Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.10.2007, Síða 4

Bæjarins besta - 18.10.2007, Síða 4
FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 20074 Endilega lítið á heimasíðuna og skoðið úrvalið! (Hringið og ég kem með þau föt sem þið viljið sjá) www.gala.is Sími 588 9925 Glæsilegur fatnaður. Galakjólar fyrir árs- hátíðina og jóla- hlaðborðið! Vantar þig kjól fyrir árshátíðina? Verslunin Emilía verður með opið hús laugardaginn 20. október nk. í gamla sláturhúsinu á Þingeyri frá kl. 13:00 - 17:00. Glæsilegur kvenfatnaður fyrir öll tækifæri í stærðum 34-52. Frábær tilboð í gangi! Hjartanlega velkomin. Kaffi á könnunni! Sundhöll, hótel, smábátahöfn og þjónustukjarni á Torfnesrifi Sundhöll, smábátahöfn, þjónustukjarni og hótel eru meðal hugmynda Ísfirðings- ins Úlfars Ágústssonar um betri bæ. Hann kynnti hug- myndir sínar um landfyllingu fyrir neðan Torfnes í síðustu sveitarstjórnarkosningum og síðan hafa margir sýnt þeim áhuga. Nú hefur arkitektastof- Frumhugmynd að nýju Torfnesrifi á Ísafirði. Mynd: Arkiteó. an Arkiteó teiknað upp frum- hugmynd að nýju Torfnesrifi eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. „Þetta er allt á frumstigi og menn hafa sýnt áhuga en það vantar framkvæmdaað- ila“, segir Úlfar. Þá hafa menn einkum sýnt áhuga á höfn fyrir stærri skemmtibáta sem hafa lítið rými annars staðar. „Það væri tilvalið fyrir okk- ur að bjóða upp á örugga vörslu fyrir skemmtibáta þar sem mikið skemmtibátasvæði er í nágrenni við bæinn eins og til að mynda við Horn- strandir. Við erum einnig í bestu aðstöðu til þess að bjóða þeim sem eru á leið til Austur- Grænlands þjónustu, eins og til dæmis stærri snekkjum. Vegna staðsetningar okkar og nálægðar við Grænland væri það tilvalið að menn alls staðar úr heiminum gætu komið við á Ísafirði og sótt þá þjónustu sem þeir þurfa áður en haldið er áfram.“ Úlfar telur einna mikilvæg- ast að koma upp sundlaug. „Vestfirðingar þurfa alvöru sundhöll með útiaðstöðu. Ég er líka sannfærður um að þetta sé rétta staðsetningin fyrir sundlaug því að þegar byrjað verður að leita að hita í firð- inum munum við hafa kost á að koma þarna upp baðströnd. Þá væri einnig hægt að reisa fimm stjörnu hóteli á rifinu, en það er það sem þörf er á. Við þurfum ekki fleiri svefn- pokapláss heldur hágæða hótel fyrir þá sem vilja eyða miklum pening í gistingu.“ Er þetta aðeins brot af hug- myndum Úlfars en eins og sjá má á meðfylgjandi mynd er m.a. gert ráð fyrir lúxusíbúð- um með útsýni yfir byggðina, aðkomubryggju fyrir smærri skemmtiferðaskip og göngu- stíg meðfram sjónum. Mikil stemmning var á Edinborgarhúsinu á Ísa- firði á föstudaskvöld þegar blús- og rokkveisla var í boði tveggja vestfirskra hljómsveita, Johnny and the rest frá Patreksfirði og Heavy Load Men, eða Þungavigtarmennirnir, frá Flateyri. Salurinn var þétt- setinn þegar blús og rokk- tónarnir hljómuðu. Fyrstir á svið voru hljómsveitin Heavy Load Men sem skipuð er Halldóri Gunn- ari Pálssyni, Önundi Páls- syni, Valdimar Olgeirs- syni, Stefáni Baldurssyni og Stefáni Jónssyni. Því næst steig Johnny and the rest á stokk en hljómsveitin hefur verið að hasla sér völl í tónlistar- bransanum undanfarin tvö ár. Um helgina voru þeir í nýuppsettu upptökuveri á Flateyri við tökur á nýrri plötu. Á laugardag mun hljómsveitin á Iceland Air- waves sem haldin verður í níunda skipti dagana 17.- 21. október. Johnny and the rest skipa þeir Bragi Eiríkur Jónsson, Guð- mundur Þór Gunnarsson, Jóhann Jónsson og Hrafn- kell Már Einarsson. – thelma@bb.is Blús- og rokkveisla í Edinborgarhúsinu Johnny and the rest heilluðu áhorfendum með blúsuðum rokktónum í Edinborgarhúsinu.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.