Bæjarins besta - 02.08.2007, Page 12
FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 200712
jafnvel alla leið til Grænlands.
Þetta er auðvitað klikkuð hug-
mynd en annað eins hefur nú
verið gert. Svo má ekki gleyma
Skálavík sem er hér rétt hjá
Bolungavík. Það er nær óþekkt
náttúruperla sem er sannkall-
aður sælureitur. Við eigum að
kynna þessa fegurð fyrir
fólki.“
Ekki nóg að eiga
bara fyrir eigin
jarðarför
„Mér finnst oft vanta alla
framtíðarsýn þegar gengið er
til verks, hvort sem það er hér
á svæðinu eða annars staðar.
Það verður að hugsa aðeins
lengra. Sjáðu til dæmis Vest-
fjarðagöngin. Þau eru gerð
einbreið á sínum tíma, sem er
fáránleg skammsýni. Þau eru
slysagildra. Hvalfjarðargöng-
in eru þegar sprungin og nú á
að gera önnur fyrir umferð í
hina áttina. Þegar var fyrst
hugsað um að bora leið til
milli Bolungavíkur og Ísa-
fjarðar átti bara að bora í
gegnum eitt nef hér á fjallinu.
Það virðist engin framtíðarsýn
vera og aldrei tjaldað til meira
en einnar nætur. Fólk verður
að hugsa stærra.
Nú er verið að gera sund-
laugargarð hér í Víkinni sem
ég er alveg viss um að á eftir
að vekja mikla lukku, ekki
síst meðal ferðafólks en stór
hluti þess gistir á tjaldstæðinu
við sundlaugina. Samt hefur
maður heyrt neikvæðar raddir
sem efast um að peningunum
hafi verið rétt varið þegar var
tekin ákvörðun um að setja
upp vatnsrennibraut. Hefðu
þessir peningar verið betur
komnir einhvers staðar annars
staðar? Ég er ekki viss um
það. Þetta gleður bæði íbúa
sem aðkomufólk. Þetta minnir
á þegar var byrjað að tala um
það fyrir mörgum árum að
hingað í Víkina vantaði veit-
ingastaði, gistiaðstöðu og al-
menna þjónustu fyrir ferða-
menn. Margir sögðu að það
þýddi ekki að bjóða upp á
þjónustu fyrir ferðafólk sem
aldrei kæmi en ferðafólkið
kom auðvitað ekki þar sem
engin þjónusta er. Þetta hefur
sem betur fer breyst og í dag
er í boði margvísleg gisting.
Ég verð líka að minnast á gíf-
urlega gott starf sem hefur
verið unnið í gamla Einars-
húsinu þar sem nú er kaffi- og
veitingahús og mun vera gisti-
aðstaða seinna meir. Það er
frábært verkefni sem mér
finnst að Bolvíkingum öllum
beri skylda til að styðja við og
styrkja. Það hefur sýnt sig í
þessu að þegar framboðið er
komið skapast eftirspurn. Af
hverju ekki að koma hér upp
hvalaskoðun og sjóstanga-
veiði eins og víða er gert? Ef
að ég væri billjóner hugsa ég
að ég myndi leggjast í það að
byggja upp allar gömlu ver-
búðirnar hér á kambinum og
hafa þar gistiaðstöðu fyrir fólk
sem vill skoða Hornstranda-
friðlandið, þar sem stuttan
tíma tekur að skjótast norður
héðan.
Öll eggin geta ekki verið í
sömu körfunni og það verður
ekki aftur byggt eingöngu á
sjávarútvegi. Þó að kvótinn
fari verður bara að finna eitt-
hvað annað. Það er slæmt að
það fyrsta sem fólki dettur í
hug er að fá álver eða olíu-
hreinsistöð sem mengar meira
en Íslendingar hafa leyfi fyrir.
Að einhverjum detti síðan í
hug að við getum keypt okkur
frá menguninni með mengun-
arkvóta! Hvaða störf skapar
svona verksmiðja og hvað
verða þau störf lengi til? Erum
við ekki stolt af því að vera
grænasta svæði Íslands? Ég
held að við eigum eftir að
verða mikið ríkari af því að
halda þessum litla heimi sem
mest grænum, heilbrigðum og
ósnortnum. Svæðum sem
þessum fer óðum fækkandi.
Hvað með börn og barnabörn
fólksins sem talar um meng-
andi stóriðju? Hugsar það ekk-
ert lengra en að eiga fyrir eigin
jarðarför?
Ég er í sjálfu sér ekki með
neinar patent lausnir en ég er
alveg sannfærður um að þær
hugmyndir sem hafa komið
fram muni skila sínu. Ríkis-
stofnanir geta vel verið úti á
landi, öll fjarskipti eru orðin
allt önnur en þau voru fyrir 20
árum. Þá datt mér ekki í hug
að ég myndi nokkurn tíma
gera neitt hér, það er að byggja
hús og vera hér hluta úr ári.
Ég myndi í besta falli eiga
sumarbústað einhvers staðar í
Borgarfirðinum. Það var svo
langt að keyra hingað frá
Reykjavík. Heila 10 tíma. Það
lá við að maður gisti á leiðinni
og tæki tvo daga í að ferðast
hingað. Nú fer maður leiðina
á fimm-sex tímum og hún er
alltaf að styttast. Vegirnir eru
að verða betri, Hvalfjarðar-
göngin og brúin yfir Gilsfjörð
skipta þarna miklu máli. Arn-
kötluvegurinn, brú yfir Mjóa-
fjörð og svo framvegis. Það
er verið að malbika allt í Djúp-
inu og það er verið að grafa
fleiri göng. Á örskömmum tíma
hafa aðstæður því mikið breyst
og fjarlægðirnar eru ekki jafn
miklar og við höldum.
