Bæjarins besta - 02.08.2007, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2007 7
Sparisjóður Vestfirðinga minnir
á sandkastalakeppnina í Holti í
Önundarfirði, laugardaginn 4.
ágúst kl. 14:00. Allir velkomnir!
Vegleg
verðlaun
í boði!
Bresk fjallabjörgunarsveit á Ísafirði
Bresk fjallabjörgunarsveit er í heimsókn hjá unglingadeild Björgunarfélags
Ísafjarðar. Er sveitin að endurgjalda heimsókn Ísfirðinganna frá því í fyrra en
þá fór unglingadeildin til Bretlands. Undanfarna daga hafa Bretarnir verið á
Snæfellsnesi. Sú krafa var gerð af hendi þeirra að gengið yrði á Snæfellsjökul,
því þau sjá ekki snjó oft þar sem þau búa. Á Ísafirði voru þeim kennd
handbrögð við sjóbjörgun enda algjörir grænjaxlar í þeim efnum. Björgunar-
sveitin breska er staðsett langt inni í landi og kemur aldrei nálægt sjó.
Barn hjólaði á bifreið
Barn á reiðhjóli hjólaði á bifreið á Ísafirði um miðja síðustu viku. Tvær stúlkur voru að
hjóla niður Hallabrekku og gættu sín ekki á bíl sem kom akandi Túngötuna sem liggur
þvert á Hallabrekku. Ökumaðurinn þurfti að snarbremsa er stúlkurnar hjóluðu út á götu á
talsverðri ferð en allt kom fyrir ekki og hjólaði önnur stúlkan í hlið bílsins. Farið var með
stúlkuna til læknisskoðunar en að sögn lögreglunnar á Ísafirði virtist ekki vera um alvarleg
meiðsli að ræða. Lögreglan vill þó hvetja foreldra og forráðamenn að brýna fyrir börnum
sínum að passa sig á umferðinni en lærdómur vetrarins vill oft gleymast í leik og gleði.
Ekki eru nema fimm vik-
ur eftir af yfirstandandi fisk-
veiðiári og ekki bólar enn á
byggðakvótanum. Ómar
Más Jónsson, sveitarstjóri
Súðavíkurhrepps, er ekki
ánægður með núgildandi
fyrirkomulag úthlutunar-
innar og segir betra ef sveit-
arfélögin sjálf sæju um út-
hlutunina. Að sögn Ómars
eru úthlutunarreglur byggða-
kvótans og ferlið allt, ekki
nógu vel undirbúið frá sjávar-
útvegsráðuneytinu.
„Ég gerði mér fullkomlega
grein fyrir því að upp kæmu
álitamál sem skoða þyrfti sér-
staklega. Fiskistofa fær þetta
í hausinn og treystir sér ekki
til að fella endanlegan dóm
yfir þessum álitamálum og
vísar þeim til ráðuneytisins.“
Sem dæmi um álitamál nefnir
Ómar heimahafnir fiskiskipa,
en samkvæmt reglugerðinni
þurfa fiskiskip að vera með
skráða heimahöfn í viðkom-
andi sveitarfélagi1. maí sl.
„Það er mjög ólíklegt að
það náist að úthluta byggða-
kvótanum á fiskveiðiárinu. Nú
þarf ráðuneytið að tryggja að
kvótinn falli ekki niður dauð-
ur. Það er ekki sveitarfélögun-
um eða útgerðunum að kenna
að þetta er komið í óefni.“
Þórður Eyþórsson, deildar-
stjóri í sjávarútvegsráðuneyt-
inu, segir að Fiskistofa sjái
um úthlutunina en kæru-
mál berist til ráðuneytisins.
