Bæjarins besta


Bæjarins besta - 02.08.2007, Page 6

Bæjarins besta - 02.08.2007, Page 6
FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 20076 Klapp á bakið Ritstjórnargrein Útgefandi: H-prent ehf., kt. 600690-1169, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is · Blaðamenn: Thelma Hjaltadóttir, símar 456 4693 og 849 8699, thelma@bb.is – Tinna Ólafsdóttir, sími 868 5963, tinna@bb.is – Smári Karlsson, sími 866 7604, smari@bb.is · Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, sími 863 7655, halfdan@bb.is. Ritstjóri netútgáfu bb.is: Sigurjón J. Sigurðsson · Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, halldor@bb.is Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson · Lausasöluverð er kr. 300 eintakið með vsk. Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. · Önnur útgáfa: Ferðablaðið Á ferð um Vestfirði. · ISSN 1670 - 021X Ferðamaður fannst við veiðar eftir leit Landhelgisgæslan kallaði út þrjá björgunarbáta um klukkan eitt eftir miðnætti aðfaranótt mánudags til leitar að þýskum ferðamanni sem hafði farið út frá Suðureyri við Súgandafjörð á frístunda fiskveiðibát án þess að láta vita af sér. Maðurinn fannst fljótt og engan sakaði. Maðurinn sagði að honum hefði þótt veðrið fallegt og ákveðið að fara út að veiða á bát sem leigður er út til sjóstangaveiði. Hann lét ekki vita af sér eins og skylt er að gera og því var björgunarlið ræst út að sögn lögreglu á Ísafirði. Rögnvaldur braut 70 högga múrinn Rögnvaldur Magnússon kylfingur úr GBO sló vallarmetið á Syðridalsvelli í Bolungarvík á Bakkavíkurmótinu á sunnudag. Rögnvaldur lék á 68 höggum sem er þrjú högg undir pari vallar. Hann bætti eldra metið um tvö högg sem hann átti sjálfur ásamt félaga sínum úr GBO, Chatchai Phothiya. Ekki er hægt að segja að Rögnvaldur hafi fengið óskabyrjun á hringnum því hann lék fyrstu holuna á tveimur yfir pari. Hann missteig sig hins vegar ekkert eftir það og nældi sér í fimm fugla. Fyrri níu holurnar lék hann á 37 höggum og hinar síðari á 32 en Syðridalsvöllur er 18 teiga völlur. Sjónvarpið hefur aftur útsendingar í kvöld, eftir mánaðarhlé vegna sumarleyfa. Hefst útsending kl. 8 með fréttum, þar sem m.a. verður sýnd kvikmynd frá embættistöku forseta Íslands, herra Kristjáns Eldjárns. Þá svarar Halldór Pálsson, búnaðar- málastjóri spurningum blaðamanna, Indriða G. Þorsteinssonar og Valdimars Jóhannessonar. Þá er fræðslumynd um öld vís- undanna, kvikmyndin Dýrlingurinn og norrænir barnakórar á móti í Helsinki, sem börn úr Hafnarfirði tóku þátt í. Pétur Guðfinnsson, framkvæmdastjóri Sjónvarps, sagði Mbl. Í gær, að næstu tvo mánuði yrði ekki miklar nýjungar í dag- skrá sjónvarpsins, en reiknað væri með að endurnýja dagskrána og gefa henni ferskari blæ fyrir veturinn eða 1. október. Ágúst og september yrðu því svipaðir að efni og maí og júní voru. Sjónvarpið byrjaði aftur lítt breytt Á þessum degi fyrir 39 árum Nú er miðsumar og mánuðurinn með gamla góða nafninu Heyannir byrjaður. Í samfélagi Íslendinga á fyrri öldum var þetta í meira lagi annasamur tími. Nafngiftin ber með sér að þá hafi flest annað en að afla bústofninum fanga fyrir veturinn hafi setið á hakanum. Þótt fæstir íbúa gamla Fróns séu lengur bundir þeim störfum sem draga má af heiti mánaðarins er ljóst að miklar annir hafa eigi að síður verið hjá starfsmönnum tæknideildar Ísafjarðarbæjar undanfarið. Meira að segja svo miklar að þeir gátu ómögulega fundið sér tíma fyrir spássitúr um bæinn til að huga að því hvort einstaklingar eða fyrirtæki væru þess verð að fá rós í