Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.04.2013, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 18.04.2013, Blaðsíða 1
vf.is Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR ������� ��������� � e���.�� F ÍT O N / S ÍA Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 FIMMTUdagUrInn 18. aPrÍL 2013 • 15. TöLUbLað • 34. árgangUr Hringbraut 99 - 577 1150 Félagar í FEB fá 12% afslátt af öllum vörum og góð kjör á lyfseðilsskyldum lyfjum Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00. VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ Höfum mikið af eignum á skrá, víða um land. Skoðið vefinn okkar: n Ætlar að markaðssetja íslenska jólasveininn og fá útlendinga til að senda honum bréf: Stal farsíma og hringdi til Sýrlands Nokkuð hefur verið um, að undanförnu, að fólk hafi tilkynnt til lögreglunnar á Suðurnesjum stuld á farsímum sínum. Þannig tilkynnti karlmaður að farsíma sínum hefði verið stolið á skemmtistað í umdæminu. Sím- inn var nýlegur og hafði kostað 100 þúsund krónur. Maðurinn sagði símann hafa verið notaðan daginn eftir að honum var stolið og hefði verið hringt úr honum til útlanda, þar á meðal til Sýrlands, fyrir þrjátíu þúsund krónur. Þá gleymdi kona síma sínum á borði á veit- ingahúsi og áttaði sig ekki á því fyrr en hún var komin út í bíl. Ekki hafði liðið nema örskots- stund, en síminn var engu að síður horfinn þegar hún ætlaði að sækja hann. „Mig langar að reyna að ná smá gjaldeyri út úr þessum tæplega 700 þúsund ferða- mönnum sem koma til landsins á hverju ári. Ég ætla að koma fyrir fimm póst- kössum sem eru 3 metrar á hæð, 1,50 m á breidd og tæpur metri á dýpt. Hugmyndin er að fólk sem setur bréf í kassann sjái inn í hann. Sérstakir söluaðilar í nágrenni kass- anna sem verða tveir í Reykjavík, á Akur- eyri, við Geysi í Haukadal og á Reykjanesi, munu selja sérstök bréf sem fólk mun skrifa á til barna, ættingja eða vina. Ég ætla svo að fá skólakrakka í lið með mér og þau munu svara bréfunum sem við sendum svo á viðtakanda með lítilli gjöf sem tengist Íslandi. Skólakrakkarnir munu að sjálf- sögðu frá greitt fyrir þeirra vinnu sem þarf að fara fram á haustmánuðum svo bréfin komist á áfangastað fyrir jól,“ segir Guð- mundur sem hefur fengið margar ótrúlega skemmtilegar hugmyndir um ævina. Hann brosti breitt þegar hann var spurður að því hvort nú yrði hann ríkur ef þetta heppnað- ist en sagði það ekki aðal málið. Gott væri ef fleiri nytu þess ef hugmyndin heppnaðist vel og það væri markmiðið. Verktakafyrirtækið Atafl á Ásbrú smíðar kassana sem eru úr áli fyrir Guðmund en fleiri fyrirtæki á Suðurnesjum hafa að- stoðað kappann eins og Merkiprent og Plexigler. Kassarnir eru fallega rauðir eins og hinir hefðbundnu póstkassar hjá Ís- landspósti sem mun síðan koma bréfunum á áfangastað. Guðmundur segist vanta fal- legan og hentugan stað fyrir kassa á Suður- nesjum og biður um aðstoð við það mál. „Ég vonast eftir góðri samvinnu við hönn- uði eða sprotafyrirtæki í gerð hentugra gjafa. Þetta getur orðið ágætis vinna og bú- bót fyrir þann eða þá aðila. Ég vona líka að allir í jólasveinabransanum leggi höfuðið í bleyti og hjálpi til við að markaðssetja íslensku jólasveinana. Það sem er ólíkt hér og í öðrum löndum er þessi yndislega staðreynd að á Íslandi eru 13 jólasveinar og þeir eiga Grýlu og Leppalúða sem foreldra. Þeim útlendingum sem ég hef sagt frá því finnst það ótrúlega skemmtilegt. Það hafa allir tekið mjög jákvætt í þetta sem ég hef leitað til og finnst málið skemmti- legt. Ég vil reyna að ná til 10% ferðamanna og ef það tekst þá munum við fá um 65 til 70 þúsund bréf. Þessir kassar munu vekja mikla athygli þar sem þeir verða og einnig vekja athygli á Íslandi. Það er ekki ólíklegt að margar ljósmyndir verði teknar við þá sem munu birtast á samfélagsmiðlunum og auglýsa þannig Ísland,“ sagði Guð- mundur. Þriggja metra háir jólasveinapóstkassar Fjöllistamaðurinn Guð-mundur R. Lúðvíksson ætlar að gera skemmtilega tilraun til að markaðssetja íslensku jólasveinana. Hann ætlar að freista þeirra fjöl- mörgu útlendinga sem koma til landsins og fá þá til að senda jólasveinunum bréf sem þeir eiga að skila í risa- vaxna póstkassa sem stað- settir verða víða um land. Kristján Halldórsson smiður hjá Atafli og Guðmundur Rúnar Lúðvíksson listamaður. VF-mynd: pket

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.