Læknablaðið : fylgirit - 01.10.2010, Side 35
XIX Þ I N G LYFLÆKNA
FYLGIRIT 65
ganglim hefur lækkað um helming frá fyrri rannsókn, en tíðni djúpra
bringubeinssýkinga (2,0%) er svipuð og í eldri rannsókn (2,5%).
V069 Bringubeinsfistlar eftir opnar hjartaskurðaðgerðir - tíðni,
áhættuþættir og horfur
Steinn Steingrímssonu, Tómas Guðbjartsson'-3, Ronny Gustafsson2, Arash Mokhtari2, Richard
Ingemansson2, Johan Sjögren2
‘Hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala, 2hjartaskurðdeild Háskólasjúkrahússins á Skáni,
Svíþjóð, 3Iæknadeild Háskóla íslands
Inngangur: Bringubeinsfistlar er alvarlegur en fátíður fylgikvilli opinna
hjartaaðgerða. Erfitt er að uppræta þessa fistla og oft þörf á langvarandi
sýklalyfjameðferð og endurteknum skurðaðgerðum. Tilgangur þessarar
rannsóknar var að kanna tíðni þessara fistla, skilgreina áhættuþætti og
kanna afdrif og lifun sjúklinganna.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin byggir á framsýnum gagnagrunni
hjartaskurðdeildar Háskólasjúkrahússins í Lundi, eða 12.297 opnum
hjartaaðgerðum frá 1999-2008. Af þeim greindust 30 sjúklingar með
bringubeinsfistil. Aðhvarfsgreining var notuð við mat á áhættuþáttum
og 120 (4:1) sjúklingar án fistla notaðir sem samanburðarhópur.
Niðurstöður: Tíðni bringubeinsfistla var 0,23% einu ári frá aðgerð.
Meðalaldur sjúklinga var 68 ár, þar af 77% karlar. Flestir, eða 63%,
höfðu farið í kransæðahjáveituaðgerð og 20% í ósæðarlokuskipti. Helstu
áhættuþættir fistla voru fyrri saga um sýkingu í bringubeinsskurði
(OR=15,7), nýrnabilun (OR=12,5), reykingar (OR=4,7) og þegar beinvax
var notað í upphaflegu aðgerðinni (OR=4,2). Sárasugu (VAC) var beitt í
20 alvarlegustu tilfellunum og létust t\'eir sjúklingar á meðan meðferð
stóð. Fimm ára heildarlifun sjúklinga með fistla var 58% borið saman við
85% í viðmiðunarhóp (p=0,003).
Ályktanir: Dánartíðni er aukin hjá sjúklingum með bringubeinsfistla
og fylgikvillar tíðir. Fyrri sýking í bringubeinsskurði og nýrnabilun eru
langmikilvægustu áhættuþættirnir. Flestir hafa þó ekki fyrri sögu um
sýkingu í bringubeini, sem bendir til að í þorra tilfella sé um síðbúna
sýkingu að ræða í kringum stálvíra sem halda saman bringubeininu. Á
síðari árum hefur sárasuga reynst vel í meðferð þessara sjúklinga.
V070 Bráður nýrnaskaði á gjörgæsludeildum - notkun útreiknaðra
grunngilda kreatíníns í sermi til skilgreiningar á bráðum nýrnaskaða
og alvarleika stigunar samkvæmt RIFLE-skilmerkjum
íris Ösp Vésteinsdóttir1, Ólafur Skúli Indriðason-, Kristinn Sigvaldason,3 Gísli H. Sigurðsson13
'Læknadeild Háskóla fslands, 'nýrnalækningaeiningu, 3svæfinga og gjörgæsludeild
Landspítala
Inngangur: Tíðni bráðs nýrnaskaða meðal gjörgæslusjúklinga í tveimur
nýlegum rannsóknum var 36% og 67%. Þessar rannsóknir reiknuðu
grunngildi kreatíníns í sermi (S-kr) með MDRD jöfnunni út frá
áætluðum gaukulsíunarhraða (GSH) miðað við aldur, kyn og kynþátt.
Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna tíðni bráðs nýmaskaða í
sjúklingum á gjörgæslu með áherslu á að finna rétt grunngildi S-kr.
Efniviður og aðferðir: Þetta var afturskyggn rannsókn á öllum
sjúklingum >18 ára aldri er lögðust inn á gjörgæsludeildir LSH árið 2007.
Semm kreatínín var fengið úr sjúkraskrám LSH og ítarleg leit var gerð að
grunnkreatínínildum á öðrum rannsóknarstofum og sjúkrastofnunum á
íslandi. RIFLE (Risk, Injury, Failure, Loss, End-stage kidney disease)
skilmerki voru notuð til að skilgreina bráðan nýrnaskaða.
