SUÐURNES
Nánari upplýsingar veitir Berglind Kristinsdóttir
framkvæmdastjóri í síma 420 3288 eða berglind@sss.is.
Umsóknir skulu berast skrifstofu Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum,
Skógarbraut 945, 235 Reykjanesbæ, eða á berglind@sss fyrir 12. mars.
GARÐUR GRINDAVÍK REYKJANESBÆR VOGARSANDGERÐI
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Dreglar og mottur
á frábæru verði!
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum
Margar
stærðir
og gerðir
Breidd: 1 metri
Verð pr. lengdarmeter
1.795
Ódýrar mottur
40x60 cm frá kr.
399
PVC mottur 50x80 cm
1.490
Breidd: 66 cm
Verð pr. lengdarmeter
1.495
Gömul mynd af Dorró eða Þórðarsjoppu við Hafnargötu í Keflavík fer nú sem eldur í sinu
um samfélagsvefinn Facebook. Í ummælum við
myndina má greina fortíðarþrá og margar góðar
minningar frá gömlum tímum eru rifjaðar upp.
Myndin af Þórðarsjoppu birtist í samfélagi sem
heitir „Keflavík og Keflvíkingar“ en þar eru í dag
á áttunda hundrað myndir frá ýmsum tímum í
Keflavík.
Það var Árni Árnason sem tók myndina af Þórðar-
sjoppu á miðjum áttunda áratug síðustu aldar. Búið
er að nafngreina alla á myndinni nema konuna sem
stendur í útihurðinni.
Lengst til hægri sitjandi undir glugganum er Ásta
Grétarsdóttir. Við hlið hennar situr Ólafía Ólafsdóttir.
Þá situr Ólafía Þórey Sigurðardóttir við hlið hennar og
hjá henni stendur yngsta systir hennar, Pálína Hildur
Sigurðardóttir. Í vagninum er svo Guðmundur Rúnar
Hallgrímsson, sonur Ólafíu Þóreyjar og Hallgríms
Guðmundssonar. Guðmundur Rúnar er fæddur 30.
júlí 1975.
Sigurlaug Guðmundsdóttir skrifar á Facebook að
sjoppan hafi verið aðal unglingastaðurinn í Keflavík
frá 1960 til 1970 og jafnvel lengur. „Þetta hús er núna
sumarbústaður vestur í Dölum, sem við nokkrir af-
komendur Þórðar eiga“. Hún segir sennilegt að sjoppan
hafi heitið Þristurinn þegar þessi mynd var tekin því
það voru aldrei gardínur fyrir gluggunum í tíð Þórðar.
Ólafía Þórey Sigurðardóttir staðfestir að þarna hafi
sjoppan heitið Þristurinn sem systurnar Eva og Stef-
anía ráku saman ásamt Guðrúnu vinkonu þeirra.
Gamlar myndir í Víkurfréttir
Margar áhugaverðar myndir hafa verið að birtast
síðustu daga í samfélaginu „Keflavík og Keflvík-
ingar“ á Facebook. Víkurfréttir hafa áhuga á að
birta nokkrar af þessum myndum með góðfúslegu
leyfi ljósmyndaranna. Þá hefur blaðið áhuga á að
fá gamlar myndir frá Suðurnesjum frá lesendum
blaðsins þar sem rifjað er upp hvað er að gerast
á myndinni eða sagðar sögur frá þeim tíma sem
myndin er tekin. Myndir og frásagnir má senda á
Hilmar Braga fréttastjóra Víkurfrétta á póstfangið
hilmar@vf.is.
Svona var lífið
í Keflavík 1975
Þórðarsjoppa er núna sumarbústaður vestur í Dölum en nokkrir
af afkomendum Þórðar eiga húsið í dag.