Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.04.2013, Blaðsíða 31

Víkurfréttir - 18.04.2013, Blaðsíða 31
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 18. apríl 2013 31 KJÖRFUNDUR Í GRINDAVÍK VEGNA ALÞINGISKOSNINGA 2013 Alþingiskosningar fara fram laugardaginn 27. apríl 2013. Kjörskrá liggur frammi til sýnis á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar, Víkurbraut 62 2. hæð, fram að kjördegi. Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort þeir séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá skal beint til bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar. Kosið er í Grunnskóla Grindavíkur, Ásabraut 2. Kjörstaður opnar kl. 09:00 og lokar kl. 22:00. Sérstök athygli er vakin á því að kjósandi sem ekki hefur meðferðis persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði. Kjörstjórn Grindavíkurbæjar KANNTU AÐ GERA BRJÁLÆÐISLEGA LJÚFFENGT PIE? Keppt er í þremur flokkum: Epla-pie, berja-pie og í opnum flokki. Luis E. Arreaga, sendiherra Bandaríkjanna, Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar og Jói Fel dæma keppnina. Skráðu þig á keppni@asbru.is með nafni og farsímanúmeri og segðu hvernig pie þú ætlar að koma með. Í R E Y K J A N E S B Æ Opinn dagur Opinn dagur á Ásbrú er haldinn ár hvert á sumardaginn fyrsta. Bjóðum ykkur velkomin á okkar árlega karnival 25. apríl kl. 13–16 í Atlantic Studios. Að deginum standa Kadeco, Keilir og Háskólavellir. Pie-keppni á Opnum degi á Ásbrú. PIPA R \ TBW A • SÍA • 131268 Íslandsmeistaramót í 50 metra sundlaug fór fram um síðast- liðna helgi. ÍRB átti 30 sundmenn á mótinu eða 23% keppenda. Liðið vann ti l tvennra gull- verðlauna, átta silfurverðlauna, 10 bronsverðlauna og var liðið í 13 skipti í fjórða sæti á mótinu. Baldvin Sigmundsson, Þröstur Bjarnason og Sunneva Dögg Frið- riksdóttir náðu öll lágmörkum fyrir Ólympíudaga Evrópuæsk- unnar í Hollandi og náði Íris Ósk Hilmarsdóttir lágmörkum á Mare nostrum mótið í þremur greinum. Nokkrir sundmenn voru mjög ná- lægt lágmörkum fyrir Evrópumót Ungmenna en aðeins einn Íslend- ingur hefur náð lágmörkunum sem hafa verið þyngd að undanförnu. Sunneva Dögg setti Íslandsmet í aldursflokki 13-14 ára í 1500 m skriðsundi. Davíð Hildiberg Aðal- steinsson úr ÍRB var síðan valinn í landsliðið sem fer á Smáþjóða- leikana. Í ár komu 16 af 17 verðlaunum ÍRB-liða frá sundmönnum sem æfa í Reykjanesbæ. Í fyrra unnust einnig 17 verðlaun en þá unnu þrír sundmenn (Árni Már Árnason, Erla Dögg Haraldsdóttir og Davíð Hildiber) sem æfa í Bandaríkj- unum, 12 af þeim verðlaunum. Það er til marks um miklar framfarir hjá sundmönnum okkar sem ekki æfa í háskólum í Bandaríkjunum. Miklar framfarir hjá ÍRB

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.