Víkurfréttir - 23.02.2012, Page 14
14 FIMMTUdagUrInn 23. FEBrúar 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Hópur Suðurnesjamanna sem kalla sig einfaldlega Vinir Ragga Margeirs munu standa fyrir
minningarmóti um Ragnar heitinn Margeirsson,
landsliðsmann í knattspyrnu, laugardaginn 25.
febrúar næstkomandi. Allur ágóði af mótinu mun
renna til styrktar fjölskyldu Sigursteins heitins
Gíslasonar sem lést fyrir skömmu.
Mótið er ætlað eldri drengjum eins og það er orðað
í tilkynningu frá vinum Ragnars. Mótið hafa þeir
félagar nokkrum sinnum haldið áður en tíu ár eru
liðin frá andláti Ragnars sem gerði garðinn frægan
á sínum tíma með Keflavík, Fram og KR hérlendis
en einnig í Belgíu og í Þýskalandi. Ragnar hefði
orðið fimmtugur á þessu ári.
Afraksturinn af mótinu rennur iðulega til
góðra málefna og að þessu sinni rennur
hann óskiptur til fjölskyldu Sigursteins
sem tók sjálfur oft þátt í minningarmótinu.
Styrktaraðili sem ekki vill láta nafns síns getið
mun greiða þann kostnað sem af mótinu
hlýst.
Um kvöldið fer svo fram
Herrakvöld Keflvíkinga þar
sem Örvar Kristjánsson sér um veislustjórn. Örvar
sem er þekktur fyrir sín þrumuskot fær algert skotleyfi
þetta kvöld og það verður gaman að sjá hver verður
fyrir barðinu á honum.
Ræðumaður kvöldsins er markmaðurinn og
pistlahöfundur Víkurfrétta Ómar Jóhannsson.
Málverkauppboðið verður glæsilegt en verk frá Tolla,
Línu Rut, Rakel Steinþórs og fleiri flottum listamönnum
verða boðin upp.
Meistarakokkurinn Ási hjá Menu sér svo um
matargerðina en það er þriggja rétta gómsæt
máltíð.Garðar Örn Arnarsson, einn efnilegasti
kvikmyndagerðarmaður landsins, sýnir glefsur
úr stuttmynd sem hann er með í smíðum.
Miðapantanir í síma 421-5188 á skrifstofutíma
og 840-0302 (Kristján Helgi) hvenær sem er
sólarhrings. Einnig hægt að senda mail á kef-fc@
keflavik.is og khj@internet.is.
Allt þetta og meira til laugardaginn 25. febrúar.
Miðaverð aðeins 6.000 krónur. Húsið opnar
19:00 og borðhald hefst stundvíslega kl 20:00. Í
fyrra voru 180 manns mættir og skemmtu sér
konunglega, nú er stefnt að því að fá a.m.k. 200
manns enn meira fjör.
útspark Ómar JÓhannsson
Ómar Jóhannsson, markvörður og
starfsmaður í Fríhöfninni sparkar
pennanum fram á ritvöllinn.
Þegar ég var lítill strákur fór ég reglulega á völlinn eins og
fótboltasjúkum drengjum ber að gera. Þarna horfði maður
á leikmenn spila og óskaði þess að maður væri þeir. Ólarnir
Gottskálksson og Pétursson voru í sérstöku uppáhaldi hjá
markmanninum mér. Eftir leik var svo fundinn grasblettur
þar sem úlpurnar voru notaðar sem mörk. Snúrustaurar ef
maður var heppinn. Á þessum grasbletti breyttist maður svo í
þessa leikmenn. Maður var þeir í smá stund og lifði drauminn.
Seinna þegar maður varð nokkrum árum eldri breyttust svo
draumarnir úr því að vera þeir yfir í að fá að spila með þeim.
Maður sá unga leikmenn koma inn í liðið og áttaði sig á því að
það væri möguleiki, ef maður legði hart að sér, að hugsanlega
spila með þeim.
Síðasta helgi var frábær körfuboltahelgi hér í Reykjanesbæ.
Það er á svona dögum sem frasinn „aðalmálið að vera með“
á ekki við. Það einmitt fyrir svona augnablik sem flestir
íþróttamenn leggja af stað með ferilinn sinn. Ungir drengir
og stúlkur mæta í íþróttahúsið og drekka í sig stemninguna.
Þarna sitja þau, standa, hoppa, syngja og hrópa og á endanum
eru sigurvegararnir hylltir sem hetjur. Hver vill ekki vera
hetja og taka þátt í því að gleðja svona marga. Vera dáður
og vinsæll fyrir eitthvað sem þú ert virkilega góður í. Ég
er alveg viss um að fleiri en einn og tveir hafi ákveðið að
nákvæmlega þetta vildu þau gera þegar þau verða stór. Vera
góð í körfubolta og vinna titla.
