Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.04.2013, Side 29

Víkurfréttir - 18.04.2013, Side 29
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 18. apríl 2013 29 AUGLÝSING VEGNA KOSNINGA TIL ALÞINGIS 27. APRÍL 2013 Kjörskrá og kjörstaðir í Reykjanesbæ. Kjörskrá í Reykjanesbæ vegna kosninga til Alþingis sem fram fara þann 27. apríl 2013 liggur frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofum Reykjanesbæjar fram að kjördegi. Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Reykjanesbæjar. Kjörfundur fyrir íbúa í Innri Njarðvík, Höfnum og Ásbrú er í Akurskóla Kjörfundur fyrir íbúa í Ytri Njarðvík er í Njarðvíkurskóla Kjörfundur fyrir íbúa í Keflavík er í Heiðarskóla Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði. Kjörstaðir opna kl.09:00 og loka kl.22:00. Á kjördag mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur í Heiðarskóla sími 420 4515. Yfirkjörstjórn Reykjanesbæjar Afgreiðslustarf Verslunin Leonard í Flugstöð Leifs Eiríkssonar óskar eftir að ráða starfsmann í almenna afgreiðslu vegna sumarafleysinga. Um hlutastarf er að ræða. Við erum að leita að glaðlegu, samviskusömu og jákvæðu fólki. Skilyrði er góð enskukunnátta, snyrtileg og kurteis framkoma og að viðkomandi sé reyklaus. Umsókn ásamt mynd óskast send verslunarstjóra Leonard DF, Flugstöð Leifs Eiríkssonar, 235 Keflavíkurflugvelli eða netpóst df@leonard.is. Umsóknarfrestur er til 26. apríl 2013. Leonard ehf. Var stofnað árið 1991 og rekur fjórar verslanir sem eru leiðandi í sölu á úrum, skartgripum og fylgi- hlutum. Leoanard ehf, er framsækið fyrirtæki sem leggur mikið upp úr því að hafa á að skipa metnaðarfullu starfsfólki. Árgangur 1963 í Keavík, Njarðvík, Sandgerði og Garði  fagnar stórafmælisárinu í Oddfellow- salnum Grónni 6 þann  4. maí frá kl. 20:00. Nánari upplýsingar í síma 897 4252, Bryndís. Nefndin ÁRGANGUR 19634. MAÍER DAGURINN Leikfélag Keflavíkur sýnir um þessar mundir verkið „Með vífið í lúkunum“. Undanfarin ár hef ég sótt flestar sýningar leikfélagsins og yfirleitt haft gaman að. Að þessu sinni verð ég þó að segja að ég skemmti mér einstaklega vel. Verkið er leikið af „reyndari“ hluta leik- félagsins, - aðilum sem við höfum séð í mörgum verkum síðustu ár. Leikarar standa sig afar vel og sýningin flæðir bæði vel og er einstaklega skemmtileg. Það er vægt til orða tekið þegar ég segi að áhorfendur hafi margoft tekið andköf af hlátri. Tveir tímar af frábærri skemmtun þar sem enginn var svikinn en allir fóru brosandi/hlægjandi út. Mig langar með þessum skrifum að hvetja íbúa til að gefa sér tíma til að sjá sýningu leikfélagsins. Líkt og um marga menningarhópa innan sveitar- félagsins liggur að baki sýningunni hundruðir tíma í undirbúning og æfingar sem skila sér í góðu verki sem vert er að sjá. Þegar sveitarfélagið hefur á að skipa leikfélagi sem setur upp verk á borð við „Með vífið í lúk- unum“ með þeim glæsibrag sem raun ber vitni er ástæðulaust fyrir íbúa Reykjanesbæjar að aka til Reykjavíkur til að sjá góða sýningu. Ég óska félaginu til hamingju með frábæra sýningu. Böðvar Jónsson Frábær leiksýning Hertex rýmingarsala Hafnargata 50, Keflavík 22. - 27. apríl. Opnunartími kl. 12:00 - 17:00 Allur fatnaður 100 kr. stykkið Fullur poki af fatnaði kr. 1500,- Velkomin - Hjálpræðisherinn Næsta blað kemur út á miðvikudag, 24. apríl. Skilafrestur greina er nk. sunnudag.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.