Víkurfréttir - 18.04.2013, Síða 1
vf.is
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
FIMMTUdagUrInn 18. aPrÍL 2013 • 15. TöLUbLað • 34. árgangUr
Hringbraut 99 - 577 1150
Félagar í FEB fá 12% afslátt
af öllum vörum og góð kjör
á lyfseðilsskyldum lyfjum
Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.
VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ
Höfum mikið af eignum
á skrá, víða um land.
Skoðið vefinn okkar:
n Ætlar að markaðssetja íslenska jólasveininn og fá útlendinga til að senda honum bréf: Stal farsíma og
hringdi til Sýrlands
Nokkuð hefur verið um, að undanförnu, að fólk hafi tilkynnt til lögreglunnar á
Suðurnesjum stuld á farsímum sínum. Þannig
tilkynnti karlmaður að farsíma sínum hefði
verið stolið á skemmtistað í umdæminu. Sím-
inn var nýlegur og hafði kostað 100 þúsund
krónur. Maðurinn sagði símann hafa verið
notaðan daginn eftir að honum var stolið
og hefði verið hringt úr honum til útlanda,
þar á meðal til Sýrlands, fyrir þrjátíu þúsund
krónur.
Þá gleymdi kona síma sínum á borði á veit-
ingahúsi og áttaði sig ekki á því fyrr en hún var
komin út í bíl. Ekki hafði liðið nema örskots-
stund, en síminn var engu að síður horfinn þegar
hún ætlaði að sækja hann.
„Mig langar að reyna að ná smá gjaldeyri
út úr þessum tæplega 700 þúsund ferða-
mönnum sem koma til landsins á hverju
ári. Ég ætla að koma fyrir fimm póst-
kössum sem eru 3 metrar á hæð, 1,50 m á
breidd og tæpur metri á dýpt. Hugmyndin
er að fólk sem setur bréf í kassann sjái inn í
hann. Sérstakir söluaðilar í nágrenni kass-
anna sem verða tveir í Reykjavík, á Akur-
eyri, við Geysi í Haukadal og á Reykjanesi,
munu selja sérstök bréf sem fólk mun
skrifa á til barna, ættingja eða vina. Ég ætla
svo að fá skólakrakka í lið með mér og þau
munu svara bréfunum sem við sendum
svo á viðtakanda með lítilli gjöf sem tengist
Íslandi. Skólakrakkarnir munu að sjálf-
sögðu frá greitt fyrir þeirra vinnu sem þarf
að fara fram á haustmánuðum svo bréfin
komist á áfangastað fyrir jól,“ segir Guð-
mundur sem hefur fengið margar ótrúlega
skemmtilegar hugmyndir um ævina. Hann
brosti breitt þegar hann var spurður að því
hvort nú yrði hann ríkur ef þetta heppnað-
ist en sagði það ekki aðal málið. Gott væri
ef fleiri nytu þess ef hugmyndin heppnaðist
vel og það væri markmiðið.
Verktakafyrirtækið Atafl á Ásbrú smíðar
kassana sem eru úr áli fyrir Guðmund en
fleiri fyrirtæki á Suðurnesjum hafa að-
stoðað kappann eins og Merkiprent og
Plexigler. Kassarnir eru fallega rauðir eins
og hinir hefðbundnu póstkassar hjá Ís-
landspósti sem mun síðan koma bréfunum
á áfangastað. Guðmundur segist vanta fal-
legan og hentugan stað fyrir kassa á Suður-
nesjum og biður um aðstoð við það mál.
„Ég vonast eftir góðri samvinnu við hönn-
uði eða sprotafyrirtæki í gerð hentugra
gjafa. Þetta getur orðið ágætis vinna og bú-
bót fyrir þann eða þá aðila. Ég vona líka að
allir í jólasveinabransanum leggi höfuðið
í bleyti og hjálpi til við að markaðssetja
íslensku jólasveinana. Það sem er ólíkt
hér og í öðrum löndum er þessi yndislega
staðreynd að á Íslandi eru 13 jólasveinar og
þeir eiga Grýlu og Leppalúða sem foreldra.
Þeim útlendingum sem ég hef sagt frá því
finnst það ótrúlega skemmtilegt.
Það hafa allir tekið mjög jákvætt í þetta sem
ég hef leitað til og finnst málið skemmti-
legt. Ég vil reyna að ná til 10% ferðamanna
og ef það tekst þá munum við fá um 65 til
70 þúsund bréf. Þessir kassar munu vekja
mikla athygli þar sem þeir verða og einnig
vekja athygli á Íslandi. Það er ekki ólíklegt
að margar ljósmyndir verði teknar við þá
sem munu birtast á samfélagsmiðlunum
og auglýsa þannig Ísland,“ sagði Guð-
mundur.
Þriggja metra háir
jólasveinapóstkassar
Fjöllistamaðurinn Guð-mundur R. Lúðvíksson
ætlar að gera skemmtilega
tilraun til að markaðssetja
íslensku jólasveinana. Hann
ætlar að freista þeirra fjöl-
mörgu útlendinga sem koma
til landsins og fá þá til að
senda jólasveinunum bréf
sem þeir eiga að skila í risa-
vaxna póstkassa sem stað-
settir verða víða um land.
Kristján Halldórsson
smiður hjá Atafli
og Guðmundur
Rúnar Lúðvíksson
listamaður.
VF-mynd: pket