Læknablaðið : fylgirit - 01.10.2010, Page 41

Læknablaðið : fylgirit - 01.10.2010, Page 41
XIX ÞING LYFLÆKNA FYLGIRIT 65 matstæki er mikilvægt fyrir öryggi lyfjameðferðar. í þessari rannsókn var notast við gögn úr samnorrænni rannsókn á Minimum Data Set for Acute Care (MDS-AC) öldrunarmatstækinu til að skoða lyfjameðferð eldra fólks á Norðurlöndum og kanna tengsl við valdar breytur í MDS-AC, legutíma og eins árs lifun. Áhersla var lögð á fjöllyfjanotkun, óæskileg lyf, geðlyf og hjarta- og æðasjúkdómalyf. Efniviður og aðferðir: Söfnun lyfjaupplýsinga og mat með MDS-AC fór fram á árunum 2001-2002 á völdum sjúkrahúsum í Danmörku, Islandi, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Þátttakendur voru 770 talsins, valdir með slembiúrtaki úr hópi 75 ára og eldri sjúklinga sem lögðust brátt inn á ly flækningadeild. Niðurstöður: Meðalfjöldi lyfja var 6,2 (3,7). Fjöllyfjanotkun (a5 lyf) var til staðar hjá 66% þátttakenda og notkun óæskilegra lyfja hjá 16%. Norðmenn tóku marktækt fæst lyf. Konur tóku fleiri lyf en karlar og geðlyfjanotkun var meiri meðal kvenna. Geðlyfjanotkun var áberandi mest á íslandi og Finnlandi, rúmlega 59%. Samkvæmt fjölbreytuaðhvarfsgreiningu skýrði lyfjameðferð 2-14% af breytileika í útkomuþáttum. Geðlyf og undirflokkar þeirra tengdust verri útkomu í flestum færnibreytum. Óæskileg lyf tengdust lengri legutíma. Hjarta- og æðasjúkdómalyf höfðu í þessari rannsókn tengsl við betri útkomu. Ályktanir: Fjöllyfjanotkun, notkun óæskilegra lyfja og geðlyfja er algeng á Norðurlöndum. Niðurstöður samræmast að flestu leyti niðurstöðum annarra rannsókna. Heildaráhrif lyfjameðferðar á breytileika í útkomuþáttum voru ekki sterk, en erfitt er að álykta um svo flókið samband út frá þessum niðurstöðum. V089 Óþægindi af fæðu eru algeng meðal fullorðinna íslendinga Michael Clausen1, Davíð Gíslason2, Þórarinn Gíslason2 ’Göngudeild í ofnæmissjúkdómum, 2lungnadeild Landspítala Inngangur: Ofnæmi af völdum fæðu hefur aukist undanfarin ár á Vesturlöndum. Lítið er vitað um algengi fæðuofnæmis á Islandi. Island er þátttakandi í evrópskri rannsókn á fæðuofnæmi (Europrevall) þar sem kanna á algengi fæðuofnæmis, megin einkenni og algengustu fæðuofnæmisvaldana. Bera á niðurstöðumar saman á milli þátttökulandanna. Efniviður og aðferðir: Árið 2007 voru 3300 einstaklingar af Reykjavíkursvæðinu á aldrinum 20-54 ára valin af handahófi til að svara spumingum um fæðuofnæmi í póstlista. Niðurstöður: Alls svöruðu 2091 (63,3%) spurningalistanum þaraf voru 51,9% konur. Sexhundruðáttatíu og níu (32,9%) sögðust verða illt af því að borða einhverja fæðu. Þar af voru 508 (73,7%) sem höfðu fengið þessi einkenni oftar en fjómm sinnum. Algengustu einkennin voru frá meltingarvegi (50%), húð (28%) og munni og koki (24%). Algengustu orsakavaldar voru mjólkurvörur 5,0%, fiskur 2,4%, skelfiskur 1,5%, kiwi 0,7%, egg 0,6% , hveiti 0,6% og hnetur 0,5% af öllum svarendum. Rúmlega 14% nefndu ekki ákveðna fæðu sem orsakavald heldur hluti eins og pizzu, feitan mat eða áfengi. Læknir hafði sagt 91 (4,3%) að viðkomandi hefði fæðuofnæmi. Ályktanir: Óþægindi af völdum fæðu eru algeng meðal fullorðinna íslendinga. Einkenni frá meltingarfæram og húð eru algengust. Flestir telja að mjólkurvörur eða sjávarfang valdi einkennum sínum. Ólíklegt er að bráðaofnæmi eigi þátt í nema litlum hluta þessara einkenna. V090 Skimun fyrir áhættuþáttum skyndidauða íþróttamanna Baldur Þórólfsson1, Fríða Rún Þórðardóttir2, Gunnar Þór Gunnarsson3, Axel F. Sigurðsson4 'Læknadeild Háskóla íslands, 2lyflækningasviði, 4hjartadeild Landspítala, 3lyflækningadeild Sjúkrahússins Akureyri Inngangur: Skyndidauði meðal ungs þróttafólks er sjaldgæft fyrirbæri sem sem oftast má rekja til undirliggjandi hjartasjúkdóms. Rannsóknir benda til að draga megi úr hættu á skyndidauða með reglubundinni skimun. