Víkurfréttir - 23.02.2012, Síða 13
13VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUdagUrInn 23. FEBrúar 2012
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Við óskum Njarðvík til hamingju með
bikarmeistaratitilinn í körfuknattleik
kvenna. Landsbankinn er stoltur bakhjarl
körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur og í
samstarfi við bankann hefur Njarðvík
valið verkefnið Stöðvum einelti til að
prýða búninga félagsins.
J
ó
n
s
s
o
n
&
L
e
’m
a
c
k
s
•
jl
.i
s
•
s
Ía
Til hamingju
Njarðvíkingar!
Sagt eftir leikinn:
„Þetta var alvöru leikur, rétt eins og
við bjuggumst við,“ sagði Ólöf Helga
Pálsdóttir fyrirliði Njarðvíkinga í
lok leiks í Laugardalshöllinni. Hún
var ekki á því að sigurinn væri að
renna þeim úr greipum undir lokin
þegar að Snæfellingar settu í lás í
vörninni. „Við verðurm að hafa
smá spennu í þessu, er það ekki?“ Í
byrjun leiks var mikið um mistök á
báða bóga en Ólöf sagði að bæði lið
hafi ætlað sér um of strax í upphafi.
„Þetta þróaðist bara þannig en við
náðum að koma okkur á réttan
kjöl og vinna sigur,“ sagði Ólöf að
lokum en hún vildi koma þökkum
til stuðningsmanna Njarðvíkinga
sem mættu í Höllina og studdu við
bakið á stelpunum.
Grimmdin skilaði sigrinum
Sverrir Þór Sverrisson þjálfari átti
erfitt með að lýsa tilfinningunni
sem fylgdi sigrinum en hann var
virkilega stoltur af sínu liði. „Ég
er ánægður og mjög stoltur af
stelpunum. Þær hafa lagt mikið
á sig og eru flestar að vinna sinn
fyrsta titil með meistaraflokki.“
Sverrir taldi lykilinn að sigrinum
vera baráttuandann í l iðinu.
„Baráttan og vörnin. Stolnir boltar
og fráköstin, þetta skilaði þessum
sigri fyrir okkur, þessi grimmd.“
Sverrir tók undir orð blaðamanns
varðandi frammistöðu Baker-
Brice sem var maður leiksins að
þessu sinni. „Hún var mögnuð.
Hún er týpan sem þrífst á svona
stórleikjum og það sáum við hér í
dag. Það er samt margt sem hægt er
að nefna og þetta er algjörlega sigur
liðsheildarinnar.“
Atkvæðamestar
hjá Njarðvíkingum:
Shanae Baker-Brice 35/16 fráköst/9
stoðsendingar/5 stolnir, Lele Hardy
26/24 fráköst, Petrúnella Skúladóttir
18, Salbjörg Sævarsdóttir 3, Ólöf
Helga Pálsdóttir 2/9 fráköst.
Ný t t n a f n v a r r i t a ð í s ö g u b æ k u r K K Í á
laugardaginn síðastliðinn, en
þá unnu Njarðvíkurstúlkur sinn
fyrsta bikarmeistaratitil. Ekki
nóg með það því þetta var fyrsti
titillinn í sögu kvennaboltans í
Njarðvíkunum. Njarðvíkingar
hömpuðu bikarnum eftir glæstan
sigur á Snæfellingum þar sem þær
höfðu 84-77 sigur eftir spennandi
lokakafla. Njarðvíkingar höfðu þó
tögl og haldir bróðurpart leiksins
og mestur var munurinn í 18 stig.
Shanae Baker-Brice átti alveg hreint
glimrandi leik og ljóst alveg frá
upphafi að hún var í miklu stuði.
Hún dreif Njarðvíkinga áfram
framan af leik en hinn erlendi
leikmaðurinn hjá þeim grænklæddu,
Lele Hardy, var ekki að finna sig og
misnotaði mikið af opnum skotum
af stuttu færi sem hefðu farið
niður við venjulegar aðstæður. En
aðstæður voru ekkert venjulegar
þennan laugardag. Áhorfendur
fjölmenntu á palla Laugardalshallar
enda tvö lið að berjast sem aldrei
höfðu unnið titil í kvennaflokki og
stemningin eftir því. Snæfellingar
byrjuðu með svæðisvörn sem varð
til þess að Njarðvíkingar reyndu
mikið af skotum fyrir utan þriggja
stiga línuna. Þau skot voru ekki að
rata heim og Shanea Baker-Brice
tók af skarið og keyrði mikið inn að
körfunni og skoraði grimmt. Þótt
Hardy hafi ekki verið að finna sig í
stigaskorinu í upphafi þá reif hún
niður fráköstin og áttu Snæfellingar
í mestu vandræðum með hana.
Njarðvíkingar voru að hirða mikið
af sóknarfráköstum og fengu
fjölmörg tækifæri til þess að næla
sér í þægilega forystu en alltof mörg
skot fóru forgörðum. Staðan var því
þannig að Njarðvík var með þriggja
stiga forystu þegar flautað var til
hálfleiks, 41-38.
Baker-Brice var komin með 24
stig í hálfleik og þær Petrúnella
Skúladóttir og Lele Hardy voru
með 8 hvor. Hardy var þá komin
með hvorki meira né minna en 16
fráköst en hún átti enn eftir að bæta
nokkrum við í síðari hálfleik. Í byrjun
seinni hálfleiks tóku Njarðvíkingar
völdin og munurinn var fljótlega
kominn í 10 stig. Njarðvíkingar
stigu svo bensínið í botn og virtust
vera að landa bikarnum enda fór
munurinn í 18 stig á tímabili. Þá
tóku Snæfellingar leikhlé og hristu
af sér slenið. Þær náðu góðu áhlaupi
á Njarðvíkinga og munurinn var
8 stig þegar haldið var í síðasta
leikfjórðung.
Snæfellingar létu þá kné fylgja kviði og
spennan magnaðist þegar munurinn
fór niður í 3 stig. Ekki minnkaði
stemningin þegar að Snæfell komst
1 stigi frá Njarðvíkingum. Þá var
komið að þætti Lele Hardy hjá
Njarðvíkingum. Hún skoraði 5 stig
í röð og stal boltanum á ögurstundu
þegar skammt var til leiksloka.
Þakið ætlaði að rifna af húsinu
þegar Hardy setti niður stökkskot
frá endalínunni og brotið var á
henni um leið. Hardy setti niður
vítið og þarna fundu Njarðvíkingar
örlítinn keim af kampavíninu.
Snæfellingar náðu muninum aftur
niður í 4 stig en Shanea Baker-Brice
tryggði sigurinn undir lokin með
því að setja niður 4 vítaskot í röð.
Sannarlega viðeigandi að hún skyldi
loka leiknum með þessum hætti þar
sem hún var svo valin maður leiksins
við verðlaunaafhendinguna.
Fyrsti bikar Njarðvíkurkvenna
kominn í Ljónagryfjuna
Enn ein rósin í
hnappagat Sigurðar
Shanae Baker-
Brice var öflugust
Njarðvíkinga í
leiknum. Sverrir Þór
þjálfari fagnar fyrsta
bikarmeistaratitli
Njarðvíkurkvenna.
Texti/Myndir Eyþór Sæmundsson og Páll Orri Pálsson