hnappagatið fyrir að hlúa að nánasta umhverfi sínu og leggja þar með sitt af mörkum til að auðga og fegra þá heildarmynd sem felst í hugtakinu Ísafjarðarbær og nágrenni. Nei. Það er búið að vera svo mikið að gera þar á bæ að það verða engin umhverfisverð- laun veitt annað árið í röð. Árið 2005 hlutu Bókhlaðan á Ísafirði og Gámaþjónusta Vestfjarða verðlaunin, en árið 2004 var leikreglum breytt í þá veru að fyrirtæki og sveitabæir komu þá jafnt til greina og einstaklingar. Umbúðalaust þá fer það ekki á milli mála að sinnuleysið sem opinberast í þeirri ákvörðun bæjaryfirvalda að fella umhverfisverðlaunin niður er stórt skref aftur á bak. Ekki stórt vegna þess að þar sé um mikla fjármuni að tefla, held- ur hins að með því eru stjórnvöld bæjarins að lýsa því yfir að þau sjái ekki ástæðu til að örva hinn almenna bæjarbúa til að gera fallegan bæ enn fallegri. Og því miður hangir fleira á spýtunni. Þótt eflaust sé það ekki ætlunin þá er með þessu verið að draga úr væntumþykju íbúanna á bæjarfé- laginu; nokkru sem okkur veitir svo sannarlega ekki af á þessum síðustu og að margra mati verstu tímum. Bæjarins besta hefur margsinnis sagt það vera eitt helsta hlutverk bæjaryfirvalda að greiða götu nýrra fyrirtækja til bæjarins og hlúa að öllum þeim sprotum sem hér kunna að skjóta upp kollinum. Þótt vissulega hafi verið hoggið skarð í hátækniiðnað sem hér hafði þróast af áræði og framsýni árum saman og náð sessi á erlendum mörkuðum, þá er engan veginn öll nótt úti í þeim efnum. Dæmi þar um er framleiðsla á fluguveiðihjólinu Wish. Um það má segja að mjór er mikils vísir; nokkuð sem hlúa verður að. Bæjaryfirvöld eiga og verða að hafa dug í sér til að styðja við bakið á hverju og einu sem verða má til framfara og far- sældar fyrir bæjarfélagið. Sama í hvaða mynd það er. Klapp á bakið kostar ekki mikla peninga. Að gera það ekki getur orðið dýrkeyptara. Hvatning sem skilar okkur fram á veginn er í öllum tilfellum af hinu góða. Sparnaður eða dugleysi bæjaryfirvalda í veitingu umhverfisverðlauna á sér enga vörn. s.h. Benedikt Sigurðsson og Árni Heiðar Ívarsson syntu yfir Pollinn á Ísafirði til að vekja athygli á þörf fyrir nýja sundlaug í bænum. Syntu fyrir nýrri sundlaug Benedikt Sigurðsson og Árni Heiðar Ívarsson, áhuga- menn um bætta sundaðstöðu á Ísafirði, syntu yfir Pollinn á Ísafirði á sundskýlu á föstudag til að vekja athygli á þrengsl- um í sundlaug bæjarins. Sig- urður Bjarni Benediktsson og Vigdís Pála Halldórsdóttir fylgdu þeim eftir í blautbúning auk þess sem léttabátur var til taks. „Framtakið heppnaðist vel og við vorum mjög ánægðir. Það kom mér eiginlega á óvart hversu margir komu til þess að fylgjast með og styðja okk- ur en ég hefði viljað sjá ein- hvern fulltrúa bæjarstjórnar“, segir Benedikt. Markmiðið með sundinu var að sögn sundgarpanna að vekja athygli á því að langt er síðan Ísfirð- ingum var lofað 25 metra laug og það sé til skammar að ekki skuli vera mannsæmandi að- staða fyrir almenning til sund- iðkunar í stóru bæjarfélagi eins og Ísafirði. Benedikt er yfirþjálfari Sundfélagins Vestra sem hefur æft í Sundhöllinni um árabil og Árni Heiðar Ív- arsson er íþróttakennari hjá Grunnskólanum á Ísafirði og einkaþjálfari. Þegar Benedikt og Árni Heiðar komu aftur á þurrt land var þeim tilkynnt að sund- áhugamenn hefðu fengið þá hugmynd að setja á stofn styrktarsjóð fyrir bættri sund- aðstöðu á Ísafirði. Búist er við að verkefninu verði hrint í framkvæmd með haustdögum. Fjölmenni fylgdist með sundinu.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.