Bæjarins besta - 18.10.2007, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2007 3
Styrkir
til menningarstarfsemi
Menningarráð Vestfjarða auglýsir eftir umsóknum um
verkefnastyrki til menningarstarfs á Vestfjörðum, á grund-
velli samnings Fjórðungssambands Vestfirðinga við
menntamálaráðuneyti og samgönguráðuneyti frá 1. maí
2007. Tilgangur styrkjanna er að styrkja menningarstarf-
semi og menningartengda ferðaþjónustu á Vestfjörðum.
Árið 2007 er áhersla lögð á verkefni sem uppfylla eitt
eða fleiri eftirtalinna skilyrða:
· Samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða
listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.
· Nýsköpun á sviði lista- og menningarstarfs.
· Verkefni sem miða að fjölgun starfa.
· Verkefni sem stuðla að eflingu fagþekkingar á sviði
menningar og lista.
Umsóknarfrestur er til 2. nóvember 2007.
Allar nánari upplýsingar og umsóknareyðyblað sem
skila þarf með styrkumsóknum má finna á heimasíðu
Menningarráðs Vestfjarða – www. vestfirskmenning.is.
Allar nánari upplýsingar gefur Jón Jónsson, menning-
arfulltrúi í síma 891 7372 eða á netfanginu menning@
vestfirdir.is.
vestfirskmenning.is
Átta teknir fyrir of hraðan akstur
Í síðustu viku voru átta ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Vestfjörðum. Sá sem
hraðast ók var stöðvaður eftir að hafa mælst á 108 km hraða á Hnífsdalsvegi en þar er hámarkshraðinn 80 km. Þá
voru aðvörunarmiðar límdir á 45 bifreiðar á Vestfjörðum þar sem eigendum þeirra var gefin sjö daga frestur til að
færa þær til skoðunar. Fjögur umferðaróhöpp voru bókuð í dagbók lögreglunnar á Vestfjörðum í vikunnu en þau voru
öll minniháttar. Á aðfaranótt laugardagsins voru lögreglumenn á Ísafirði kallaðir að Edinborgarhúsinu á Ísafirði vegna
ölvunar og slagsmála þar fyrir utan. Ekki kom til þess að lögregla þyfrti að fjarlægja menn af staðnum vegna þessa.
Aðfaranótt sunnudagsins stöðvuðu lögreglumenn á Hólmavík slagsmál ölvaðra manna á hafnarsvæðinu á Hólmavík.
Hluti af aðstöðu siglinga-
klúbbsins Sæfara á Ísafirði
hefur verið boðinn til sölu og
segir Örn Torfason, formaður
félagsins, að ef Sæfari missi
aðstöðuna þýði það mikil
óþægindi fyrir starf félagsins.
Forsaga málsins er sú að Sæ-
fari hefur haft aðstöðu í Suð-
urtanga 2 í Neðstakaupstað
um árabil, aðstöðu sem hefur
verið að hluta í eigu Miðfells
þar til nýlega. Þegar vinnslu
var hætt í Miðfell keypti
Byggðastofnun stærstan hlut
í rækjuverksmiðjunni og setti
eignina á Suðurtanga á sölu.
„Miðfell styrkti okkur með
því að veita okkur aðstöðu í
Suðurtanga endurgjaldslaust.
Ef Sæfari missir þennan hluta
húsnæðisins þá missum við
mjög mikilvægan hluta af því
húsnæði sem við höfum í dag.
Það er að minnsta kosti aug-
ljóst að uppbyggingar- og
barnastarf yrði í hættu,“ segir
Örn.
Aðstaðan þykir hæfa sigl-
ingaklúbbnum afar vel enda
alveg við Pollinn. Í umræddu
húsnæði er meðal annars bún-
ingsaðstaða með fataskápum,
þurrkherbergi, sturtuaðstaða
og hluti af geymsluplássi fyrir
kænur, kayaka og aðra báta í
eigu Sæfara.
