Víkurfréttir - 23.02.2012, Page 16
16 FIMMTUdagUrInn 23. FEBrúar 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Hvenær byrjaði áhugi þinn á fatahönnun?
„Ætli það hafi ekki verið í kringum fermingu þegar ég
var á keppnisferðalagi með sundinu. Þá var ein stelpan
að lesa tískutímaritið Vogue, ég fékk að kíkja í það og
þá var ekki aftur snúið. Síðan þá hef ég fylgst mikið
með tísku en byrjaði ekki að sauma sjálf fyrr en ég var
17 ára og rambaði þá í áfanga í FS sem heitir Fata- og
textílhönnun.“
Undir hvaða merki hannar þú?
„Ég hef ekki ennþá fundið nafn sem ég er sátt við.
Mig langar að finna nafn sem er alþjóðlegt og virkar í
tískubransanum erlendis, því auðvitað vil ég enda þar.
Ég er búin að máta nokkur nöfn en ekkert hefur fests
ennþá.“
Hvaðan færðu innblástur?
„Úff! Eins og er þá er ég mjög hrifin af menningu
indíána (kögur, fjaðrir, mynstur, litir o.fl.) og sú menn-
ing veitir mér innblástur í möppu sem ég er að fara að
senda í skóla erlendis. Gamaldags rokkmenning hefur
einnig alltaf veitt mér innblástur sem og hippatíma-
bilið. Ég heillast líka af svokölluðum „kósý“ fatnaði
sem er víður og þægilegur og ég sauma mikið þess
konar flíkur.“
Hvers konar fatnað finnst þér skemmtilegast að
hanna?
„Í dag hanna ég og sauma föt þegar mig vantar eitthvað
og bestu flíkurnar mínar eru gerðar tveimur tímum
áður en ég fer út. Það er nefnilega oft þannig sem bestu
hugmyndirnar verða til. Mér finnst skemmtilegast
að sauma víð „kósý“ föt til að vera í dags daglega, en
fatasmekkurinn minn einkennist mikið af því.“
Hefur þú tekið þátt í einhverjum tískusýningum?
„Já ég tók þátt í Unglist 2010 með Tækniskólanum. Það
var mjög gaman og ég fékk smjörþefinn af því að taka
þátt í tískusýningum. Þetta árið var einnig gert mikið
úr sýningunni og það voru margir blaðamenn sem
mættu. Ein af mínum flíkum endaði í Nude Magazine
sem var alveg frábært.“
Hverjir eru uppáhalds fatahönnuðirnir þínir, bæði
íslenskir og erlendir?
„Ó þeir eru svo margir. Ég er mjög hrifin af hönnuðum
sem eru samkvæmir sjálfum sér og fara ekki eftir því
sem á að vera í tísku. John Galliano fyrrverandi hönn-
uður hjá Dior, Alexander McQueen, Valentino, Betsey
Johnson, Coco Chanel, Yves Saint Laurent og margir
fleiri. Ungir hönnuðir eins og Jason Wu og Christian
Siriano gefa mér ákveðna von því þeim tókst að komast
mjög langt þrátt fyrir ungan aldur. Hér heima held ég
mikið upp á Munda, Forynju og Aftur. Ég á mér engan
einn hönnuð sem fyrirmynd en þeir einstaklingar sem
brjóta hefðbundnar reglur og eru samkvæmir sjálfum
sér sem og gömlu hönnuðirnir sem voru brautryðj-
endur í tísku eru mér mikil fyrirmynd.“
Gætirðu hugsað þér að starfa sem fatahönnuður í
framtíðinni?
„Já, ekki spurning, það heillar mjög mikið. Ég er með
mjög stóra drauma og í huganum er ég komin svo langt
fram úr mér að ég þarf oft að stoppa og klára núverandi
verkefni. En ég sé ekkert annað en að vinna innan
tískubransans, þetta umhverfi heillar mig mikið.“
Ef þú fengir að velja eina manneskju til að hanna flík
fyrir, hver yrði fyrir valinu og hvers konar flík yrði
það?
„Michael Jackson án efa! Hann var svo mikil týpa og
klæðnaðurinn hans var alltaf svo flottur. Ég myndi vilja
sauma á hann heilt „look“ fyrir tónleika eða mynd-
band, jakka, buxur, skyrtu, hatt, hanskann og allt sem
einkenndi hann. Svo myndi ég einkenna það með
mínum stíl. Það væri óskaverkefnið og að fá að vinna
með honum hefði verið draumurinn.“
Hvert er framhaldið og framtíðardraumar?
„Framhaldið er að klára stúdentinn núna um jólin.
Haustið 2013 ætla ég að vera komin í skóla erlendis,
vonandi í Los Angeles ef allt gengur upp. Draumarnir
mínir eru óendanlega stórir og ég ætla mér að gera allt
til að láta þá rætast. Mig langar að setja fram hönnun
sem endar á tískuvikum erlendis, á rauða dreglinum
og framan á tískublöðum. Draumurinn er að ná langt
í þessum bransa og ég vona að það takist. „Allt er hægt
ef viljinn er fyrir hendi!“
Ef þú þekkir einhvern sem er að gera sniðuga hluti,
endilega láttu okkur vita á vf@vf.is.
Helena Ósk Ívarsdóttir er 21 árs Keflavíkurmær
og eflaust betur þekkt sem mikill sundgarpur. Hún ákvað þó
einn daginn að hoppa upp úr sundlauginni, hóf að teikna
föt og settist við saumavélina. Þar hefur hún eytt mestum
tíma sínum síðan. Hún stundar nú nám við Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja á listnámsbraut og er auk þess að taka
viðbótarnám til stúdentsprófs. Hönnun hennar hefur vakið
nokkra athygli og hún stefnir á framhaldsnám í fatahönnun
erlendis, þá helst í Bandaríkjunum.
TexTi: edda rós skúladóTTir
M
ó
d
el
M
yn
d
ir
: e
yg
ló
g
ís
la
d
ó
TT
ir