Víkurfréttir - 23.02.2012, Page 12
12
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Við óskum Keflavík til hamingju með
bikarmeistaratitilinn í körfuknattleik
karla. Landsbankinn er stoltur bakhjarl
körfuknattleiksdeildar Keflavíkur og í
samstarfi við bankann hefur Keflavík
valið Krabbameinsfélag Suðurnesja til
að prýða búninga félagsins.
J
ó
n
s
s
o
n
&
L
e
’m
a
c
k
s
•
jl
.i
s
•
s
Ía
Til hamingju
Keflvíkingar!
Keflvíkingar eru Powerade-bikarmeistarar karla árið
2012 eftir sigur á Tindastóli
97-95 í L aug ard a lshöl l s l .
laugardag. Lærisveinar Sigurðar
I n g i m u n d a r s o n a r l e i d d u
leikinn frá upphafi en spenna
færðist í leikinn undir lokin
eins og gengur og gerist í alvöru
bi k ar úrsl i ta l ei kjum. Mi k i l
stemning var hjá áhorfendum
liðanna þegar leikmenn voru
kynntir til leiks og sérstaklega
þ e g a r S a u ð k r æ k l i n g u r i n n
Au ð u n n Bl ön d a l mu n d a ð i
hljóðnemann. Laugardalshöll
var þétt setin og var öll umgjörð
KKÍ og framkoma áhorfenda til
fyrirmyndar þennan laugardag.
Keflvíkingar voru á tánum í byrjun
leiks og sýndu klærnar strax frá
því boltanum var kastað upp. Eftir
rúmar tvær mínútur af leiknum
höfðu þeir náð 5 stiga forskoti og
voru fastir fyrir í varnarleiknum.
Tindastólsmenn virkuðu ryðgaðir
og mikið af skotum þeirra komu
handan þriggja stiga línunnar.
Tindastóll tók svo loks leikhlé í
stöðunni 22-13 og skammt til loka
leikhlutans. Keflvíkingar bættu í en
Svavar Birgisson minnkaði muninn
í 11 stig áður en 1. leikhluti var úti og
Keflvíkingar voru kátir í stúkunni.
Norðanpiltar náðu að vinna sig inn
í leikinn í 2. leikhluta en það verður
að segjast eins og er að Keflvíkingar
voru alltaf einu skrefi á undan í
flestum aðgerðum. Munurinn var
um 10 stig lengi vel og þegar liðin
gengu til búningsklefa í hálfleik þá
leiddu Keflvíkingar með 11 stigum
og stuðningsmannasveit Keflvíkinga
steig trylltan dans í stúkunni. Charles
Parker var funheitur í liði þeirra
bláklæddu og hann var með 17 stig
og 6 fráköst í fyrri hálfleiknum.
Magnús Gunnarsson var drjúgur að
vanda og skoraði stórar körfur en
Magnús er jafnan skemmtikraftur
mikill.
Sama sagan endurtók sig í 3.
leikhluta. Tindastóll náði muninum
niður í 6 stig á köflum en alltaf náðu
Keflvíkingar að svara fyrir sig og
jafnharðan var munurinn kominn
upp í 10 stig aftur. Þannig gekk
þetta í 3. leikhluta en Keflvíkingar
náðu þó á tímabili 13 stiga forystu.
Samt sem áður var munurinn 10
stig, 76-66 þegar lokaspretturinn var
einungis eftir.
Aftur kom svo áhlaup frá Stólunum
sem minnkaði muninn niður í 5 stig
og stuðningsmennirnir að norðan
létu vel í sér heyra. Valur Orri Valsson
sem lék afar vel í leiknum setti þá
niður mikilvæga þriggja stiga körfu,
alveg ískaldur pilturinn. Charles
Parker tók svo til sinna ráða en hann
skoraði ótrúlega mikilvægar körfur
undir lokin og var öðrum fremur
lykillinn að sigri strákanna frá
Bítlabænum þennan dag. Tindastóll
tók leikhlé þegar Keflvíkingar
leiddu 93-83 en þá voru rétt tæpar
4 mínútur eftir á klukkunni. Curtis
Allen leikmaður Tindastóls skoraði
eina þriggja stiga skömmu síðar og
hélt Tindastól inni í leiknum. Allen
lét ekki þar við sitja heldur stal hann
boltanum í næstu sókn Keflvíkinga,
brunaði fram og minnkaði muninn í
5 stig. Tindastóll fékk svo tvö gullin
tækifæri til þess að minnka muninn
enn frekar, en þeir fóru illa að ráði
sínu. Keflavík hafði því 5 stiga forskot
þegar Tindastóll tók leikhlé og
aðeins 19 sekúndur eftir af leiknum.
Helgi Rafn Viggósson minnkaði
muninn niður í 3 stig þegar 11
sekúndur voru eftir en Keflvíkingar
ruku í sókn þar sem brotið var á
Magnúsi Gunnarssyni. Honum
brást ekki bogalistin og setti bæði
vítaskotin niður og tryggði þar með
Keflvíkingum bikarmeistaratitilinn.
Kef lv íkingurinn Þröstur Leó
Jóhannsson átti hins vegar síðasta
orðið þegar hann tók sig til og
grýtti boltanum frá eigin vítalínu og
beinustu leið í netið. Þessi glæsikarfa
dugði þó skammt og lokatölur 97-
95.
Sagt eftir leikinn:
„Þetta var æðislegt. Fullt hús og
fólk með læti allan tímann. Ég
bara ekki frá því að þetta hafi verið
skemmtilegasti bikarúrslitaleikur
sem ég hef spilað,“ sagði Magnús
Gunnarsson fyrirliði Keflvíkinga
að leik loknum. Þó svo að
Tindastólsmenn hafi alltaf verið
á hælum Keflvíkinga þá efaðist
Magnús aldrei um sigurinn. „Ég
geri það aldrei þegar að ég er inni á
vellinum, og mun aldrei taka upp
á því. Um leið og við mundum
fara að gefa eitthvað eftir þá
myndu þeir bara vinna leikinn.
Við náðum að halda okkar striki
og berjast meira en þeir, þess
vegna sigruðum við hér í dag.“
Magnús var afskaplega ánægður
með liðsfélaga sinn hann Charlie
Parker sem átti glimrandi leik.
„Hann var frábær hér í Höllinni
og skoraði í raun alltaf þegar að
við þurftum á því að halda. Svo
var hann líka frábær í vörninni,“
sagði Magnús að lokum.
Parker sjálfur var kampakátur í
leikslok og hann segist hafa fundið
það strax í upphafi þegar að liðin
voru kynnt til leiks að hann ætlaði
sér stóra hluti í leiknum. „Lætin
komu mér í gang en ég hef spilað
svona leiki í háskólaboltanum
og það er bara mjög gaman að
spila í svona andrúmslofti. Þegar
áhorfendur úr báðum liðum eru
stanslaust að öskra á þig og allt er
undir þá getur það ekki annað en
að framkallað þínar bestu hliðar,“
sagði Parker en hann var eins og
áður segir maður leiksins.
Atkvæðamestir
Keflvíkinga í leiknum:
Charles Michael Parker 32/13
fráköst, Jarryd Cole 19/8 fráköst/4
varin skot, Magnús Þór Gunnarsson
17/8 stoðsendingar, Kristoffer Douse
10/5 fráköst, Valur Orri Valsson 9,
Halldór Örn Halldórsson 6, Almar
Stefán Guðbrandsson 4
Enn ein rósin í
hnappagat Sigurðar Á myndunum má sjá Val Orra og Magga Gunnars í baráttunni
gegn Tindastóli