Bæjarins besta - 02.08.2007, Side 9
FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2007 9
Guðni Ágústsson afhjúpar minnisvarðann. Arinbjörn, sonur Ólafs, aðstoðar.
Minnisvarði um
Ólaf Þ. afhjúpaður
Minnisvarði um Ólaf Þ.
Þórðarson var afhjúpaður á
Stað í Súgandafirði í síðustu
viku. Það var Guðni Ágústs-
son sem afhjúpaði hann að
viðstöddu fjölmenni. Forseti
Íslands, Hr. Ólafur Ragnar
Grímsson var viðstaddur at-
höfnina og einnig listamaður-
inn sem gerði minnisvarðann,
alþingismaðurinn Árni John-
sen. Í ræðu sinni minntist
Guðni þeirra tíma þegar hann
og forsetinn voru ungir menn
í Framsóknarflokknum og litu
þeir mikið upp til Ólafs og
ræðusnilldar hans.
Ólafur var þingmaður Fram-
sóknarflokksins á Vestfjörð-
um um árabil og var hann í
hópi snjöllustu ræðumanna
Alþingis. Hann var hestamað-
ur af lífi og sál, talsmaður
fornra dyggða og framtíðar í
senn með frumlegri sýn á
margan hátt. Ólafur var mikill
áhugamaður um menntamál
og á minnisvarðanum er eftir-
farandi brot úr einni af þing-
ræðum hans áletrað: „ Dýrasta
lausnin í menntakerfi nokkurr-
ar þjóðar er að taka svo vit-
lausa ákvörðun að það eigi að
fara eftir efnum og ástæðum
hverjir halda áfram skóla-
námi.“
Ólafur fæddist á Stað árið
1940 og féll frá langt fyrir
aldur fram árið 1998. Hann
var með kennara- og búfræði-
próf og starfaði sem skóla-
stjóri áður en hann settist á
þing fyrir Framsóknaflokkinn
í Vestfjarðakjördæmi árið
1979. Hann hafði verið vara-
þingmaður frá 1972. Þingsetu
lauk hann 1995.
Félagar Ólafs Þ Þórðarson-
ar, þingflokkur Framsóknar-
flokksins og aðstandendur
Ólafs standa að minnisvarð-
anum.
Að lokinni athöfninni á Stað
buðu ættingjar Ólafs öllum til
kaffisamsætis í Verkalýðshús-
inu á Suðureyri.
– smari@bb.is
Hr. Ólafur Ragnar Grímsson og Kristján G. Jóhannsson.Árni Johnsen og Guðni skeggræða málin. Bjarni Harðarson ræðir við Ólaf Ragnar Grímsson.
Skordýrastung-
ur færast í vöxt
Oft verður uppi fótur um
fit þegar geitungur eða bý-
fluga sést á flugi. Þá heyrast
öskur og jafnvel eru tekin
óborganleg dansspor til að
forðast fluguna. Það dugir
þó ekki alltaf til og hefur
töluvert af fólki hringt á
Fjórðungssjúkrahúsið á Ísa-
firði í sumar til að fá upp-
lýsingar um hvernig bregð-
ast megi við stungusárum.
Af gefnu tilefni sendi því
læknaneminn Bjarki Krist-
insson Bæjarins besta ráð-
leggingar um hvernig bregð-
ast má við flugnastungum.
Fyrst og fremst ber að
hafa í huga að oftast stingur
flugan ekki nema henni sé
ógnað til dæmis með því að
fara of nálægt búinu eða slá
til flugunnar. Ef flugan
stingur er í flestum tilfellum
ekkert að óttast, þar sem
stungur eru ekki hættulegar.
Þær valda hinsvegar stað-
bundnum óþægindum svo
sem bólgu, kláða og sárs-
auka. Ekki er þörf á að leita
læknis í þessum tilfellum.
Flestir geta meðhöndlað
stunguna sjálfir með því að
fjarlægja broddinn ef hann
er sýnilegur, með flísatöng
eða hníf. Þá er ágætt að þrífa
sárið með volgu vatni og
sápu og að síðustu að kæla
stunguna til að minnka
bólgu. Ef mikill kláði kemur
fram í kjölfarið má kaupa
ofnæmislyf í apóteki án
lyfseðils. Þau geta slegið á
kláða sem fylgir. Ef mikil
bólga er í svæðinu getur
hjálpað að bera á Mildison®
krem sem fæst einnig í
apóteki án lyfseðils.
Möguleiki er á að það
komi sýking í skordýra-
stungu. Það gerist yfirleitt
þegar meira en tveir dagar
eru liðnir frá stungu. Merki
um sýkingu er aukinn roði,
bólga, rauðar rákir sem
teygja sig út frá stungustað
og graftarkennd útferð úr
sári. Komi sýking í sárið
skal leita ráða hjá lækni þar
sem þá gæti þurft að með-
höndla sýkinguna með sýkla-
lyfjum.
Ofnæmisviðbrögð við
flugnastungum eru þekkt og
geta þau verið lífshættuleg.
Ofnæmið er hins vegar
mjög sjaldgæft. Ef einkenni
ofnæmis koma fram skal
ráðfæra sig við lækni án
tafar. – tinna@bb.is
Ekki mun koma til þess að
óveiddur byggðakvóti muni
falla niður dauður takist ekki
að úthluta honum og veiða
hann á þessu fiskveiðiári. Ein-
ar Kristinn Guðfinnsson, sjáv-
arútvegsráðherra, segir í sam-
tali við Blaðið að kvótinn
muni ekki falla niður heldur
gefist mönnum færi á að flytja
hann yfir á næsta kvótaár, rétt
eins og um venjulegan kvóta
væri að ræða. Ekki er nema
rétt rúmur mánuður eftir af
yfirstandandi fiskveiðiári.
Einar segir ástæðu þess að
erfiðlega hafi gengið að út-
hluta byggðakvótanum vera
þá að ný löggjöf hafi verið
samþykkt í vor. Nýju lögin
kölluðu á reglugerðarbreyt-
ingar sem gera það að verkum
að úthlutanir taka lengri tíma
þar sem opnað var fyrir kæru-
meðferðir mála auk þess sem
öllum er tryggður aðgangur
að öllum upplýsingum er
varða úthlutun byggðakvóta.
Einar segist eiga von á að töfin
endurtaki sig ekki og að út-
hlutun byggðakvóta verði
mun fyrr á ferðinni á næsta
fiskveiðiári.
Ómar Már Jónsson, sveit-
arstjóri Súðavíkurhrepps, lýsti
í samtali við BB vonbrigðum
með þá töf sem hefur orðið á
úthlutun byggðakvóta. Að
sögn Ómars eru úthlutunar-
reglur byggðakvótans og ferl-
ið allt, ekki nógu vel undirbúið
frá sjávarútvegsráðuneytinu.
Hann er ekki ánægður með
núgildandi fyrirkomulag út-
hlutunarinnar og segir betra
ef sveitarfélögin sjálf sæju um
úthlutunina.
– smari@bb.is
Byggðakvótinn mun
ekki falla niður dauður