Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.04.2013, Síða 30

Víkurfréttir - 18.04.2013, Síða 30
fimmtudagurinn 18. apríl 2013 • VÍKURFRÉTTIR30 Kef l av í k vann f r áb ær an karaktersigur gegn Val í hreinum úrslitaleik um hvort liðið kæmist áfram í úrslitaein- vígið um Íslandsmeistaratitilinn í Domino’s deild kvenna. Keflavík hafði betur 78-70 í fimmta leik liðanna í Toyotahöllinni á þriðju- dag og fer því í úrslitaeinvígi gegn KR um stóra titilinn. Útlitið var heldur dökkt hjá Keflavíkurs- túlkum eftir þrjá leikhluta en þá voru þær 10 stigum undir og allt leit út fyrir að liðið myndi þar með tapa sínum þriðja heimaleik í röð. Keflavíkurstúlkur mættu hins vegar dýrvitlausar í lokaleikhlut- ann og náðu með mikilli baráttu og góðum varnarleik að vinna loka- leikhlutann með 18 stiga mun og um leið tryggja sér átta stiga sigur í leiknum. „Við fórum að sýna hörku. Í fyrstu þremur leikhlutunum þá vorum við að leyfa Valsliðinu að ýta okkur úr stöðum í sóknarleiknum og vorum alltof mjúkar. Í fjórða leikhluta þá mættum við þeim með hörku. Það kom ekki til greina að tapa þremur heimaleikjum í röð,“ sagði Bryndís Guðmundsdóttir, leikmaður Keflavíkur, eftir leikinn. Hún átti góðan dag í liði Keflavíkur, skoraði 24 stig og tók 10 fráköst. Pálína Gunnlaugsdóttir kom þar á eftir með 20 stig. „Þetta var frábær sigur gegn frá- bæru Valsliði. Ég var ánægður með að þær stelpur sem voru aðalmenn- irnir á bak við þennan sigur hafa ekki verið það í öðrum leikjum í einvíginu til þessa. Helsti styrkur Keflavíkurliðsins er hve margar stelpur geta tekið að sér aðalhlut- verk,“ segir Sigurður Ingimundar- son, þjálfari Keflavíkur. „Það er mjög gaman að þjálfa Keflavíkur- stelpurnar – þær eru skemmtilegar og miklir keppnismenn. Úrslitaein- vígið gegn KR á eftir að verða mjög skemmtilegt. Þær eru með mjög öflugan erlendan leikmann [innsk. blm. Shannon McCallum] sem hefur svolítið séð um þetta fyrir þær og þetta verður mjög verðugt verkefni fyrir okkur.“ SPORTIÐ 2 Fimmtudagurinn 14. apríl 2011VÍKURFRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGAR 421 0000 NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS ÓSKAST Húsnæði óskast til leigu 3ja - 4ra herbergja íbúð óskast í Sandgerði. Uppl. í síma 845 8068 Guðný. Óska eftir 2ja - 3ja herbergja íbúð í Reykjanesbæ til leigu. Uppl. í síma 869 4891 Kristján. TIL SÖLU Einbýli til sölu í Keflavík 100 fm einbýli til sölu í Keflavík fæst keypt gegn yfirtöku lána frá Ils plús sölulaun. Húsið var tekið nánast allt í gegn 2008, áhvílandi lán um 16.8m afborgun 75 þús per mánuð. Leigandi getur fylgt. Einföld kaup og góð fyrsta eign. Uppl. í síma 698 3521. TAPAÐ/FUNDIÐ Schwinn reiðhjól 26" var skilið eftir fyrir utan hjá mér (sennilega stolið) fæst eingöngu afhent með réttri lýsingu. Endilega sendu mér línu á locost@simnet.is ef þú telur að þetta sé þitt hjól. ÓDÝR UMFELGUN FÓLKSBÍLL KR. 5.500,- JEPPLINGAR KR. 6.500,- Iðavellir 9c - 230 Reykjanesbæ - 421 7979 www.bilarogpartar.is Ómar Örn Sævars-s o n , l e i k m a ð u r Grindavíkur í körfuknatt- leik, féll á lyfjaprófi eftir bikarúrslitaleik Grinda- víkur og Stjörnunnar sem fram fór í febrúar síðast- liðnum. Ómar fór í lyfja- próf eftir leikinn og mæld- ist ólöglegt örvandi lyf í líkama hans eftir leikinn. Hann var í kjölfarið úrskurðaður í bráðabirgðabann en lyfjaráð fer fram á sex mánaða keppnisbann. Enn á eftir að kveða upp dóm í mál- inu. Strax og í ljós kom að Ómar hefði fallið á lyfjaprófi greindi hann for- ráðamönnum Grindavíkur frá mál- inu og skýrði frá sinni hlið. Ómar drakk orkudrykkinn Jack 3D fyrir bikarúrslitaleikinn en í þeim drykk er efni sem er á bannlista. „Ómar er miður sín út af málinu og hefur gert hreint fyrir sínum dyrum