Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.10.2007, Qupperneq 1

Bæjarins besta - 18.10.2007, Qupperneq 1
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk Fimmtudagur 18. október 2007 · 42. tbl. · 24. árg. Hermaður, lærður tam- búruleikari og rollubóndi – rúm tíu ár eru liðin síðan Yordan Yordanov fluttist frá Búlgaríu til Íslands, og eiginkona hans hefur verið hér ári skemur. Allan tímann hafa þau verið búsett á Vestfjörðum, fyrst á Ísafirði og svo í Súðavík. Í fyrstu átti Íslandsdvölin að standa yfir í stuttan tíma, en eitthvað hefur teigst á henni og ekkert fararsnið á þeim hjónum. Yordan er aktífur maður og lætur sitt ekki eftir liggja í litlu samfélagi eins og því sem er í Súðavík. Hann hefur stofnað þar fyrirtæki og er orðinn bóndi. Yordan er í viðtali í miðopnu. Vestfirðing- um fækkaði lítillega Vestfirðingar eru 7.380 talsins samkvæmt áætlun Hagstofu Íslands um mann- fjölda miðað við1. októ- ber sl., og hefur einungis fækkað um 25 á einu ári. Ef litið er til einstakra sveitarfélaga þá hefur Bolvíkingum fjölgað úr 872 í 916, íbúum Ísafjarð- arbæjar hefur hins vegar fækkað úr 4.066 í 3.992 eða um 74. Íbúum Reyk- hólahrepps fjölgaði úr 239 í 260. Í Tálknafjarð- arhreppi fjölgar íbúum verulega, úr 239 í 293. Íbúum Vesturbyggðar fjölgar einnig eða úr 936 í 943. Íbúum í Súðavíkur- hreppi fækkar um 25 manns, úr 235 í 210, Í Árneshreppi fækkar íbú- um úr 50 í 46, íbúatala í Kaldrananeshreppi stend- ur í stað en íbúum fjölgar í Bæjarhreppi um sex og eru þeir nú 107 talsins. Þá fjölgar íbúum í Stranda- byggð lítillega, úr 507 manns í 511. Samkvæmt þessu fjölgar í flestum byggðum en mesta blóð- takan er í Ísafjarðarbæ þar sem fækkunin er 0,35%. Rétt er að árétta að tölur fyrir 1. október byggjast á áætlun og taka ber þær með varúð þar sem at- hygli vekur að miðað við tölur Hagstofu Íslands um miðársmannfjölda voru Vestfirðingar 7.519 talsins þann 1. júlí í ár og hefur því þeim fækkað um 139 á hálfu ári. Vest- firðingum fækkaði um 1.283 frá árinu 1997, þeg- ar þeir voru 8.802 talsins. 140 milljónir í aukaframlag til vestfirskra sveitarfélaga Rúmlega 140 milljónir koma í hlut vestfirskra sveitar- félaga af 700 milljóna króna aukaframlagi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Vesturbyggð fær rúmlega 40 milljónir, Ísafjarð- arbær tæplega 38 milljónir, Bolungarvík 17,5 milljónir, Tálknafjörður fær rúmar 16 milljónir, Reykhólahreppur tæpar 15 og Strandabyggð átta milljónir. Þá fær Kaldrananes- hreppur rúmar sex milljónir, Súðavík rúmar tvær og Ár- neshreppur á Ströndum tæpa hálfa milljón vegna þróunar útsvarsstofns. Félagsmálaráðherra ákvað í samráði við Samband ís- lenskra sveitarfélaga, að veita aukaframlag til sveitarfélaga á árinu 2007. Framlaginu er ætlað að jafna aðstöðumun sveitarfélaga sem talin eru í mestri þörf fyrir sérstakt við- bótarframlag vegna þróunar í rekstrarumhverfi þeirra og erf- iðra ytri aðstæðna. Á grundvelli viljayfirlýs- ingar ríkisstjórnar Íslands og Sambands íslenskra sveitar- félaga frá 22. mars 2007 nemur þetta tímabundna auka- framlag 1.400 milljónum króna á árunum 2007 og 2008. Framlagið er veitt sveitarfé- lögum vegna íbúafækkunar, vegna þróunar útsvarsstofns, vegna íbúaþróunar auk þess sem framlag er veitt til sam- einaðra sveitarfélaga vegna þróunar útsvarsstofns. Ísafjarðarbær fær tæplega 38 milljónir í aukaframlag úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.