Bæjarins besta - 02.08.2007, Síða 20
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk
bb.is – fjölsóttasti vestfirski vefurinn
Byggingarleyfi vélageymslu
á Birnustöðum í Ísafjarðar-
djúpi hefur verið fellt úr gildi.
Úrskurðarnefnd byggingar-
og skipulagsmála hefur kveð-
ið upp þann úrskurð. Máls-
atvik eru deilur landeigenda
Birnustaða og eigenda sum-
arbústaðar á jörðinni um stað-
setningu vélageymslu fyrir þá
fyrrnefndu og á málið sér
nokkra forsögu. Eigendur
sumarhússins telja að véla-
geymslan standi of nálægt lóð
þeirra og muni valda veruleg-
um grenndaráhrifum og er þar
helst minnst á útsýnisskerð-
ingu, skugga- og snjósöfnun
og hávaðamengun frá vélum.
Í úrskurði nefndarinnar er ekki
fallist á að ekki hafi verið þörf
á að deiluskipuleggja landið.
Tvær heimildir eru í skipu-
lags- og byggingarlögum sem
heimila að vikið sé frá skyldu
til að gera deiliskipulag vegna
fyrirhugaðra framkvæmda,
m.a. 3. mgr. 23. gr. skipulags-
og byggingarlaga. Báðar fela
þessar heimildir í sér undan-
tekningu frá meginreglu lag-
anna um deiliskipulagsskyldu
og sæta því þröngri skýringu.
Ekki verður fallist á að skilyrði
hafi verið til þess að veita hið
umdeilda byggingarleyfi með
stoð í heimildarákvæði 3. mgr.
23. gr. skipulags- og bygging-
arlaga. Á ákvæðið við um þau
tilvik þegar sótt er um leyfi til
framkvæmda í þegar byggð-
um hverfum og vísar það til
þéttbýlis, en ekki verður talið
að bæjarhlað með íbúðarhúsi,
vélaskemmu og hjalli ásamt
nærliggjandi sumarhúsi geti
talist þegar byggt hverfi í
skilningi laganna.
Fyrir liggur að sveitarstjórn
leitaði meðmæla Skipulags-
stofnunar við útgáfu bygging-
arleyfisins. Laut erindi sveitar-
stjórnar að því að mælt yrði
með byggingu vélageymsl-
unnar á þeim stað sem um var
sótt á árinu 2004, eða níu metr-
um nær bæjarhlaðinu en hið
umdeilda leyfi heimilar.
Í svari Skipulagsstofnunar
til byggingarfulltrúa, dags. 14.
nóvember 2005, segir að
stofnunin undrist að sveitar-
stjórn skuli fallast á staðarval
vélageymslunnar þrátt fyrir
augljósa útsýnisskerðingu og
réttlát mótmæli eigenda íbúð-
arhúss sem fyrir sé á jörðinni.
Stofnunin gerði þó ekki at-
hugasemd við að leyfi væri
veitt fyrir byggingunni enda
yrði virt ákvæði byggingar-
reglugerðar um fjarlægð bygg-
inga frá lóðarmörkum m.t.t.
byggingarefna. Hefur sveitar-
stjórn vísað til þess að með
þessu svari hafi verið aflað
fullnægjandi heimildar til út-
gáfu hins umdeilda bygging-
arleyfis.
Það er niðurstaða úrskurð-
arnefndarinnar að hvorki hafi
legið fyrir heimild með stoð í
grenndarkynningu né full-
nægjandi meðmæli Skipu-
lagsstofnunar sem hefðu getað
verið grundvöllur að útgáfu
hins umdeilda byggingarleyf-
is og verður það því fellt úr
gildi.
Niðurstaða úrskurðarnefnd-
arinnar er að hvorki hafi legið
fyrir heimild með stoð í grennd-
arkynningu né fullnægjandi
meðmæli Skipulagsstofnunar
sem hefðu getað verið grund-
völlur að útgáfu hins umdeilda
byggingarleyfis og verður það
því fellt úr gildi. Breytir það
ekki þeirri niðurstöðu að
bygging hússins er svo langt
komin sem raun ber vitni, enda
hóf byggingaraðilinn fram-
kvæmdir við bygginguna áður
en umsókn hans um bygging-
arleyfi hlaut tilskilið sam-
þykki byggingaryfirvalda og
sveitarstjórnar.
