Læknablaðið : fylgirit - 01.10.2010, Blaðsíða 24

Læknablaðið : fylgirit - 01.10.2010, Blaðsíða 24
XIX ÞING LYFLÆKNA FYLGIRIT 65 V033 Árangur lungnasmækkunaraðgerða við lungnaþembu á íslandi 1996-2008 Sverrir I. Gunnarsson1, Kristinn B. Jóhannsson2, Marta Guðjónsdóttir3,5, Hans J. Beck3, Bjöm Magnússon4, Tómas Guðbjartsson2-5 'Lyflækningasviði, 2hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala, 3hjarta- og lungnarannsókn Reykjalundi, 4Fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupstað, 5læknadeild Háskóla íslands Inngangur: Lungnasmækkunaraðgerð (lung-volume reduction surgery) getur bætt líðan og lífshorfur sjúklinga með alvarlega lungnaþembu. Þar sem fylgikvillar eru tíðir hafa þessar aðgerðir þó verið umdeildar. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna árangur þessara aðgerða hér á landi. Efniviður og aðferðir: Framsæ rannsókn á 16 sjúklingum (meðalaldur 59 ár, 10 karlar) með alvarlega lungnaþembu sem gengust undir lungnasmækkunaraðgerð á Landspítala frá 1996 til 2008. Flestir sjúklingarnir voru stórreykingamenn og höfðu reykt í 49 pakkaár að meðaltali. I gegnum bringubeinsskurð var -20% af efri hluta beggja lungna fjarlægður með heftibyssu. Skráð voru afdrif sjúklinga, fylgikvillar, legutími og öndunarmælingar fyrir og 3 mánuðum eftir aðgerð. Meðaleftirfylgd var 8,7 ár og miðaðist við 31. des. 2009. Niðurstöður: Aðgerðartími var 86 mín. (bil 55-135) og miðgildi legutíma 17 dagar (bil 9-85). Allir sjúklingarnir lifðu af aðgerðina. Viðvarandi loftleki (n=7) var algengasti fylgikvillinn en 4 þurftu í enduraðgerð, 3 vegna bringubeinsloss og hinir vegna blæðingar, gallblöðrubólgu og rofs á smágimi. Einn sjúkling þurfti að endurlífga í enduraðgerð. FEVj hækkaði marktækt um 34%, úr 0,97 L (33% af spáðu) fyrir aðgerð í 1,3 L (44% af áætluðu) (p<0.001) eftir aðgerð og FVC hækkaði marktækt úr 2,9 L (76% af spáðu) í 3,3 L (87% af spáðu) eftir aðgerð (p=0,014). Aukning í þoli var hins vegar ekki marktæk, eða úr 69 W í 71 W eftir aðgerð (p=0,09). Við eftirlit voru 10 af 16 sjúklingum á lífi og voru eins og 10 ára lífshorfur 100% og 60%. Alyktanir: FEV, og FVC mælingar jukust marktækt eftir aðgerð og allir sjúklingarnir lifðu af aðgerðina. Tíðni alvarlegra fylgikvilla var þó há og legutími langur. Túlka verður þessar niðurstöður varlega þar sem um lítinn sjúklingahóp er að ræða og viðmiðunarhópur ekki til staðar. V034 Árangur skurðaðgerða við risablöðrum í lungum Sverrir I. Gunnarsson', Kristinn B. Jóhannsson2, Hilmir Ásgeirsson1, Marta Guðjónsdóttir’-5, Hans J. Beck3, Bjöm Magnússon4, Tómas Guðbjartsson2,5 ‘Lyflækningasviði, 2hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala, 3hjarta- og lungnarannsókn Reykjalundi, 4Fjórðungssjúkrahúsinu á Neskaupstað, 5læknadeild Háskóla ísland Inngangur: Risablöðrur (giant bullae) í lungum eru sjaldgæf fyrirbæri sem ná yfir að minnsta kosti 1/3 lungans. Þær greinast oftast í efri lungnablöðum miðaldra stórreykingamanna og skerða lungnastarfsemi með því að þrýsta á aðlægan lungnavef. Mælt er með skurðaðgerð ef einkenni eða fylgikvillar (til dæmis loftbrjóst) hafa gert vart við sig. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna árangur aðgerða við risablöðrum hér á landi. Efniviður og aðferðir: Frá 1992-2008 gengust 12 sjúkl. (aldur 60 ár, 11 karlar) undir risablöðrubrottnám á lslandi. Stærð blaðranna var >30% af heildarrúmmáli lungans í öllum tilvikum og 8 sjúkl. höfðu blöðrur í báðum lungum. Flestir sjúklingarnir voru með alvarlega lungnaþembu (GOLD-stig III eða IV) og höfðu reykt í að meðaltali 33 ár. Blöðrurnar voru fjarlægðar í gegnum brjótholsskurð (n=4) eða bringubeinsskurð (n=8). Lungnamælingar voru gerðar fyrir og eftir aðgerð. Meðaleftirlitstími var 8,8 ár og miðast við 31. des. 2009. Niðurstöður: Aðgerðirnar tóku 91 mín. að meðaltali (bil 58-150) og fylgikvillar komu ekki fyrir í aðgerð. FEVj fyrir aðgerð mældist að meðaltali 1,0 L (33% af spáðu) og FVC 2,9 L (68% af spáðu). Tveimur mánuðum eftir aðgerð hækkaði FEV^ marktækt um 80% í 1,8 L (58% af spáðu) (p=0,008) en FVC hækkaði um 7% í 3,1 L (81% af spáðu) (p=0,18). Helstu fylgikvillar eftir aðgerð voru viðvarandi loftleki (>7 d.) (n=9) og lungnabólga (n=2). Einn sjúklingur þurfti enduraðgerð vegna bringubeinsloss. Miðgildi legutíma var 24 dagar (bil 10-74). Við síðasta eftirlit voru 7 sjúklinganna á lífi en 5 og 10 ára lífshorfur voru 100% og 63%. Alyktanir: Arangur þessara aðgerða er góður. FEV^ hækkaði marktækt eftir aðgerð og alvarlegir fylgikvillar voru sjaldgæfir. Allir sjúklingamir voru á lífi 5 ámm frá aðgerð. Viðvarandi loftleki eftir aðgerð er algengt vandamál og lengir legutíma þessara sjúklinga verulega. V035 Loftmengun í Reykjavík og notkun lyfja gegn teppusjúkdómum í öndunarvegum Hanne Krage Carlsen1, Helga Zoega1, Unnur Valdimarsdóttir', Þórarinn Gíslasonu, Birgir Hrafnkelsson2 ’Miðstöð í lýðheilsuvísindum, læknadeild, 2raunvísindadeild Háskóla íslands, 3lungnadeild Landspítala Inngangur: Loftgæði á höfuðborgarsvæði íslands eru yfirleitt góð en brennisteinsmengun (H2S) frá jarðhitavirkjunum og svifryk (PM10) eru áhyggjuefni. Skammtímaáhrif H2S á heilsu eru nær óþekkt. Sýnt hefur verið fram á að svifryk veldur versnun á einkennum öndunarfærasjúkdóma. Markmið rannsóknarinnar var að kanna skammtímaáhrif loftmengunar á heilsu. Efniviður og aðferðir: Fengnar voru upplýsingar úr lyfjagagnagrunni landlæknisembættisins um fjölda einstaklinga 18 ára og eldri sem bjuggu á höfuðborgarsvæðinu sem leysti út lyf gegn teppusjúkdómi í öndunarvegi (ATC-lyfjaflokkur R03A) á hverjum degi. Gögn um loftmengun voru fengin frá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar. Rannsóknartímabilið var frá mars 2006 til maí 2008. Poisson aðhvarfsgreining var notuð til að greina samband þriggja daga meðaltals- og hæsta dagsgildis mengunar (PM]0, H2S, níturoxíðs (N02) og ósons (03)) við fjölda einstaklinga sem leystu út lyf. Leiðrétt var fyrir áhrifum veðurs, tímaþætti, flensutímabilum og vikudögum. Niðurstöður: Jákvætt samband reyndist á milli loftmengunar og fjölda einstaklinga á hverjum degi sem leysti út lyf. Sambandið var tölfræðilega marktækt fyrir þriggja daga meðaltal H2S og PM10 með 3-5 daga seinkun og samsvarar áhrifin 3% og 2% aukningu þegar mengun fór úr lOnda upp í 90sta hundraðshlutamark. Þá fannst marktækt samband á milli lyfjanotkunar og þriggja daga meðaltal hæsta klukkutímagildis allra mengunarþátta. Alyktanir: Aukin loftmengun á höfuðborgarsvæði Islands virðist hafa væg tengsl við lyfjanotkun borgarbúa við teppusjúkdómi i öndunarvegum, ekki síst þegar litið er til hæstu mengunargilda. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að H2S auki einkenni öndunarfærasjúkdóma jafnvel þegar aukin mengun varir aðeins í skamman tíma. 24 LÆKNAblaðið 2010/96

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.