Læknablaðið : fylgirit - 01.10.2010, Blaðsíða 45
X I X
ÞING LYFLÆKNA
FYLGIRIT 65
og eftir meðferð 8,2 (SD 6,8) (p = 0,06). Enginn sjúklinga mældist með
alvarlegt þunglyndi.
Ályktanir: Fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til að tólf mánaða
meðferð með natalizumab dragi mjög marktækt úr þreytu hjá MS-
sjúklingum. Meðferðin hafði ekki marktæk áhrif á þunglyndiseinkenni.
Niðurstöður vekja vonir um að lyfið natalizumab bæti bæði lífsgæði og
starfshæfni MS-sjúklinga.
V102 Nýgengi og algengi Multiple System Atrophy (MSA) á íslandi -
lýðgrunduð rannsókn með nýjum greiningarskilmerkjum
Anna Hjiirnsdóttir1, Elías Ólafsson1, Grétar Guömundsson', Hannes Blöndal2
'Taugadeild Landspítala, 2læknadeild Háskóla fslands
Inngangur: MSA er taugahrörnunarsjúkdómur sem einkennist af
parkinsonisma, cerebellar og autonom einkennum. Upphleðsla á
a-synucleini í glia-frumum sérkennir MSA og greiningu er eingöngu
hægt að staðfesta með krufningu. Ný greiningarskilmerki sem kynnt
voru 2008 miða að nákvæmari klínískri greiningu. Við ákvörðuðum 10
ára nýgengi MSA á íslandi 1999-2009 og stundaralgengi 1. apríl 2009.
Efniviður og aðferðir: Tilfella var leitað með ICD-10 kóðum í gögnum
frá taugadeild LSH. Auk þess var haft samband við alla starfandi
taugalækna á landinu. Við skoðuðum allar sjúkraskrár sjúklinga sem
komu á taugadeild LSH vegna parkinsonisma á 10 ára tímabili til að
útiloka MSA greiningu.
Niðurstöður: Nítján einstaklingar greindust með MSA á tímabilinu,
11 konur og 8 karlar. Nýgengi var 0,6:100.000. Aldursstaðlað
nýgengi (Europe) var 0.7:100,000 (95% CI: 0.4-1.1). Stundaralgengi
(point prevalence) var 3.1:100.000 en þá voru 10 einstaklingar á lífi.
Sextán tilfelli féllu undir skilmerki probable og 3 undir possible
MSA. Sextán höfðu MSAp en 3 MSAc. Meðalaldur við greiningu
var 68 ár og meðalaldur við upphaf einkenna var 65 ár. Níu létust á
rannsóknartímabilinu og 3 þeirra voru krufðir og greiningin staðfest í
öllum tilvikum. Meðaleftirfylgd var 23 mánuðir (bil:l,5-99).
Ályktanir: Nýgengi MSA á íslandi er svipað því sem mælst hefur í
öðrum löndum þar á meðal í Olmsted County, MN, USA (0,6:100.000).
í flestum fyrri rannsókna hefur tilfellaleit byggt á parkinsonisma.
Þá er hætta á að sjúklingar með cerebellar einkenni verði útundan.
Rannsóknin nær til fleiri tilfella MSA en áður hefur verið greint frá í
sambærilegum rannsóknum.
Frumulíffræði lungna: sérhæfing
fruma og fyrstu varnir
Málþing í tengslum við XIX þing
Félags íslenskra lyflækna
Staður og stund: Hringsalur LSH, Fimmtudaginn 30. September, kl. 15-17
Fundarstjórar: Guðmundur Hrafn Guðmundsson, prófessor og
Tómas Guðbjartsson, prófessor
Tími Heiti erindis Fyrirlesari
15:00-15:10 Ávarp Runólfur Pálsson, Formaður félags
15:10-15:25 Frumulíffræði lungnaþekju íslenskra lyflækna Ólafur Baldursson, lungnalæknir
15:25-15:40 Frumuræktunarlíkön í lungnarannsóknum Þórarinn Guðjónsson, dósent
15:40-15:55 Varnir lungnaþekju Skarphéðinn Halldórsson, nýdoktor
15:55-16:05 16:05-16:20 Stutt kaffispjall Stofnfrumur og þroskun lungna Sigríður Rut Franzdóttir, nýdoktor
16:20-16:35 16:35-16:50 Leit að sjaldgæfum frumum í lungnavef með flæðifrumusjá Lungnarannsóknir á íslandi: vaxandi fræðasvið Hekla Sigmundsdóttir,dósent Magnús Karl Magnússon, prófessor
LÆKNAblaðið 2010/96 45