Reynslan hefur sýnt það að
það fer allt í hringi. Ég hef
enga trú á því að Ísland verði
borgríki, né að nokkur vilji að
það gerist. Við viljum byggja
landið. Það er nauðsynlegt að
halda landinu í byggð. Fyrir
alla, ekki síst íbúa á höfðuð-
borgarsvæðinu.
– tinna@bb.is
Verk-Vest ánægt með þátttöku sveitarfélaga
Verkalýðsfélag Vestfirðinga hefur styrkt atvinnukönnun Fjölmenningarseturs um 70.000 krónur, en fyrir-
hugað er að leggja spurningar fyrir innlenda og erlenda íbúa norðanverðra Vestfjarða en eins og kunnugt er
hrikti verulega í stoðum atvinnulífsins í vor. „Strax í upphafi verkefnisins var óskað eftir þátttöku Verk-Vest ,
sem brást strax jákvætt við með styrk upp á 70.000 úr félagssjóði“, segir Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður
Verk-Vest. Einnig hafa bæjarráð Ísafjarðarbæjar og Bolungarvíkur samþykkt að styrkja könnunina. „Enn-
fremur hvatti Verk Vest til þess að sveitarfélögin á Vestfjörðum tækju þátt í verkefninu með einum eða
öðrum hætti, það er jákvætt að sjá að það hefur borið árangur“, segir Finnbogi.
Ein athugasemd barst við
nýtt aðalskipulag Bolungavík-
urkaupstaðar er þurfti að gera
vegna snjóflóðavarna sem á
að reisa í fyrir ofan bæinn.
Grímur Atlason, bæjarstjóri
Bolungarvíkur, segir athuga-
semd hafa borist frá Fornleifa-
nefnd ríkisins en það hafi verið
vitað fyrirfram að hún bærist.
Fara þarf í uppgröft áður en
framkvæmdir hefjast og von-
ast Grímur til að verkið hefjist
fljótlega. Boltinn er því á ríkis-
valdinu og standa vonir til að
gerð snjóflóðavarnanna verði
boðin út fljótlega.
Varnargarðurinn í Bolung-
arvík á að vera 18-22 metra
hár og 700 metra langur þver-
garður, staðsettur þar sem Dís-
arland er nú. Auk þess verða
átta keilur ofar í fjallinu. Áætl-
að er að í varnarvirkin fari um
400 þúsund rúmmetrar af fyll-
ingarefni sem reiknað er með
að fáist innan framkvæmda-
svæðisins. Áætlaður heildar-
kostnaður við byggingu varn-
arvirkjanna er 750 milljónir
króna en endanlegur kostnað-
ur ræðst af þeim tilboðum sem
berast í verkið. Gert er ráð
fyrir að bygging varnargarðs-
ins taki um 2-3 ár.
– smari@bb.is
Allt klappað og klárt fyrir
varnargarðinn í Bolungarvík
Ferðamönnum fjölgar í Heydal
Ferðamönnum hefur fjölg-
að mikið í sumar hjá ferða-
þjónustunni í Heydal í Ísa-
fjarðardjúpi. „Það hefur verið
mjög mikil traffík og alveg
hiklaust meira en í fyrra. Við
verðum vör við mikla aukn-
ingu“, segir Stella Guðmunds-
dóttir hjá fjölskyldufyrirtæk-
inu Ævintýradalnum sem kom
upp gisti- og veisluaðstöðu í
gamalli hlöðu og fjósi árið
2003 auk þess sem þar er boð-
ið upp á snjósleða-, kajak- og
hestaferðir.
„Veðrið hlýtur að hafa áhrif
en svo erum við sjálfsagt að
komast kortið, svo ætli það sé
ekki hvort tveggja sem veldur
aukningunni,“ segir Stella að-
spurð um orsökina. Hún segir
það vera blöndu af innlendum
og erlendum ferðamönnum
sem sækja ferðaþjónustuna en
þó séu Íslendingar í meiri-
hluta.
„Fólk yfirleitt mjög jákvætt
og skemmtilegt svo þetta hef-
ur verið mjög ánægjulegt
sumar. Svo vekur tjaldsvæðið
síaukna athygli og lukku en
þar spilli veðrið ekki heldur
fyrir“, segir Stella.
– thelma@bb.is
Heydalur í Ísafjarðardjúpi.
Ný flotbryggja Ísafjarðarhafnar var sjósett í síðustu viku. Nýja bryggjan mun leysa af hólmi gömlu Dokkubryggjuna
þar sem björgunarbáturinn Gunnar Friðriksson og lóðsbáturinn Sturla Halldórsson lágu, en bryggjan var afar illa
farin og nær ónýt. Það var gámalyftari frá Eimskip sem hífði bryggjuna í sjóinn við Sundahöfnina en Sturla Hall-
dórsson dró hana svo á sinn stað. Meðfylgjandi mynd af uppsetningu flotbryggjunnar tók Þorsteinn J. Tómasson.
Flotbryggja tekin í notkun