Víkurfréttir - 18.04.2013, Qupperneq 32
Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að sækja fram á öllum sviðum atvinnulífsins og veita
Suðurnesjamönnum vorboða um vinnu. Öflugt atvinnulíf skapar fjölbreytt tækifæri.
Með aukinni verðmætasköpun tryggjum við hagsæld og meiri ráðstöfunartekjur
fyrir almenning í landinu.
› Sköpum á annað þúsund störf með því að koma álverinu í Helguvík af stað
› Nýtum orkuauðlindirnar
› Aukum arðsemi sjávarútvegsins og sjáum tengda starfsemi blómstra
› Styðjum nýsköpunarsamfélagið á Ásbrú og menntastofnanir okkar á borð við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja, Keili og Fisktækniskólann í Grindavík.
› Lækkum tryggingagjald og aukum svigrúm til að fjölga starfsmönnum
› Stuðlum að verðmætasköpun í ferðaþjónustu og nýtum okkur fegurð og sérstöðu Reykjanessins
› Lækkum skatta og vörugjöld
› Byggjum upp þau fjölmörgu sprotafyrirtæki sem eru í farvatninu á Suðurnesjum
Nýtum tækifærin - hefjumst handa og sækjum fram!
Verðmætasköpun
er forsenda framfara
Sjálfstæðisflokkurinn í Suðurkjördæmi NÁNAR Á 2013.XD.IS
- vorboði um vinnu
Ég trúi því sjálfur að ég hrjóti ekki. Neita því staðfastlega
þegar slíkt
er borið upp
á mig. Hef
reyndar einu
sinni á ævinni
vaknað við
hroturnar í
sjálfum mér
en tel það
afsakanlegt. Var
ofsalega þreyttur og lúinn eftir vel-
útilátinn barning. Ég er hins vegar
þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga
hraustmenni að í þessari nætur-
þjálfun. Ófáar veiðiferðirnar sem
ég hef farið með bræðrum mínum
og frændum, ættuðum úr Höfnum,
þar sem þilin hafa nötrað og nætur-
friðurinn rofinn. Þessir veiðikofar
eru ekki byggðir fyrir slíkar aðfarir.
Nokkrum sinnum keypt mér
eyrnatappa til að eiga við þessa
djöfla en það er afskaplega óþægi-
legt að sofa með þessa korktappa í
eyrunum. Fyrir vikið hef ég oftar
en ekki fengið að njóta íslenskrar
náttúru á bjartri sumarnóttu.
Fékk það svo óþvegið ekki alls fyrir löngu. Beint í andlitið.
Frúin skellti sér í helgarferð með
Njarðvíkurkvensum til að bæta
fyrir hryðjuverkaógnina í inn-
lánsráninu títtnefnda og á meðan ég
stjórnaði sjónvarpsfjarstýringunni
heima fyrir, keypti hún hrotuplástur
í Boots. Fyrir mig. Afhenti mér
hann skömmu eftir heimkomuna.
Ég væri kominn á það stig, að nú
dygði ekkert annað en plástur á
nefið eða þurfa að sofa í næsta her-
bergi. Jæja elskan mín, velkomin
heim! Ég stakk pakkanum ofan í
náttborðsskúffuna og neitaði að
prófa límbandið. Alveg viss um
að ég hryti ekki. Málið fyrntist.
Svo gerðist það. Páskarnir að baki og við hjónin að ganga til náða.
Dásamlegt frí að baki. Ég var eilítið
seinn í náttfötin og bókalesturinn
svæfði rekkjunautinn óvenju
snemma. Nema hvað, ég var varla
lagstur í koju þegar hún byrjar að
hrjóta. Mínúturnar tifuðu og eftir
nokkrar byltur gafst ég upp. Fór
framúr og ákvað að kíkja á imbann
á meðan þetta gengi yfir. Vildi
fyrir alla muni ekki trufla værðina.
Horfði á heila bíómynd og ekkert
lagaðist. Tveggja tíma lungnaæfing
hlýtur að hafa tekið á. Ég bar þetta
undir hana kvöldið eftir og fullviss-
aði hana um að þetta hafi allt að því
nálgast kæfisvefn. Kíkti í náttborðs-
skúffuna og þar sem ég var ekki
búinn að opna pakkann góða frá
útlöndum, bauð ég henni að prófa.
Hún tók þetta mjög alvarlega enda ekki alvön að hrjóta
eins og berserkur. Fullvissaði hana
um að límdótið væri ekki runnið
úr gildi. Hvatti hana eindregið til
þess að láta á reyna. Blessunarlega
sefur nú yndið mitt afar hljóðlaust
en minnir óneitanlega um margt
á fótfráan Fowler úr Bretaveldi.
vf.is
FIMMTUDAGURINN 18. APRÍL 2013 • 15. TöLUbLAð • 34. áRGANGUR
VALUR KETILSSON SKRIFAR
FIMMTUDAGSVALS
Frú
Fowler
AUGLýSInGASíMI
VíkUrFréTTA
421 0001