Læknablaðið : fylgirit - 01.10.2010, Page 19

Læknablaðið : fylgirit - 01.10.2010, Page 19
XIX ÞING LYFLÆKNA FYLGIRIT 65 úr fleiðru sýndu örvef en engar asbestbreytingar. Við innlögn var mikill bjúgur á neðri hluta líkamans og vó sjúklingurinn 160 kg. Hann fékk þvagræsilyf í æð. Hjartaómskoðun sýndi skertan samdrátt á vinstri slegli og grun um aðþrengjandi gollurshús. A tölvusneiðmyndum og segulómun sást greinilega þykknað gollurshús (4-5 mm). Við hægri og vinstri hjartaþræðingu féllu þrýstingskúrfur beggja slegla saman í lagbili (kvaðratrótarteikn). Meðalþrýstingur í lungnaslagæð mældist 21 mmHg og fleygþrýstingur 19 mmHg. A 4 vikum tókst að ná af honum bjúgnum og hann var útskrifaður með háskammta þvagræsilyf. Hálfu ári síðar var fremri hluti gollurshússins fjarlægður með skurðaðgerð. Aðgerðin gekk vel en gollurshúsið reyndist glerhart og kalkað. Vefjaskoðun sýndi ósérhæfða bólgu. Gangur eftir aðgerð var góður og samdráttur hjartans á ómskoðun betri. Tæpum tveimur árum frá aðgerð er hann við góða heilsu og útlimabjúgur og mæði að mestu leyti horfin á lágskammta þvagræsilyfjameðferð. Umræða: Þetta tilfelli sýnir hversu erfitt getur verið að greina trefjagollurshús, þrátt fyrir dæmigerð einkenni og sjúkdómsteikn. Með skurðaðgerð er hægt að lækna sjúkdóminn. V017 Risagúll frá ósæðarrót - sjúkratilfelli l’orstcinn Viðar Viktorsson1, Martin Ingi Sigurðsson', bórarinn Amórsson', Jón Þór Sverrisson2, Tómas Guðbjartssonu 'Hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala, 2lyflækningadeild Sjúkrahúss Akureyrar, 3læknadeild Háskóla íslands Inngangur: Ósæðargúlar eru oftast staðsettir á kviðarhluta ósæðar eða í brjóstholi. Sjaldgæft er að ósæðargúlar eigi upptök sín frá ósæðarrót. Hér er lýst nýlegu tilfelli þar sem risagúll gekk út frá hægri sinus valsalva. Sjúkratilfelli: Áður hraust sjötug kona leitaði læknis vegna mæði. Við hjartahlustun heyrðist óhljóð í lagbili yfir ósæðarloku og á hjartalínuriti sást 1° AV blokk. Tekin var lungnamynd sem sýndi fyrirferð í hægra brjóstholi, sem á tölvusneiðmyndum reyndist vera 10x9 cm ósæðargúll, upprunninn frá hægri sinus valsalva. Á hjartaómun sást iðustraumur í gúlnum og meðal ósæðarlokuleki. Gúllinn þrýsti á hægri gátt og slegil en útstreymisbrot vi. slegils var eðlilegt. Ákveðið var að fjarlægja gúlinn með skurðaðgerð. Á kransæðaþræðingu fyrir aðgerð sáust óeðlilegar kransæðar með næstum fjórfaldri víkkun (ectasia) á vi. framveggsgrein hjartans (LAD). Gerð voru ósæðarrótarskipti og komið fyrir ósæðarrót úr svíni (Freestyle®) í stað gúlsins sem var fjarlægður. Gangur eftir aðgerð var góður og hún útskrifaðist heim til sín 3 vikum síðar. Hálfu ári frá aðgerð er hún án einkenna og ósæðarlokan þétt. Umræða: Risagúll frá sinus valsalva er sjaldgæft fyrirbæri sem getur haft lífshættulega fylgikvilla í för með sér, sérstaklega rof og blóðsegarek. Einkenni geta geta þó verið hægfara eins og sást í þessu tilfelli, en mæði var rakin til versnandi ósæðarlokuleka auk þess sem gúllinn þrýsti á hægri helming hjartans. Um er að ræða einn stærsta gúl sinnar tegundar sem lýst hefur verið, en mikil víkkun kransæða vekur einnig athygli. V018 Erfðabreytileiki í SCN10A geninu eykur áhættu á leiðslutruflunum í hjarta og þörf fyrir gangráð Hilma Hólm1, Hrafnhildur Stefánsdóttir2, Danfel F. Guðbjartsson', Guðmundur Þorgeirsson2'', Augustine Kong1, Unnur Þorsteinsdóttir1'3, Davíð O. Amar21, Kári Stefánsson13 ‘íslenskri erfðagreiningu, 2lyflækningasviði Landspítala, 'læknadeiid Háskóla íslands Inngangur: Tólf leiðslu hjartalínurit er mikilvæg rannsókn sem endurspeglar m.a. starfsemi sérhæfða leiðslukerfisins. Meðal breyta sem eru mældar eru hjartsláttarhraði, PR