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna fýsileika skimunar á íslenskum íþróttamönnum til að móta leiðbeiningar fyrir lækna og íþróttaforystuna. Þetta fólst í að kanna: 1) tíðni áhættuþátta í sjúkrasögu, skoðun og hjartalínuriti, 2) í hve mörgum tilvikum þörf er á frekari rannsóknum og 3) að meta umfang og kostnað slíkrar skimunar. Efniviður og aðferðir: Skimaðir voru 105 íþróttamenn (70 karlar og 35 konur) á aldrinum 18- 35 ára. Skimað var skv. leiðbeiningum ESC (European Society of Cardiology).Tekin var sjúkra, heilsufars- og fjölskyldusaga íþróttamannsins, gerð var klínísk hjartaskoðun og tekið var 12-leiðslu hjartalínurit. Niðurstöður: Algeng sjúkdómseinkenni sem komu fram í sjúkrasögu voru ofnæmi eða exem (28%), astmi (24%), óeðlileg áreynslumæði (15%), brjóstverkur við áreynslu (12%), hjartsláttartruflanir við áreynslu (7%) og svimi (38%)eða yfirliðakennd (10%) við áreynslu. Klínísk hjartaskoðun var óeðlileg hjá 21 (20%). Hjartalínurit var greinilega óeðlilegt hjá 22 (21%) og vægt óeðlilegt hjá 23 (22%). Ábending fyrir hjartaómskoðun var til staðar hjá 24 (23%) og var rannsóknin gerð hjá 19 þeirra. Reyndist hún eðlileg eða nánast eðlileg hjá 6 (32%), vægt óeðlileg hjá 13 (68%) en enginn taldist hafa greinilega óeðlilega ómskoðun. Ályktanir: Fremur algengt er að íþróttamenn lýsi sjúkdómseinkennum sem tengja má við hjartasjúkdóma. Óeðlilegt hjartalínurit er algengt meðal ungra íþróttamanna. Búast má við að gera þurfi hjartaómskoðun hjá tæpum fjórðungi þeirra sem eru skimaðir. Unnt er að framkvæma skimun keppnisíþróttamanna skv. leiðbeiningum ESC með hóflegum tilkostnaði. V091 Áhrif eldgoss í Eyjafjallajökli á heilsufar íbúa undir jöklinum Hanne Krage Carlsen1, Þórarinn Gíslason2, Þórir Bjöm Kolbeinsson3, Haraldur Briem4,, Gunnar Guðmundsson5, fyrir hönd rannsóknarhóps um áhrif eldgoss í Eyjafjallajökli, Háskóla íslands 'Miðstöð í lýðheilsuvísindum, Háskóla íslands,2lungnadeild Landspítala, 3Heilsugæslunni á Hellu, Heilbrigðisstofnun Suðurlands, 4sóttvamalækni, landlæknisembættinu Inngangur: Eldgos með miklu öskufalli hófst í Eyjafjallajökli 14. apríl 2010 og stóð yfir með miklum krafti í sex vikur. Aska og önnur efni frá eldgosum getur haft skaðleg áhrif á heilsu manna og var því ákveðið að bjóða öllum íbúum á svæðið næst gosinu í heilsufarskönnun. Efniviður og aðferðir: Vegna sóttvamaráðstafana buðu heilsugæslu- stöðvarnar á Hellu, Hvolsvelli og Vík íbúum á svæðinu frá Markarfljóti að Vík í Mýrdal að taka þátt í heilsufarskönnun. Framkvæmd var læknisskoðun með blástursmælingu. Fullorðnir fylltu út spurningalista um líkamlega og andlega líðan á meðan á gosinu stóð en einnig var spurt um einkenni hjá börnum, upplifun á gosinu og notkun á úrræðum og hlífðarbúnaði. Niðurstöður: 207 einstaklingar (40 undir 18 ára aldri) mættu í könnunina, þar af 107 konur (52%). Meðalaldur var 44 ára (bil 0-91 árs). Langflestir fullorðinna stunduðu búskap (63%) og þó nokkrir unnu við ferðaþjónustu (7%). Öskufall hafði verið við heimili allra þátttakenda. Samkvæmt blástursmælingu vora 18 % með skerta öndunargetu en 13% höfðu þekktan lungnasjúkdóm fyrir. Margir fullorðinna greindu frá LÆKNAblaðið 2010/96 41

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.