Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.04.2013, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 18.04.2013, Blaðsíða 12
fimmtudagurinn 18. apríl 2013 • VÍKURFRÉTTIR12 grinda-víkurfréttir Berta Dröfn Ómarsdóttir lærði gríðarlega mikið af því að syngja með Bergþóri Pálssyni og Garðari Þór Cortes síðastliðið sumar. Mynd/Bjarni Bragason. Björgunar-og slysavarnadeildin Þorbjörn Grindavík, Unglingadeildin Hafbjörg og Björgunarbátasjóður Grindavíkur halda aðalfund þann 2. maí 2013 kl.18:00 í húsi björgunarsveitarinnar að Seljabót 10. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Lagabreytingar Stjórn Björgunarsveitarinnar Þorbjörns Stjórn Björgunarbátasjóðs Grindavíkur AÐALFUNDUR Vegna fjölda verkefna bæði á Suðurnesjum og í Reykjavík vantar okkur duglega starfsmenn í eftirfarandi störf. Málarameistara Málara Múrara Áhugasamir hafi samband á netfangið aaverktakar@aaverktakar.is Einnig geta umsækjendur haft samband í síma 421-6530. Verndun og viðhald fasteigna ATVINNA Grindavíkurmærin Berta Dröfn Ómarsdóttir mun næstkomandi laugardag halda burtfararprófstónleika frá Söng- skólanum í Reykjavík. Berta, sem er 28 ára gömul, hefur sungið frá unga aldri og stundað nám við Söngskólann í Reykjavík með hléum frá árinu 2001. Í milli- tíðinni hefur hún dvalið á Kosta Ríka sem skiptinemi, einnig um skeið á Ítalíu, auk þess að vera stúdent frá FS og ljúka BA-gráðu í ítölsku frá HÍ. Berta er nú að ljúka grunnnámi með burtfarar- prófstónleikum á laugardag sem fram fara í Langholtskirkju. „Ég mun t.d. syngja verk eftir Bach og aríur eftir Mozart í bland við ís- lensk lög. Þetta verður í raun allur skalinn úr náminu. Þetta tvinnar saman nánast allt sem ég hef lært síðustu ár,“ segir Berta Dröfn. Hún stundar einnig söngkennaranám við Söngskóla Reykjavíkur og mun ljúka því námi á næsta ári. Berta lætur sig dreyma um að fara í áframhaldandi nám á Ítalíu ásamt Bjarna Bragasyni, kærasta sínum. „Ég er með augun á einum skóla í Bologna og það er draumurinn að flytja út til Ítalíu. Það er miklu meiri ástríða, tilfinningar, flæði og líf í söngnum á Ítalíu en í Þýska- landi sem dæmi. Það væri frábært að fara í framhaldsnám á Ítalíu,“ segir Berta. Þessi hæfileikaríka söngkona er uppalin í Grindavík og er dóttir sr. Jónu Kristínar Þorvaldsdóttur, fyrrum sóknarprests í Grindavík, og Ómars Ásgeirssonar, forstjóra Martaks. Berta var snemma hvött af foreldrum sínum til að læra meira í söng enda lá það vel fyrir henni að syngja. Hæfileikar hennar á þessu sviði komu snemma í ljós og sem dæmi þá sigraði hún tví- vegis í Söngkeppni félagsmiðstöðva á Suðurnesjum, SamSuð, og tók einnig virkan þátt í söngleikjum og söngkeppnum í námi sínu við Fjöl- brautaskóla Suðurnesja. Síðastliðið sumar söng hún á þrennum tón- leikum á Austurlandi ásamt stór- söngvurunum Bergþóri Pálssyni og Garðari Thor Cortes. „Ég lærði alveg gríðarlega mikið af því að syngja með Bergþóri og Garðari. Það eykur manni kjark og þor að standa á milli svona reynslu- bolta, heilt tónleikaprógram. Veturinn hefur verið anna samur. Tók þátt í Nemendaóperu Söng- skólans, hélt tvenna einsöngs-jóla- tónleika, söng við ýmis tækifæri og er með þrjá söngnemendur. Í dag er það ekki 100% starf hjá mér að syngja en ég vona að einn daginn verði það að veruleika. Auk þess að syngja þá hef ég alltaf sinnt öðrum störfum með, þannig að það er nóg að gera“ segir Berta Dröfn að lokum. Burtfararprófstónleikar hennar fara fram kl. 16:00 laugar- daginn 20. apríl í Langholtskirkju. Söngkonan og Grindvíkingurinn Berta Dröfn Ómarsdóttir heldur burtfararprófstónleika í Lang- holtskirkju á laugardag draumurinn að ljúka söng- náminu á ítalíu Undanfarin misseri hafa Grindavíkurbær, Bláa lónið og HS Orka unnið í sameiningu að gerð göngu- og hjólreiðastígs á milli Grindavíkur og Bláa lóns- ins. Stígurinn er um 5 km langur og er gerð hans langt komin. Hann verður vígður formlega í Jarðvangsviku þann 15. maí nk. Ákveðið hefur verið að hafa sam- keppni um nafn á stíginn. Glæsileg verðlaun eru í boði fyrir höfund nafnsins eða eins árs fjölskyldukort í Bláa lónið og gjafabréf á Lava res- taurant. Vinsamlegast sendið tillögu að nafni á stíginn á netfangið stigur- inn@grindavik.is í síðasta lagi föstudaginn 3. maí nk. kl. 12:00. Munið að senda með fullt nafn og símanúmer. Miklar vonir eru bundnar við þennan nýja stíg hvað varðar ferðaþjónustu og útivist á svæð- inu. Göngu- og hjólreiðastígurinn var lagður í tvennu lagi, fyrst frá Grindavík og í Selskóg við Þor- bjarnarfell síðasta sumar og er óhætt að segja að hann hafi slegið strax í gegn. Nú er seinni áfangi stígsins, frá Selskógi í Bláa lónið, að verða tilbúinn en sá hluti liggur í gegnum úfið og ægifagurt hraunið og er vel þjappaður með fínu efni þannig að auðvelt er að hjóla hann fyrir þá sem vilja. Nafnasamkeppni um stíginn á milli Grindavíkur og Bláa lónsins ATVINNA Í BOÐI Kalka Berghólabraut 7, 230 Reykjanesbær - Sími: 421 8010 - Netfang: kalka@kalka.is - Heimasíða: www.kalka.is Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf. óskar eftir starfsmanni í brennslustöð fyrirtækisins. Unnið er á vöktum og um er að ræða tímabundna ráðningu. Gerðar eru kröfur um menntun sem nýtist í starfið s.s. vélstjórnarréttindi og/eða menntun á sviði raf- eða vélvirkjunar. Starfsmenn í brennslustöð þurfa að hafa frumkvæði og góða samskiptahæfni, geta unnið skipulega og sjálfstætt og vera vel tölvufærir. Góð enskukunnátta er kostur. Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og rekstrarstjóri brennslustöðvar í síma 421-8010 Umsóknarfrestur er til 22. apríl n.k. Umsóknir sendist til Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf. Berghólabraut 7, 230 Reykjanesbæ Netföng: jon@kalka.is og ingtor@kalka.is

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.