Niðurstöður: 1026 sjúklingar lögðust inn á gjörgæsludeildir LSH árið
2007, meðalaldur 60,6±17,8 ár, 61,1% karlmenn. Áreiðanleg grunngildi
S-kr fundust í gagnagmnni LSH fyrir 70% sjúklinga en með ítarlegri
leit fundust grunngildi S-kr fyrir yfir 99% þeirra. 231 (22,3%) hlutu
bráðan nýmaskaða í gjörgæslulegunni og voru 83 í "Risk" hópi, 70 í
"Injury" hópi og 78 í "Failure" hópi. Ef grunngildi S-kr var reiknað út frá
áætluðum GSH fyrir þá sem ekki áttu grunngildi á LSH var tíðni bráðs
nýrnaskaða marktækt hærri, 310 sjúklingar, 30,2% (p<0,01). Meðalaldur
þeirra sem hlutu bráðan nýmaskaða var 67,0±16,0 ár á móti 58,7±18,0
ár hjá þeim sem ekki hlutu bráðan nýrnaskaða (p<0,001). Dánartíðni í
sjúkrahúslegunni var 40,7% meðal þeirra sem hlutu bráðan nýrnaskaða
en 9,1% meðal hinna (p<0,001).
Ályktanir: Tíðni bráðs nýmaskaða á gjörgæsludeildum LSH er um 23%
sem er lægra en erlendar rannsóknir hafa sýnt. Þær rannsóknir hafa þó
sennilega ofmetið tíðnina þar sem þær notuðust við útreiknuð gildi á
S-kr ef grunngildi fannst ekki.
V071 Faraldsfræði langvinns nýrnasjúkdóms á stigi ll-V meðal
íslenskra barna
Helgi Jónsson1, Ólafur S. Indriðason3, Loftur I. Bjamason3, Runólfur Pálsson1-, Viðar
Eðvarðsson14
‘Læknadeild Háskóla íslands, 2nýmalækningaeiningu Landspítala, 3tölvunarfræðideild
Háskóla íslands, 4Bamaspítala Hringsins, Landspítala
Inngangur: Faraldsfræði iokastigsnýrnabilunar meðal barna er vel þekkt
en tíðni vægari stiga langvinns nýmasjúkdóms (LNS) hefur ekki verið
vel rannsökuð. Markmið rannsóknarinnar var að kanna faraldsfræði
LNS á stigi II-V meðal íslenskra barna á tímabilinu 1997-2006.
Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var afturvirk og náði til áranna 1997-
2006. Leitað var að öllum mælingum kreatíníns í sermi (S-Kr) meðal
einstaklinga yngri en 18 ára á Landspítala, Sjúkrahúsinu á Akureyri og á
einkareknum rannsóknarstofum. Reiknaður gaukulsíunarhraði (r-GSH)
var metinn með Schwartz-jöfnu. Stig II LNS var skilgreint sem r-GSH
60-89, stig III 30-59, stig IV 15-29 og stig V <15 ml/mín./l,73 m2 eða
meðferð við lokastigsnýrnabilun.
Niðurstöður: Við fundum 40.486 mælingar S-Kr hjá 15.170 bömum. Af
þeim voru 19 (9 drengir) með LNS á stigi II-V, þar af 13 börn sem voru
með LNS við upphaf rannsóknartímabilsins. Á hverju ári höfðu 10-14
börn LNS á stigi II-V og var meðalalgengi 15,5/100.000 börn. Sex börn
greindust með LNS á tímabilinu og var árlegt nýgengi 0,77/100.000
börn að meðaltali. Átta börn vom á stigi V við upphaf tímabilsins og 6
börn færðust yfir á stig V. Árlegt nýgengi lokastigsnýrnabilunar var því
0,77/100.000 börn og meðalalgengi 7,7/100.000 börn. Að auki höfðu 373
börn óeðlilega lág gildi r-GSH en áttu ýmist aðeins eina mælingu S-Kr
eða að r-GSH varð eðlilegur innan 3 mánaða og því töldust þessi börn
ekki hafa LNS.
Ályktanir: Þessi rannsókn, sem er sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum,
gefur nýjar upplýsingar um faraldsfræði LNS i börnum. Fyrir hvert
barn með lokastigsnýrnabilun er um það bil eitt með LNS á stigi II-
IV. Algengi og nýgengi lokastigsnýrnabilunar hjá börnum á íslandi er
svipað og hjá öðrum Evrópuþjóðum.
V072 Nýgengi nýrnasteina á íslandi 1990-2008
Viðar Eðvarðsson1-3, Ólafur S. Indriðason2, Runólfur Pálsson2-3
'Barnaspítala Hringsins, 2nýmalækningaeiningu Landspítala, 3læknadeild Háskóla íslands
Inngangur: Nýmasteinar eru algengt heilsufarsvandamál á
Vesturlöndum og benda erlendar rannsóknir til þess að tíðni þeirra hafi
aukist á undanfömum áratugum. Markmið rannsóknarinnar var að
LÆKNAblaðið 2010/96 35