Bæjarins besta - 18.10.2007, Side 7
FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2007 7
Snjóflóðahætta á stóru svæði í Tungudal
Veðurstofa Íslands hefur
unnið hættumat vegna ofan-
flóða fyrir svæði umhverfis
þéttbýlið á Ísafirði. Svæðin
sem um ræðir eru Seljalands-
hverfi og Tunguskeið, eftir
byggingu varnarmannvirkja á
Seljalandsmúla, og hættumat
fyrir Tungudal, Dagverðardal
og Innri-Kirkjubólshlíð. Sam-
kvæmt hættumatinu er snjó-
flóðahætta á stóru svæði í
Tungudal, einkum í og við
farveg stóra flóðsins úr Selja-
landshlíð 1994 og í Selja-
landshverfi. Sumarbústaða-
hverfið í Tungudal er allt á
hættusvæði C og nokkur hús í
Seljalandshverfi eru á hættu-
svæðum B og A. Hættan er þó
mjög mismikil. Líkanreikn-
ingar benda til að hætta sé
tiltölulega lítil á allstórum
svæðum utan og innan við
tungu snjóflóðsins 1994 þar
sem snjóflóð eru ólíkleg til
þess að ná fram af brún Selja-
landsdals. Skíðaskáli á Harð-
arskálaflöt á Seljalandsdal er
talinn utan hættusvæða.
Í hættumatinu segir að
Seljalandshverfi hafi verið
varið með varnargarði og keil-
um sem draga mikið úr snjó-
flóðahættu í byggðinni þar
fyrir neðan. Mesta breyting á
legu hættumatslína undir garð-
inum er innst í tungunni niður
yfir Seljalandshverfi og svæð-
ið þar neðan við í eldra hættu-
mati, nærri Bræðratungu. Þar
benda tvívíðu líkanreikning-
arnir til þess að eldra hættumat
frá 2002 geri ráð fyrir full-
mikilli útbreiðslu flóða til
vesturs, eins og fyrr var nefnt.
Breyting í legu hættumatslína
á þessu svæði stafar bæði af
því að líkanreikningar gefa nú
til kynna að snjóflóðahætta sé
minni á þessum stað en skv.
eldra hættumati og einnig af
áhrifum varnargarðsins.
Hætta í innanverðum Tungu-
dal og í Dagverðardal er miklu
minni en á svæðum þar sem
hættu gætir frá stóru upptaka-
svæðunum í Seljalandshlíð.
Snjósöfnun í hugsanleg upp-
takasvæði þar er fremur lítil
og hættumatslínur liggja því
mun nær hlíðinni en undir
Seljalandshlíð. Á slíkum svæð-
um er hættumat erfitt og
óvissa mikil. Ekki er byggð á
hættusvæðunum, sem af-
mörkuð hafa verið á þessum
hluta hættumetna svæðisins,
að frátöldum skíðaskálanum í
Tungudal sem er talinn á hættu-
svæði A.
Þrátt fyrir að ekki sé mikil
byggð á hættumetna svæðinu
undir Innri-Kirkjubólshlíð er
þar starfsemi sem er mikilvæg
fyrir Ísafjarðarbæ og nágranna-
sveitarfélög. Byggingar á
Ísafjarðarflugvelli eru á hættu-
svæði C og þarf þar að huga
sérstaklega að viðbrögðum
vegna þess að búast má við
miklum mannsöfnuði þar.
Hættumatslínur í Skutulsfirði. Afmörkuð eru þrjú hættusvæði, A, B og C. Ofan rauðu línunnar er hættusvæði C, en þar eru
engar nýbyggingar leyfðar, nema viðvera sé mjög lítil. Á hættusvæðum A og B eru nýbyggingar háðar ýmsum skilyrðum.
Kjarnafjölskyldum fjölgar í Ísafjarðarbæ
Kjarnafjölskyldum fjölgar lítillega í Ísafjarðarbæ, eða um 0,02% frá 2002 til 2006. Árið 2002
voru 991 kjarnafjölskylda skráð í Ísafjarðarbæ en voru 1009 í fyrra samkvæmt tölum Hagstofu
Íslands. Frá árinu 1999 teljast til kjarnafjölskyldu hjón og fólk í óvígðri sambúð, börn hjá þeim
17 ára og yngri, einhleypir karlar og konur, sem búa með börnum 17 ára og yngri. Börn 18 ára
og eldri, sem búa með foreldrum sínum, teljast ekki til kjarnafjölskyldu og sama gildir um ein-
hleypa sem búa með börnum sínum 18 ára og eldri. Í Bolungarvík fækkar þeim úr 248 árið
2002 niður í 231 í fyrra. Í Súðavík fjölgar um eina kjarnafjölskyldu á þessu tímabili, úr 54 í 55.
