Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.10.2007, Síða 19

Bæjarins besta - 18.10.2007, Síða 19
FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2007 19 Sælkeri vikunnar er Steinþór Guðmundsson á Ísafirði Sænskur kjúklingaréttur Horfur á föstudag: Suðlæg átt og rigning með köflum, en úrkomulítið fyrir norðan. Milt veður. Horfur á laugardag: Suðlæg átt og rigning með köflum, en úrkomulítið fyrir norðan. Milt veður. Horfur á sunnudag: Suðlæg átt og rigning með köflum, en úrkomulítið fyrir norðan. Milt veður. HelgarveðriðFuni: „Huga þarf að öryggi utan stöðvarhússins“Í hættumati sem Veðurstofa Íslands gerði vegna ofanflóða fyrir svæði umhverfis þéttbýlið á Ísafirði kemur fram að varnarfleygurinn sem ver sorpbrennslustöðina Funa sé nægileg aðgerð til þess að áhætta í húsinu svari til þess að það sé á hættusvæði B. Á slíku svæði er heimilt að reisa hús fyrir atvinnustarfsemi. „Varnarfleygurinn hefur sýnt gildi sitt með ótvíræðum hætti nokkrum sinnum og komið í veg fyrir tjón á byggingunni með því að bægja frá flóðum sem ella hefðu lent á henni. Þrátt fyrir þetta þarf að huga að öryggi þegar unnið er utan stöðvarhússins þar sem fleygurinn veitir mjög staðbundna vörn.“ Lengi er hægt að gramsa í stórri fatahrúgunni. merkilegt. Það hefur þá kann- ski verið að leita að þessum tiltekna hlut eða húsgagni í mörg ár. Smekkur fólks er auðvitað svo mismunandi og það sem einum finnst vera drasl er gull og gersemar í augum annarra. Við erum svo ólík, sem betur fer, og það er það sem gerir svona flóamark- aði svo skemmtilega. Hingað kemur stundum fólk að leita að einhverju sem það hefur verið á höttunum eftir í mörg ár. Það fer kannski reglulega flóamarkaði og í Kolaportið að leita að hlutn- um“, segir Gísli. Hér viðurkennir blaðamað- ur að vera sjálfur fló í eðli sínu, hann hafi til dæmis glaðst mikið þegar hann fann bók númer 26 um Ísfólkið á 50 krónur í Kolaportinu fyrir nokkru, enda sú með eindæm- um vandfundin. „Flær leynast víða og marg- ir sakna markaðarins þegar við stöndum okkur ekki nógu vel að hafa markaðinn opinn“, segir Ingibjörg. „En þetta er auðvitað allt unnið í sjálfboða- vinnu og ef við höfum ekki tíma til þess að hafa markað- inn opinn verður bara að hafa það.“ Þau hjónin segjast nú heim- sækja flóamarkaði þegar þau eru á ferðalögum erlendis. Þau hafa meðal annars skoðað flóamarkaði í Kaupmanna- höfn, Las Vegas og París. „Það var æðislegt að skoða markaði í París en í Las Vegas var markaðurinn í svo miklu „gettói“ að enginn leigubíl- stjóri fékkst til að koma að sækja okkur“, segir Gísli. Aðspurður um skemmtileg atvik segist Gísli sérstaklega muna eftir einni sendingu af dóti sem JCI fékk gefins. „Við vorum beðin um að koma og sækja mikinn stafla af dóti heim til konu einnar á Ísafirði, þarna voru húsgögn, bækur og ýmislegt smálegt. Ofan í einum kassanum fund- um við hins vegar hluti sem áttu greinilega ekki að fara til okkar, ástarbréf, einkunna- spjöld og fleira. Við hringdum því í konuna og létum hana vita. Hún varð ósköp glöð að fá bréfin sín aftur.“ En hvað ætli svona starf- semi velti miklu? „Ætli meðaltalið sé ekki svona 10-20.000 krónur í hvert skipti sem við höfum opið. Mest græðum við á því að selja húsgögnin, en við hvetjum fólk sem hingað kemur eindregið til þess að fara yfir á Húsgagnaloft til Grétars að kaupa sér nýjar mubblur og láta okkur fá þær gömlu“, segir Ingibjörg hlæj- andi. „Þannig græða allir.“ – tinna@bb.is Glös, diskar, amboð og ýmis smærri og stærri búsáhöld fylla hillur. Sælkeri vikunnar deilir með lesendum BB rétti sem gengið hefur í gegnum kynslóðir hjá eiginkonu hans sem er frá Svíþjóð. Steinþór bendir á að hægt er að skipta kjúklingnum í réttinum út fyrir fisk og/eða rækjur ef fólk kýs. Rétturinn er borinn fram með hrísgrjón- um, salthnetum, kókosmjöli og niðursoðnum mandarín- um. Þá er einnig gott að hafa salat sem meðlæti ef fólk vill. Sænsku kjúklingaréttur 1 grillaður kjúklingur 2 græn epli 2 gulir laukar 5 dl kjötsoð með nautakrafti 2 dl rjómi 4-6 msk karrý 1tsk salt ¼ timjan 4 hvítlauksrif 1 dós niðursoðnir tómatar Takið kjarnann úr eplunum en skiljið hýðið eftir á og sker- ið niður í bita á stærð við sykurmola. Takið laukinn og skerið í niður í bita og steikið á ásamt eplunum á pönnu þar til mjúkt. Setjið kjötsoðið í pott og hitið og hellið síðan lauknum og eplunum út í. Úr- beinið kjúklinginn en hafið skinnið enn á og rífið niður í bita út í pottinn. Hrærið krydd- ið út í rjómann og hellið síðan út í pottinn. Rétt áður en rétt- urinn er borinn fram eru nið- ursoðnu tómatarnir settir út í svo þeir haldist heilir. Ég skora á Eddu Björk Magnúsdóttur í Ytri-Hjarðar- dal í Dýrafirði að verða næsti sælkeri vikunnar. Ísfirski tónlistarmaðurinn Baldur Geirmundsson varð sjötugur á mánudag. Meðal afmælisgjafa sem hann hefur fengið í dag er heimasíða synir hans og fjölskyldur færðu honum. Þar er að finna ótal myndir frá 50 ára sögu hljóm- sveitarinnar BG, skemmtileg- ar sögur, blaðagreinar, BG lög og textar, myndband og fl. Synir Baldurs söfnuðu saman myndum, sögum og fleira efni sem er á síðunni. Vefhönnuð- ur er sonarsonur og nafni Baldurs, Baldur Páll Hólm- geirsson. „Nú eru 50 ár liðin frá því Baldur Geirmundsson stofn- aði sína fyrstu hljómsveit, undir nafni BG þótt hann hafi trúlega verið byrjaður að spila á nikkuna töluvert fyrr á sam- komum og böllum“, segir á heimasíðunni. Baldur Björn Geirmunds- son fæddist að Látrum í Aðal- vík 15.október 1937. Foreldr- ar voru Regína Guðmunda Sigurðardóttir frá Látrum og Geirmundur Júlíusson frá Atlastöðum í Fljótavík, sem bæði eru látin. Börn þeirra urðu sjö, sex synir og ein dótt- ir. Halldór, Gunnar, Sigurlíni, Helgi, Ásta, Baldur og Karl. Fékk heimasíðu í afmælisgjöf

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.