Samkvæmt óstaðfestum
heimildum BB hafa sjö tilboð
borist í eignina. Örn segir að
sú starfsemi sé vandfundin
sem myndi henta betur en
þessi, þegar horft er til stað-
setningar, umgengni og þess
mikla lífs og fjörs sem fylgir
Sæfara. Enda sé það í næsta
nágrenni við elstu húsaþyrp-
ingu á landinu sem er að finna
í Neðstakaupstað og er mikið
ferðamannaaðdráttarafl.
Sæfari er félag áhugamanna
um sjósport á Ísafirði og sam-
anstendur af kayak- og segl-
bátaunnendum auk sportbáta-
unnenda. Um 250 manns eru
skráðir í félagið.
– thelma@bb.is
Sala á Suðurtanga gæti
þýtt endalok Sæfara
Búið er að skrifa undir
kaupsamning milli væntan-
legs hlutafélags og skipta-
stjóra rækjuverksmiðjunnar
Miðfells á Ísafirði og hófst
rækjuvinnsla á ný á Ísafirði
á föstudag, sjö vikum eftir
að greint var frá því á bb.is
að Jón Guðbjartsson og fleiri
hefðu áhuga á að kaupa
verksmiðjuna. Stofnendur
félagsins eru Byggðastofnun
og útgerðarfélagið Birnir.
Fleiri aðilar koma til með að
gerast stofnfélagar, en verið
er að bíða eftir kennitölu og
nýju nafni á fyrirtækið til að
svo geti orðið. 22 starfsmenn
mættu til á föstudag og er
stefnt á að þeir verðir rúmlega
30 innan tíðar.
„Þetta er alveg frábært, við
erum öll í sjöunda himni
yfir þessu. Við vonum bara
öll saman að þetta eigi eftir
að ganga því þetta skiptir
svo gríðarlega miklu máli
að hafa þessa verksmiðju.
Rúm 30 störf fyrir bæjarfé-
lagið“, sagði einn starfs-
manna verksmiðjunnar við
blaðamann á föstudag.
– gunnaratli@bb.is
Rækjuvinnsla haf-
in á ný á Ísafirði
Samkvæmt nýju mati Veð-
urstofu Íslands á hættu vegna
ofanflóða í Tungudal og innri
Kirkjubólshlíð í Skutulsfirði
er byggingar á Ísafjarðarflug-
velli og gangamunninn við
jarðgöngin í Tungudal á rauðu
hættusvæði. Gunnar Guðni
Tómasson hjá hættumats-
nefndinni sagði í samtali við
ruv.is að hættusvæðin sem um
ræðir segi það eitt að ekki
megi byggja á þessum svæð-
um. Að því er fram kemur á
vef Svæðisútvarpsins á Ísa-
firði er matið til viðbótar því
mati sem gert var fyrir fimm
árum og tekur til þess um-
hverfis sem fólk býr ekki að
staðaldri. Þá sé komið endur-
mat á Seljalandshverfi þar sem
varnargarður er risinn ofan
byggðarinnar.
Þá er flugvallarsvæðið á
hættusvæði undir Innri-Kirkju-
bólshlíð en í matinu segir að
þrátt fyrir að ekki sé mikil
byggð á svæðinu er þar starf-
semi sem er mikilvæg fyrir
Ísafjarðarbæ og nágranna-
sveitarfélög. Byggingar á Ísa-
fjarðarflugvelli eru á hættu-
svæði C og þarf þar að huga
sérstaklega að viðbrögðum
vegna þess að búast má við
miklum mannsöfnuði þar.
Svæðin sem um ræðir í
hættumatinu eru Seljalands-
hverfi og Tunguskeið, eftir
byggingu varnarmannvirkja á
Seljalandsmúla, og hættumat
fyrir Tungudal, Dagverðardal
og Innri-Kirkjubólshlíð. Hættu-
matsnefnd Ísafjarðarbæjar
kynnti tillöguna að hættumat-
inu á föstudag. Tillagan er síð-
an aðgengileg almenningi á
bæjarskrifstofunni í fjórar vik-
ur, þ.e.a.s. til miðvikudags 14.
nóvember 2007.
– thelma@bb.is
Ísafjarðarflugvöllur á snjóflóðahættusvæði
Byggingar á Ísafjarðarflugvelli eru á hættusvæði C.