bil og QRS bil sem allar gefa upplýsingar um rafleiðni í hjarta. Frávik í þessum mælingum tengjast áhættu á ýmsum hjartasjúkdómum. Tilgangur rannsóknarinnar var að leita að fylgni milli breytileika í erfðamenginu og hjartsláttarhraða, lengd PR bils og QRS biis. Efniviður og aðferðir: Upplýsingum um mælibreytur var safnað úr gagnabanka hjartalínurita (Tracemaster) við Landspítala (2002- 2007). Gerð var víðtæk erfðamengisleit í gögnum frá 10.373-12.760 einstaklingum með upplýsingar um bæði arfgerð og svipgerð. Áhugaverðum tengslum var fylgt eftir í 9.152-10.352 einstaklingum til viðbótar. Kannað hvort tengsl væru á milli ýmissa takttruflana og þeirra erfðabreytileika sem sýndu fylgni við hjartsláttartíðni, lengd PR bils og/ eða QRS bils. Niðurstöður: Marktæk tengsl fundust milli sjö mismunandi erfða- breytileika og einnar eða fleiri hjartalínuritsbreytu. Þar á meðal var erfðabreytileiki (rs6795970) í geninu SCN10A með mjög sterka fylgni við bæði lengd PR bils (P = 9,5 x 10'59) og QRS bils (P = 3,5 x 10 9). Sami breytileiki hafði einnig marktæka fylgni við gangráðsísetningu í íslensku þýði (OR = 1,13, P = 0,0029, N = 1.252 tilfelli og 48.114 viðmið). Samsætan sem hefur fylgni við lengt PR/QRS bil hefur fylgni við auknar líkur á gangráðsísetningu. Ályktanir: Erfðabreytileikinn rs6795970 í geninu SCN10A hefur fylgni við bæði lengd PR/QRS bils og þörf á gangráð. SCN10A er náskylt SCN5A sem skráir fyrir spennustýrðum natríumgöngum í hjarta. Stökkbreytingar í SCN5A hafa verið tengdar mörgum hjartasjúkdómum, en þetta er í fyrsta skipti sem annað natríumganga gen en SCN5A er tengt rafleiðni hjartans og hjartasjúkdómum. V019 Algengi reykinga og langvinnrar lungnateppu hjá skjólstæðingum Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri Guðrún Dóra Clarke1, Gunnar Guðmundsson2-5 * * *, Jón Steinar Jónsson3-5, Sigrún Sif Jóelsdóttir4, Magnús Ólafsson1 'Heilsugaíslustöðinni á Akureyri, 2lungnadeild Landspítala, 3Heilsugæslunni í Garðabæ, 4rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri, 5læknadeild Háskóla íslands Inngangur: Skaðsemi reykinga er vel þekkt og hafa rannsóknir sýnt fram á tengsl þeirra við ýmsa lífshættulega sjúkdóma þar á meðal langvinna lungnateppu (LLT). Árið 2009 reyktu 16% Islendinga 40 ára og eldri daglega. Nýleg íslensk rannsókn frá árinu 2007 sýndi að algengi LLT hjá 40 ára og eldri á höfuðborgarsvæðinu var 18%. Það er vel þekkt að LLT er mjög vangreindur sjúkdómur og greinist oft á síðari stigum. Hlgangur rannsóknarinnar var m.a. að kanna algengi LLT á einni heilsugæslustöð hjá skjólstæðingum með sögu um reykingar og leggja mat á alvarleika sjúkdómsins við greiningu. Efniviður og aðferðir: Úrtakið voru allir 40 ára og eldri sem leituðu til Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri á fjórum samfelldum vikum (febrúar-mars 2010). Rannsóknin var í formi spurningalista sem þátttakendur svöruðu en valinn markhópur reykingafólks var síðar kallaður inn til lungnamælingar (spirometriu). Niðurstöður: Afhentir voru alls 416 spurningalistar á tímabilinu og voru heimtur 262 listar (63%). Af þeim 262 voru 142 (54%) sem sögðust reykja eða einhvern tímann hafa reykt og þar af höfðu 124 af þeim áhuga á þátttöku f lungnamælingu. Komu til mælinga 104 (73%) sem uppfylltu skilyrði markhópsins og reyndust 97 mælingar áreiðanlegar. Reyndust N=16 (16,5%) hafa mælanlega LLT og þar af 10 einstaklingar (62,5%) sem ekki höfðu fyrri sögu um LLT. Af þessum 10 einstaklingum með áður óþekkta LLT voru N=3 (30%) með LLT á stigi I og N=7 (70%) á stigi II. Af 262 einstaklingum reykja N=33 (12,7%). LÆKNAblaðið 2010/96 19

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.