gagnvart stjórn, þjálfara og leik- mönnum Grindavíkurliðsins. Ómar kom fram af heilindum í öllum sam- skiptum við lyfjaráð og afhenti þeim umrætt efni og játaði strax að hafa neytt drykkjarins sem inniheldur efnið. Ómar hefur frá því hann kom til Grindavíkur verið til mikillar fyrir- myndar bæði innan vallar og utan. Stjórn körfuknatt- leiksdeildar hlakkar til áframhaldandi samstarfs við Ómar á komandi tímabilum. Jafnframt er ljóst að leikmaður ber ábyrgð á því hvað hann lætur ofan í sig. Ekki er enn búið að dæma í málinu en krafa lyfjaráðs er að leik- maðurinn verði dæmdur í 6 mánaða bann. Bráðabirgðabann tók gildi um leið og niðurstaða lyfjaprófs hafði verið kynnt Ómari. Ómar og stjórn körfuknattleiksdeildar munu una niðurstöðu dómstóls ÍSÍ,“ segir í til- kynningu frá UMFG. Grindavík hóf í gær úrslitaeinvígi sitt við Stjörnuna um Íslandsmeistaratitlinn. Víkur- fréttir var farið í prentun áður en úr- slit lágu fyrir. Ítarleg umfjöllun er um leikinn á vef Víkurfrétta. Ingunn Embla Kristínardóttir, leikmaður kvennaliðs Kefla- víkur í körfuknattleik, hefur fengið stærra hlutverk í liðinu en hún átti von á í upphafi leik- tíðar. Hún verður 18 ára gömul í ár og hefur nýtt vel þau tækifæri sem hún hefur fengið með liðinu í vetur. Ingunn Embla hefur leikið yfir 20 mínútur að meðaltali í vetur og stimplað sig vel inn í lið deildar- og bikarmeistara Kefla- víkur sem er komið í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn. „Ég hef fengið stærra hlutverk í lið- inu en ég átti von á í upphafi leik- tíðar. Ég legg mig fram og geri alltaf mitt besta,“ segir Ingunn Embla. Hún er ánægð með að Keflavík sé komið í úrslit. „Það var mjög erfitt að komast áfram og Valsliðið er mjög gott. Það er mikil pressa á okkur, sérstaklega frá fjölmiðlum og við fundum fyrir því. Kefla- víkurliðið er mjög ungt með litla reynslu en svo eigum við þrjá mjög reynslumikla leikmenn sem jafnar þetta aðeins út.“ Andlitsgríman truflar ekki Það hefur ekki farið framhjá neinum sem hefur fylgst með Keflavíkurliðinu í undanförnum leikjum að Ingunn Embla leikur með andlitsgrímu. Hún varð fyrir því óláni að nefbrotna á dögunum. „Þetta er í þriðja sinn sem ég nefbrotna. Þetta gerðist í síðasta leiknum í deildinni gegn Fjölni. Ég var hindruð og fékk óvart olnbogann frá leikmanni Fjölnis í nefið. Þetta var óviljaverk en var mjög vont. Það venst aldrei að nef- brotna,“ segir Ingunn og hlær. „Ég fékk í kjölfarið nýja og sér- smíðaða grímu og það truflar mig ekkert að spila með hana. Ég sé mjög vel. Ég á að nota hana í nokkrar vikur í viðbót þannig að líklega klára ég mótið með hana,“ segir Ingunn Embla. Hún er spennt fyrir úrslitaeinvíginu gegn KR. „Ef við erum sterkar og spilum saman sem lið þá hef ég ekki trú á öðru en að við klárum þetta með Íslandsmeistaratitli. Stemmningin í liðinu hefur verið frábær eftir síðustu tvo leiki. Við erum allar mjög góðar vinkonur og vinnum hvor fyrir aðra. Það er mjög góð umgjörð í kringum liðið. Það er mjög gaman að spila fyrir framan svona marga áhorfendur í síðasta leik – smá stressandi en það hvarf um leið og maður fór inn á völl- inn,“ segir Ingunn sem ætlar sér að verða lykilleikmaður í Keflavík í framtíðinni. „Við erum með mjög sterka ár- ganga alveg niður í fimmta bekk og spennandi tímar framundan. Ég stefni að því að vera lykilleikmaður í Keflavíkurliðinu í framtíðinni.“ Ómar Örn féll á lyfjaprófi - Drakk orkudrykk sem innihélt ólöglegt örvandi efni Ingunn Embla Kristínardóttir hefur fengið stærra hlutverk hjá Keflavík en hún átti von á:Keflavíkurstúlkur í úrslit Nefbrotnaði í þriðja sinn Keflavík mætir KR í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn:

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.