Nú er ég Keflvíkingur og elska að sjá Keflavík vinna titla, mér
fannst það meira að segja alls ekkert leiðinlegt að sjá Njarðvík
vinna. Einn hlutur stakk mig samt svolítið í augun um helgina.
Hversu hvetjandi er það fyrir unga krakka að stefna að því að
komast í liðið í framtíðinni þegar 3 af 5 byrjunarliðsmönnum
eru erlendir leikmenn? Ég leyfi mér að fullyrða það að enginn
af þeim hafði heyrt á Keflavík minnst áður en þeir fengu
samning hér. Af 10 leikmönnum inná í byrjun leiks voru 6
erlendir og spiluðu þeir flestir nánast hverja einustu mínútu.
Hjá konunum voru erlendu leikmennirnir ekki nema 4 af 10,
2 í hvoru liði. Þessar stelpur skoruðu samt sem áður 113 af
161 stigi sem voru skoruð í leiknum. Það er eitthvað bogið
við það að 1 af 20 stigahæstu leikmönnum Iceland Express
deildarinnar í karlaflokki sé Íslendingur (Maggi Gunn að
sjálfsögðu).
Nú eru flestir af þeim erlendu leikmönnum sem koma hingað
til að spila virkilega góðir leikmenn og styrkja liðin sín mikið.
Ég hef nákvæmlega ekkert út á þá að setja, þau eru bara að
vinna vinnuna sína. Það sem ég hins vegar velti fyrir mér
er hvort að þetta sé vænlegasta leiðin til árangurs fyrir
körfuboltann í landinu. Á meirihlutinn af byrjunarliðinu að
vera atvinnumenn? Er ekki til neitt betra fyrir liðin að leggja
peningana í? Til hverra á æskan að horfa upp til þegar flestir
af þeim sem spila stærsta hlutverkið í sínu liði spila ekki nema
eitt tímabil, ef þeir þá ná því. Auðvitað er það vonlaus barátta
ef lið ætlar ekki að hafa erlenda leikmenn í efstu deild eins
og staðan er í dag. Kannski er ég bara orðinn gamall og bitur
en mér finnst ekki sami ljóminn yfir körfunni í dag og fyrir
20 árum. Þegar einn erlendur leikmaður var í hverju liði og
strákar sem fólkið í bænum þekkti spiluðu stærra hlutverk.
En jú ætli ég sé ekki bara að verða gamall.
Er þEtta
vænlEgasta lEiðin?
Minningarmót
Ragnars og Herrakvöld
Keflvíkinga
Um h e l g i n a f ó r f r a m þriggja daga námskeið
í ó ly mpískum ly ft ing um í
Kei l i . L ei ðb einendur vor u
heimsþekktir lyftingaþjálfarar
frá Bandaríkjunum, þeir Bob
Takano og Pat Carroll-Cullen.
60 þjálfarar sóttu námskeiðið
sem var bæði í formi fyrirlestra
og verklegrar kennslu. Stór
hluti voru CrossFit þjálfarar en
ÓL koma þar mikið við sögu.
Aðrir þátttakendur voru ýmist
sjúkraþjálfarar, íþróttafræðingar,
ÍAK einkaþjálfarar og -nemar,
íþróttaþjálfarar, lyftingaþjálfarar
o.s.frv.
Þátttakendur voru á einu máli um að
námskeiðið hefði tekist mjög vel og
þeir hefðu lært mjög mikið á þessum
þremur dögum. Leiðbeinendurnir,
Bob og Pat töluðu sérstaklega um
að þeir hefðu sjaldan kennt jafn
áhugasömum og metnaðarfullum
hópi þjálfara áður og voru mjög
ánægðir með aðstæðurnar í Keili
og íþróttahúsinu á Ásbrú.
Forsvarsmenn f rá Lyf t inga-
sambandi Íslands sóttu nám-
skeiðið og leiðbeindu einnig.
Sambandið mun bjóða upp á
próf úr námskeiðinu og þeir sem
standast prófið fá þjálfararéttindi
f r á s amb and i nu . Ke i l i r o g
lyftingasambandið stefna á að vinna
enn frekar saman í námskeiðshaldi
og menntun þjálfara.
Keilir heldur um þrisvar á ári
námskeið me ð he imsk lass a
þjálfurum og alltaf eru þau mjög
vel sótt. Í apríl verður Martin
Rooney hjá Keili með 2ja daga
námskeið í hraðaþjálfun og þá ættu
íþróttaþjálfarar frá Suðurnesjum
ekki að láta sig vanta. Rooney
hefur unnið með íþróttamönnum
úr NFL, NBA, WNBA auk fjölda
ólympíukeppenda. Þá er hann
einnig mjög þekktur fyrir þjálfun á
bardagaíþróttamönnum og verður
með kvöldnámskeið á vegum Keilis
í þolþjálfun bardagaíþróttamanna.
Myndir frá námskeiðinu um
helgina eru á Facebook síðu Keilis
www.facebook.com/keilir
Heimsþekktir
lyftingaþjálfarar á Ásbrú