Hann segir að tíminn sé
vissulega knappur til að
veiða byggðakvótann og að
ferlið hafi verið lengra en
reiknað var með. Aðspurð-
ur hvað verði gert náist ekki
að veiða byggðakvótann í
segir Þórður að afstaða
verði tekin til þess ef af því
kemur. – smari@bb.is
Ekki enn búið að úthluta byggðakvóta
Umhverfisverðlaun Ísa-
fjarðarbæjar verða ekki
veitt í ár. Hjá tæknideild
Ísafjarðarbæjar fengust
þær upplýsingar að ekki
hefði unnist tími til að
undirbúa valið og því hafi
verið ákveðið að slá valið
af í ár. Fram til ársins
2003 voru valdir fegurstu
garðar og götur sveitarfé-
lagsins en sumarið 2004
var fyrirkomulagið end-
urskoðað og almennar um-
hverfisviðurkenningar til
fyrirtækja, einstaklinga og
bóndabæja veittar. Síðast
voru umhverfisverðlaunin
veitt sumarið 2005 en þau
hlutu Bókhlaðan á Ísafirði
og Gámaþjónusta Vest-
fjarða. Þess má geta að
stoltir garðeigendur á Suð-
ureyri fengu sinn skerf er
veitt voru verðlaun fyrir
fallegasta garðinn og
snyrtilegustu eignina á ný-
afstaðinni Sæluhelgi.
Engin umhverfis-
verðlaun veitt í ár
Flutningabíll missti fullt
kar af slógi á höfnina á Suð-
ureyri á miðvikudag í síð-
ustu viku. Um er að ræða
slóg sem var flutt frá Ísafirði
til Suðureyrar til förgunar.
Óánægja er með það fyrir-
komulag hjá ferðaþjónustu-
aðilum á Suðueyri og kvarta
þeir undan aðferðunum við
það. Elías Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Hvíldar-
kletts á Suðureyri, segir að-
ferðirnar ekki vera upp á
það besta. Það komi fyrir
að slóg lendi á bryggjunni
og því þá skolað í höfnina.
Hann segir slógið, og þá
sérstaklega lifrina, festast
utan á stiga, dekk og báta
sem eru í höfninni með
verulegum óþægindum fyr-
ir þá sem hana nota.
Atvikið var tilkynnt til
lögreglu og segir Elías þetta
vera algjörlega á skjön við
lög og reglugerðir. Hann
segir íbúa Suðureyrar ekki
skilja að slógið sé flutt frá
Ísafirði til Suðureyrar til
förgunar. Það geti allt eins
farið í höfnina á Ísafirði.
Guðmundur M. Kristjáns-
son, hafnarstjóri Ísafjarð-
arbæjar, segist líta á atvikið
sem hvert annað slys. „Það
getur verið að bílstjórinn
hafi brugðist vitlaust við“,
segir Guðmundur. Hann
segir það vera leyfilegt að
fara með slóg út fyrir þrjár
mílur og farga því. „Þetta
er lífrænn úrgangur og
besta leiðin til að farga
slógi er að láta það aftur í
sjóinn. Það skiptir engu
máli frá hvaða höfn það er
gert.“
Að sögn Guðmundar er
aðili á Suðureyri sem tekur
við slógi til förgunar og
hefur lifibrauð sitt af því.
Guðmundur tekur skýrt
fram að slóginu sé ekki eytt
í höfninni en segir menn
sem eru í þessum flutning-
um eigi að vita hvernig eigi
að bera sig að.
Slóg á höfninni
Slóg á höfninni á Suðureyri.
Ísafjörður iðaði af lífi á laugardag en þá voru tæplega tvö þúsund ferðamenn af tveimur skemmtiferðaskipum staddir
í bænum. Skipin voru Thomson Spirit sem er tæp 34 þúsund tonn og ber 1.350 farþega, og Princess Danae sem er
rúmlega 16 þúsund tonn og rýmir 500 farþega. Það er óhætt að segja að annríki sé við móttöku skemmtiferðaskipa í Ísa-
fjarðarhöfn enda er vertíðin í hámarki. Í síðustu viku komu 3.200 farþegar til Ísafjarðar með skemmtiferðaskipum.
Morrinn, atvinnuleikhús ungs fólks í Ísafjarðarbæ, tekur á móti erlendu gestunum með margvíslegu sprelli og er þeim
boðið upp á ýmsar skoðunarferðir hjá Vesturferðum.