Víkurfréttir - 18.04.2013, Side 24
fimmtudagurinn 18. apríl 2013 • VÍKURFRÉTTIR24
Instagram
VF
MUNDU EFTIR AÐ MERKJA
MYNDIRNAR ÞÍNAR Á INSTAGRAM
SUÐURNESJAMENN
DUGLEGIR AÐ MYNDA
E f þú lumar á góðum myndum þá er um að gera að merkja þær rétt svo þær komist í pottinn í Instagram leik okkar sem enn er í fullum gangi. Í næstu viku veljum við svo
sigurmynd sem hlýtur að launum vegleg verðlaun frá Bláa lóninu,
Olsen Olsen og Sambíóunum Keflavík. Eins og alltaf eru Suður-
nesjamenn duglegir að mynda og myndirnar eru margar hverjar
glæsilegar. Fleiri myndir má sjá á heimasíðu okkar vf.is og á
facebooksíðu okkar. Hér að neðan má sjá brot af þeim myndum
sem eru nú þegar í pottinum. Er þín mynd þar á meðal?
Kókosolía
Það mætti kalla kókosolíu undraefni þar sem hún
gerir svo margt gott fyrir
heilsuna okkar. Kókosolía er
mettuð fita úr jurta-
ríkinu sem er samsett
úr svokölluðum miðl-
ungs fitusýruhlekkjum
(MCT) sem gera hana
einstaka en líkaminn
getur nýtt þessar fitur
beint sem orkugjafa
og eru auðmeltanlegar
miðað við aðrar olíur.
Kókosolía inniheldur
lauric sýru og caprylic
sýru sem eru mjög virk
efni sem talin eru hafa
ó n æ m i s s t y r k j a n d i
áhrif og sýkladrepandi
áhrif, þá sérstaklega gegn ýmsum sveppa-
sýkingum (s.s. Candida albicans). Hún inn-
heldur líka E-vítamín og góð andoxunar-
efni. Kókosolían er talin hafa jákvæð áhrif
á blóðfitu og hjarta- og æðakerfi þrátt fyrir
að vera mettuð fita en hún virðist brotna
öðruvísi niður í líkamanum en mettuð fita
úr dýraríkinu. Einnig gagnast kókosolían
fyrir húðkvilla eins og exem,
þurra húð og flösu í hársverði.
Kókosolían er tilvalin til matar-
gerðar t.d. til að steikja upp úr
þar sem hún er mjög hitaþolin
og hefur gott geymsluþol og
þránar ekki eins hratt og aðrar
jurtaolíur. Sem heilsubót í mat-
aræði okkar þá er sniðugt að
nota kókosolíuna út í boosta,
út í kaffi (kemur á óvart!), sem
viðbit ofan á brauðmeti, í eftir-
rétti og út í grauta. Útvortis
er gott að nota kókosolíu sem
líkamskrem eða nuddolíu og
bæta þá nokkrum dropum af
uppáhalds ilmkjarnaolíunni
út í, það er líka hægt að nota
hreina kókosolíu sem augn-
farðahreinsi. Vissulega er best
að kaupa lífræna kaldpressaða kókosolíu og
mæli ég með að eiga eina krukku í eldhúsinu
og eina inni á baðherbergi fyrir húðina.
Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir.
www.facebook.com/grasalaeknir.is
www.pinterest.com/grasalaeknir
Ásdís
grasalæKnir
sKrifar
heIlsUhoRnIð
BÓKARI
Óskum að ráða bókara í hálft starf á
skrifstofu okkar í Reykjanesbæ.
Vinsamlega sendið umsóknir
á netfang vidskiptastofan@simnet.is
VIÐSKIPTASTOFAN EHF.
Viðskiptastofan ehf hefur rekið
bókhalds- og ráðgjafastofu frá 1978.
Ritari pistilsins er fullur sam-viskubits yfir því að hafa í
bjartsýniskasti
talið vorið vera
komið. Að vísu
er fallegt út um
g l u g g a n n a ð
líta svo fremi að
hann sé hreinn,
en útsprungnar
páskaliljur og
túlípanar í vexti
hafa sannarlega fengið á bauk-
inn í þeim vetrarhretum sem við
höfum fengið að upplifa með
stuttu millibili. Þar sem jörð er
auð þá er lítið sem ver þessar
elskur fyrir næðingnum.