– smari@bb.is
Byggingarleyfi á Birnustöðum fellt úr gildi
Héraðsdómur Vestfjarða
hefur dæmt karlmann á sex-
tugsaldri í fjögurra og hálfs
árs fangelsi fyrir tilraun til
manndráps. Til frádráttar refs-
ingu kemur gæsluvarðhald
ákærða sem hann hefur sætt
frá 9. júní sl. Þá var manninum
gert að greiða eiginkonu sinni
eina milljón krónur í bætur
ásamt dráttarvöxtum auk þess
sem honum var gert að greiða
rúmar 1,4 milljónir króna í
sakarkostnað. Bótakröfu son-
ar mannsins var vísað frá
dómi.
Föstudagskvöldið 8. júní
sl., fékk lögreglan á Vestfjörð-
um tilkynningu um að maður
hefði skotið að konu sinni á
heimili þeirra í Hnífsdal. Sam-
kvæmt frumskýrslu lögreglu
var maðurinn með skotvopn
innandyra en konan hafði
komist undan og hlaupið í
annað hús. Vopnaðir lögreglu-
menn fóru á vettvang og gerð-
ar voru öryggis ráðstafanir til
að tryggja öryggi nærstaddra.
Hlúð var að brotaþola, sem
virtist ekki hafa hlotið alvar-
lega áverka, og hún flutt í
sjúkrabifreið á sjúkrahúsið á
Ísafirði.
Meðan beðið var sérsveitar
ríkislögreglustjóra varð lög-
regla vör við ákærða í húsinu.
Lögreglumaður náði síma-
sambandi við ákærða sem svo
sleit samtalinu. Ákærði kom
síðan út úr húsinu í stutta
stund. Hlýddi hann ekki fyrir-
skipunum lögreglu um að
leggjast niður og hraðaði sér
aftur inn í húsið. Er sérsveit-
armenn komu á vettvang náðu
þeir tali af ákærða kl. 01.43,
er hann kom í dyragættina, og
með hvatningu þeirra fékkst
ákærði til að koma til móts
við þá og var hann yfirbugaður
kl. 02.17 og handtekinn. Með-
an lögregla var á vettvangi
hafði skothvellur heyrst úr
húsinu. Síðar fundust um-
merki um skot á barnastól og
gólfi á efri hæð hússins.
Í niðurstöðu héraðsdóms
kemur fram að við ákvörðun
refsingar er einkum að líta til
þess að brot mannsins beindist
að lífi og heilsu konu hans.
Ákærði skaut með haglabyssu
af stuttu færi og var verknaður
hans því stórhættulegur og
hending ein að ekki hlaust
bani af. Enda þótt líkamlegir
áverkar hafi verið litlir hlýtur
verknaður sem þessi að hafa
mikil áhrif á líf hennar. Sam-
kvæmt sakavottorði mannsins
hefur hann ekki áður sætt refs-
ingu en þykir ásetningur hans
ekki hafa verið styrkur og ein-
beittur. „Ekkert verður fullyrt
um hvað honum gekk til með
verknaði sínum en svo virðist
sem hann hafi gripið til byss-
unnar í örvæntingu yfir því að
kona hans hafi ætlað að yfir-
gefa heimilið. Að öllu þessu
virtu og með hliðsjón af 2.
mgr. 20. gr. almennra hegn-
ingarlaga þykir refsing hans
hæfilega ákveðin fangelsi í
fjögur og hálft ár. Með vísan
til 76. gr. almennra hegningar-
laga skal gæsluvarðhald sem
ákærði hefur sætt frá 9. júní
2007 koma til frádráttar refs-
ingu,“ að því er segir í niður-
stöðu héraðsdóms. – bb@bb.is Frá vettvangi í Hnífsdal.
Dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi
Útför Einars Odds Krist-
jánssonar, alþingismanns,
fór fram frá Flateyrarkirkju
á laugardag að viðstöddu
fjölmenni. Einar var síðan
borinn til grafar að Holti í
Önundarfirði. Húsfyllir var
í kirkjunni, en athöfnin var
sýnd á skjá í íþróttahúsi
Flateyrar þar sem fjölmenni
fylgdist með.
Þeir sem báru kistuna úr
kirkju voru eftirtaldir: Agn-
es Bragadóttir, Ágúst Ein-
arsson, Eiríkur Finnur Greips-
son, Guðmundur Steinar
Björgmundsson, Hinrik
Kristjánsson, Steindór Har-
aldsson, Sturla Böðvarsson
og Þórir Guðmundsson.
Fjölmargir ráðherrar og
þingmenn voru við athöfn-
ina. Ljósm: Þorsteinn.
Útför Einars
Odds Krist-
jánssonar
á Flateyri