Háskólasetur Vestfjarða
kynnti í síðustu viku framtíð-
arsýn sína sem starfsmenn set-
ursins hafa unnið að undan-
farið. Þar kemur fram að stefnt
er að því að bjóða upp á fimm
námsleiðir þ.e. nám á meist-
arastigi, sérhæfðar námsleiðir
kenndar á ensku, nám í þriggja
vikna lotum, nám í samstarfi
við aðra háskóla og háskóla
Hafsins.
„Á hverri námsleið stunda
15-20 námsmenn nám. Fimm
námsleiðir á árinu 2011 væru
80-100 heilsársnemar á fram-
haldsstigi. Við þetta bætast
nemendur í sumarnámskeið-
um.“ Kennsla í frumgreina-
námi hefst við Háskólasetur
Vestfjarða í janúar á næsta
ári. Frumgreinanám er einkum
ætlað Vestfirðingum sem ekki
hafa stúdentspróf en vilja
komast í háskólanám.
Háskólasetur Vestfjarða
hyggst einbeita sér að mál-
efnum hafsins og strandsvæða
almennt. Kennsla tengd haf-
rannsóknum, loftlagsmæling-
um, hafstraumarannsóknum
og umhverfisrannsóknum á
sviði hafs og strandsvæða
verða meðal sviða sem Há-
skólasetur sérhæfir sig í. Allt
staðbundið nám við Háskóla-
setur Vestfjarða verður í 3ja
vikna lotum. Það gefur mikla
möguleika á að nemendur geti
tekið þátt í stökum námsleið-
um sem sérstaklega vekja
áhuga þeirra. Þetta getur hent-
að vel til dæmis fyrir skipti-
nám eða endurmenntun.
„Með öflugri uppbyggingu
háskólasamfélags á Vestfjörð-
um gefst einstakt tækifæri til
að auka lífsgæði í vestfirsku
samfélagi til framtíðar. Há-
skólasamfélag þýðir aukin
lífsgæði til handa einstakling-
unum sem fá þar aukna þekk-
ingu, háskólasamfélag þýðir
einnig aukna þekkingu innan
fyrirtækja sem eykur arðsemi
þeirra og opnar þeim fleiri
tækifæri. Beinar tengingar við
háskóla um allan heim, koma
nemenda og þátttaka þeirra í
samfélagi okkar, menningu og
atvinnulífi opnar fjölmargar
dyr. Alþjóðlegt háskólasam-
félag opnar Vestfirðingum
heiminn“, segir í framtíðarsýn
Háskólaseturs Vestfjarða.
– gunnaratli@bb.is
Peter Weiss, forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða á kynningarfundinum.
„Alþjóðlegt háskólasamfélag
opnar Vestfirðingum heiminn“
Mæla með
Sveinfríði
Fræðslunefnd Ísafjarð-
arbæjar mælir með Svein-
fríði Olgu Veturliðadóttur
í starf skólastjóra við
Grunnskólann á Ísafirði.
Tvær umsóknir bárust um
stöðuna, frá Jónu Bene-
diktsdóttur og Sveinfríði
Olgu Veturliðadóttur sem
báðar eru búsettar á Ísa-
firði. Jóna er fyrrum
aðstoðarskólastjóri GÍ og
Sveinfríður Olga var deild-
arstjóri og aðstoðarskóla-
stjóri í Borgarskóla í
Grafarvogi áður en hún
hóf störf sem kennari við
Grunnskólann á Ísafirði í
haust.
Fræðslunefnd taldi báða
umsækjendurna vera mjög
hæfa. Bæjarstjórn mun
taka endanlega ákvörðun
um hver hreppir starfið.
Eins og greint hefur frá
hefur Skarphéðinn Jóns-
son, skólastjóri grunn-
skólans á Ísafirði, ákveðið
að flytja búferlum til Álfta-
ness. Hann þótti hæfastur
af yfir 20 umsækjendum
um stöðu forstöðumanns
velferðar- og skólaþjón-
ustu á Álftanesi.