Hins vegar er aðdáunarvert að
fylgjast með endurreisninni þegar
líf færist í fallnar plönturnar og þær
rétta úr sér hægt og bítandi um leið
og veður hlýnar. Ég hef oft velt fyrir
mér hvort við séum ekki einfald-
lega að planta haustlaukunum of
snemma á haustin, því þeirra bíða
gjarnan vorhret líkt og við upplifum
þessa dagana. Blöðin þorna vegna
næðingsins og stilkarnir drjúpa
höfði. Á seinni árum hef ég dregið
það fram í desember og allt fram
í janúar að stinga niður laukum.
Afleiðingin er að sjálfsögðu síðari
blómgun en jafnframt fallegri, með
breiðum allt fram í júlímánuð. Ég
finn líka til með kirsuberjatrénu
úti í garði sem er alsett bleikum,
frosnum, blómum og mun vart
bera ávöxt í ár. Þetta staðfestir hve
mikilvægt skjólið er. Ég nýt þeirra
forréttinda að hafa byggt mér
gróðurhús strax og ég fluttist til
Reykjanesbæjar á sínum tíma. Þar
inni er sumar þar sem rósir eru
þegar í blóma og aðrar plöntur sem
sáð hefur verið fyrir í fullum vexti.
Að sjá líf kvikna af fræi og verða að
gróskumikilli plöntu veitir ómælda
ánægju, hvort sem er sumarblóm,
kryddjurt eða skógarplanta. Það
fylgir því spenningur að fylgjast
með fyrstu kímblöðunum koma
upp eftir að forræktað hefur verið
í bökkum. Á þessum tímapunkti
eru plöntuvísarnir nokkurs konar
massi án séreinkenna, óendanlega
viðkvæmir og þarfnast umönn-
unar. Þegar plönturnar eru síðan
færðar yfir í potta eða beð koma
fram eiginleikar einstaklingsins,
sumar plöntur verða alltaf veiklu-
legar, aðrar spjara sig vel, svo er
einnig um mannfólkið. Að rækta
má líkja við tilraunastarfsemi.
Þegar vel tekst til veitir það ómælda
gleði, þegar miður tekst hvetur það
til að gera betur næst. Maður öðlast
reynslu með því að lesa sér til og
deila með sér reynslu annarra. Þess
vegna stofna menn félagsskap, líkt
og við höfum gert hér á Suður-
nesjum. Við höfum fengið til okkar
fólk með mikla reynslu til að miðla
okkur, enda hafa fræðslufundirnir
verið afar vel sóttir. Síðastliðið
sumar var á Íslandi í fyrsta sinn
haldin norræn rósahelgi, enda hafa
íslenskir garðeigendur hingað til
ekki verið að flíka mikið reynslu
sinni í ræktun rósa. Sú upplifun
sem þátttakendur fengu var hins
vegar stórkostleg því margir góðir
ræktendur hafa mun lengur en
ætlað var skapað garða sem unun
er að ganga um. Systkin okkar af
Norðurlöndum voru uppnumin af
reynslu sinni eftir þessa helgi og
rituðu langa pistla í garðyrkjurit sín
er heim var komið. Einn þessara
ræktenda er Kristleifur Guðbjörns-
son fyrrverandi lögreglumaður
og margfaldur Íslandsmethafi í
frjálsum íþróttum. Hann var einn
af fyrstu íbúum Holtahverfis í Mos-
fellsdal og hefur ræktað af eljusemi
ásamt konu sinni garð sem engu er
líkur. Hundruð rósa, dalía og lilja
prýða garð þeirra hjóna og hann
veit deili á öllum plöntum og sögu
þeirra. Ritari skoðaði þennan garð
sl. sumar og varð fyrir hugljómun.
Nú ætlar Kristleifur að koma til
okkar þann 24. apríl og deila með
okkur reynslu sinni. Hann á mikið
safn mynda úr garðinum sínum,
sem hann ætlar að sýna okkur. Það
er því sérsök ánægja að fá hann til
okkar þetta kvöld og fagna síðan
sumri daginn eftir.
Fundurinn verður haldinn í Hús-
inu okkar (gamla K-húsið) kl. 20.
Léttar veitingar í fundarhléi.
Aðgangseyrir 500 kr. fyrir félags-
menn, 1000 kr. fyrir aðra. Verið
hjartanlega velkomin.
Konráð Lúðvíksson, for-
maður Suðurnesjadeildar
Garðyrkjufélags Íslands
n Ólafur Grétar oG ValGerður Snæland Skrifa:
Blómagarður áhugamannsins
PÓsTKAssInn